Jæja, þetta er búið að vera ansi viðburðaríkt ár. Í tímaröð:
- Útskrifaðist sem tölvunarfræðingur úr Háskólanum í Reykjavík.
- Eignaðist lítinn strák, Daníel Mána.
- Ég og Karen giftum okkur og skírðum Daníel í leiðinni.
- Byrjaði í fyrstu “alvöru” vinnunni minni, hjá Libra sem er deild í TM Software. Seinna á árinu var Libra svo keypt útúr TM software af sænska fyrirtækinu OMX.
- Fór í árshátíðarferð til Póllands með vinnunni, Karen og Daníel komu með, hittum ættingja Karenar í Póllandi.
- Seldum íbúðina okkar í Guðrúnargötunni, erum að leita að nýrri íbúð.
Verðu erfitt að toppa síðasta ár en vonandi verður jafnmikið fjör á árinu 2006. Gleðilegt ár! 🙂
já, kannski á þessu ári getið þið farið til tunglsins 😉
Mér finnst einmitt að við ættum að gera akkúrat hið gagnstæða og hafa þetta eins leiðinlegt og tilbreytingalaust ár og hægt er 😀 Helst bara hanga heima og borða örbylgjumat í hvert mál og kannski fara í útileigu og tjalda útí garði í stað þess að gera eitthvað spennó.
Einar. Nennirðu að senda mér rétta emailið þitt á gmail adressuna mína. Er bara með skeinars adressuna! xox (Takk fyrir síðast)