Nýtt blogg

Jæja, eins og glöggir lesendur taka eftir þá er komið nýtt útlit á síðuna. Ekki bara nýtt útlit heldur nýtt bloggkerfi. Ég ákvað loksins að hætta með heimasmíðaða bloggkerfið mitt og fara að nota WordPress. Ég byrjaði á að skipta um kerfi á síðunni hjá Daníels og leist svo vel á það að ég ákvað að nota það hjá mér líka. Forritarar sem blogga virðast allir fá sömu hugmyndina: “Hey, bloggkerfi er einfalt. Ég ætla að búa til mitt eigið bloggkerfi!!!”. Það sem gerist er hinsvegar að þeir enda allir með einhver hálfkláruð krapp heimasmíðuð kerfi sem eru ekki næstum því jafn góð og alvöru bloggkerfi sem einhver hefur lagt virkilega vinnu í (og þetta er nákvæmlega það sem gerðist hjá mér 🙂 ). Í WordPress er t.d. innbyggt kerfi til að vinna gegn commentaspami sem ég var búinn að vera í vandræðum með á hinni síðunni, mörg þúsund þemu sem maður getur valið um og endalaus plugin til að gera allt undir sólinni.

Þetta er ennþá ekki komið almennilega í gang, ég er búinn að importa gömlu bloggfærslunum mínum með Python scripti en á eftir að finna eitthvað annað þema, laga linka og myndir í gömlum færslum og laga þetta eitthvað meira til. Það kemur allt á næstunni. Kannski ég reyni jafnvel að skrifa hérna inn öðru hvoru 🙂

3 thoughts on “Nýtt blogg

  1. Friðrik

    Frábært hvernig stendur á síðunni hans Daníels: Daníel Máni Einarsson notast við WordPress 🙂

  2. einar Post author

    Hehe, já, mín þýðing á ‘is proudly powered by’. Daníel er náttúrulega mjög hrifinn af WordPress. Verður maður ekki annars að gefa þeim smá plögg fyrir að gera svona gott kerfi?

    Ég á reyndar líka eftir að laga tag línuna hjá mér, ‘Just another WordPress weblog’ er ekki beint lýsingin sem ég vill hafa á blogginu mínu 😀

  3. Alda

    Ok, skil vel ad wordpress se voda snidugt og allt en eg er bara buin ad sja headerinn svo ogedslega oft annars stadar… mer finnst thad fyndid hja Daniel af thvi ad hann er ekki ordinn 2 ara en kominn med typiskt wordpress blogg en thu, sem pró tölvunörd á 30tugs aldri verdur ad breyta headernum hja ther a einhvern kúl, eigin hatt finnst mer.

    lovjú

Comments are closed.