Linux (enn einu sinni)

[Nördablogg]

Nú var ég að setja Linux inn hjá mér enn einu sinni. Fólk kvartar stundum yfir að Linux sé “ónotendavænt” en það er bara rugl. Tökum sem dæmi, ég vildi koma þráðlausa netkortinu mínu í gang. Það eina sem ég þurfti að gera var:

Finna út hvaða chipset kortið mitt var með, googla eftir driver fyrir það, downloada source kóðanum fyrir driverinn (sem reyndist vera version 0.0.1 frá árinu 2004), gera make install til að compila drivernum, það virkar ekki, installa header files fyrir kernelinn, installa gcc, gera aftur make install, það virkar ekki, laga villur í driver source kóðanum sem voru útaf einhverju inline functions sem tókst ekki að inline-a, keyra make install aftur, það keyrir í gegn án villna, keyra modprobe zd1205, fá villuboðin FATAL: can’t install zd1205, skoða dmesg til að finna út hvað er að gerast, deprecated symbols á verify_area og pci_sync_single, finna réttu symbolin til að setja í staðinn og replace-a alla staði í source kóðanum þar sem þau koma fyrir, keyra make install aftur, keyra modprobe zd1205, fá aftur FATAL: can t install zd1205, skoða dmesg, sjá villuboðin “Device not found”, grep “Device not found” src/* til að finna hvar þessi villa kemur upp, sjá að hún kemur því að pci_register_driver skilar <= 0, googla pci_register_driver, komast að því að á einhverjum tímapunkti var þessu falli breytt þannig að 0 þýðir núna að allt sé í lagi, breyta pci_register_driver tékkinu í zd1205_hotplug.c, make install, modprobe zd1205 og þá loadast driverinn!

It’s almost too easy! (Bónusstig fyrir að þekkja kvótið!). Núna kemur a.m.k. ljós á netkortið hjá mér og í Wifi-radar forritinu sem ég náði í sé ég þráðlausa netið mitt, en það hefur ekki ennþá tekist að tengjast því af einhverjum ástæðum. En það hlýtur að koma með nokkrum einföldum skrefum í viðbót.

5 thoughts on “Linux (enn einu sinni)

  1. Árni

    Úff hvað Linux er erfitt, þurfti að ríkompæla kernelinn til þess að fá gamalt adsl-módald til að virka :S, það þurfti hins vegar alveg heila mínútu á Windows til að fá það til að virka.

    Kvótið er annars að ég held úr Wayne’s World.

  2. Bænarí

    Ég ætla að skjóta á að þú sért að setja inn annað hvort Gentoo eða Fedora Core e-ð.

    Eitt orð: Ubuntu

    Það er besta device-detection sem ég hef séð á linux. Allt dótið mitt virkaði strax eftir install, m.a. þráðlaust net.

  3. einar

    Ég er einmitt með Ubuntu (6.06) sem er algjör snilld, þetta er það eina sem ég er í vandræðum með, og ég verð eiginlega að koma því í gang ef ég ætla að nota Linux, því ég get ekki verið án netsambands.

    Vandamálið er bara að netkortið mitt er með eldgömlu chipsetti sem er ekkert mjög algengt, og lítið að finna um það á netinu. (En reyndar finnst mér nú samt lúmskt gaman að öllu þessu veseni, maður lærir líka á því :)) Núna virðist driverinn alveg vera í gangi og ég get skannað og séð netið mitt en ég get ekki tengst því, ég sendi bara út endalaus DHCPDISCOVER skilaboð en fæ ekkert svar, eða pikka það ekki upp a.m.k.

    Hvaða netkort ert þú með sem virkaði strax? Hugsa að ég endi á að kaupa mér bara eitthvað kort sem ég veit að virkar out-of-the-box. Eða ertu kannski með innbyggt?

  4. Bænarí

    Ég er bara að nota innbyggt Centrino dót. Jamm, það getur verið gaman að fikta í þessu til að læra, en mér finnst reyndar að það verði þreytt mjög fljótt.

    Ég vill helst bara installa og fara að nota dótið. Ubuntu reynsla mín hefur einmitt (nokkurn vegin) verið þannig.

Comments are closed.