Klám, spam og fleira gott stöff

[Nördablogg]

Fyrir nokkrum dögum var allt í einu komið spam í gestabókina hjá Daníel. Einhver Dimitri var að auglýsa Viagra eða eitthvað svoleiðis, man það ekki nákvæmlega. Mér fannst það ferlega skrýtið þarsem ég bjó til þessa síðu, þannig að hún er ekki partur af einhverju stóru kerfi eins og blog.central.is eða wordpress eða neinu þannig. Skildi ekki alveg hvernig einhver hafði rekist á þetta þannig að ég googlaði Dimitri og spamið hans og fann að allar gestabækurnar þar sem hann hafði verið voru með orðinu ‘guestbook’ í url-inu. Þetta hefur semsagt verið einhver bot sem googlaði ‘inurl:guestbook’, fann síðan gestabókarformið, skoðaði textaboxin sem heita örugglega í 90% tilfella eitthvað eins og txtName, txtUrl o.s.fv, og postaði síðan forminu. Jæja, ég breytti url-inu á gestabókinni þannig að það innihélt ekki lengur ‘guestbook’ og bjóst við að þetta gerðist ekki aftur. En nei, nokkrum vikum seinna er komin hrúga af nýju spami! Allt fullt af einhverju klámi, viagra, mortgage payments og einhverju svona krappi. Ég veit ekki hvernig þeir hafa komið hingað núna, Dimitri var mættur aftur + fullt af öðrum nöfnum. Hafa kannski geymt base urlið á síðunni síðan síðast og síðan spiderað hana til að finna gestabók? Ég skoðaði logginn fyrir vefsvæðið og sá hvaða ip tala hafði sent þetta og reyndi að fletta henni upp en fann ekkert. Þetta gæti líka verið bara einhver sýkt tölva einhversstaðar útí heimi. Tók eftir í loggnum að þessi skítabot sendi engan User-Agent header þannig að núna eru allir sem koma inn frá þessari ip-tölu eða senda ekki User-Agent header sendir sjálfkrafa beint inná mbl.is. Sjáum til hvort það virkar, ef þetta kemur aftur þá verð ég að setja password eða einhverja spurningu eða eitthvað inná gestabókina.

p.s.

Fattaði allt í einu að fyrst ég skrifaði ‘klám, viagra, mortgage payment’ mun ég koma upp í google þegar einhver leitar að þessum orðum. Og núna skrifaði ég þau aftur! Gott mál! Það væri nú ekki amalegt að vera efsta íslenska síðan sem kemur upp þegar einhver er að leita að góðu viagra-klámi!

2 thoughts on “Klám, spam og fleira gott stöff

  1. alda

    Ég er alltaf að fá meira og meira spam inn á gmailið mitt. Það endar reyndar allt inn í spam boxinu en mér er hætt að lítast á blikuna (vá hvað þetta var formlegt). Er eitthvað við þessu að gera ? Það er ekki eins og ég sé að opna spamin eða eitthvað slíkt þannig að það komi fleiri og fleiri. x

  2. lauga

    Ég veit ekki hvað það er en ég virðist sleppa nokkuð vel frá öllu spammi… kannski finnst spömmurum ég ekkert spennandi 7-9-13…

Comments are closed.