Alda systir heimtar að ég skrifi eitthvað hérna. Mér dettur reyndar ekkert í hug til að skrifa um þessa dagana þannig að ég bjó til lista yfir það sem hefur verið að gerast síðasta mánuðinn. (Já mér finnst listar góðir. Ég er einhverfur)
- Er farinn að leysa Sudoku þrautirnar í Fréttablaðinu, sem by the way eru svipað ávanabindandi og að reykja krakk! Síðan þegar maður var orðinn vanur því þá kom Blaðið allt í einu með Samurai gátu sem er 5 Sudoku þrautir fastar saman. Fimmfalt krakk!
- Byrjaður að vinna hjá TM Software. Veit ekki hversu mikið ég má segja um hvað ég er að vinna við hérna en ég held að það sé óhætt að segja að þetta er kerfi sem heitir [ritskoðað]sem gerir manni kleift að [ritskoðað] á miklu einfaldari hátt en [ritskoðað]. Það sem ég er aðallega að vinna við í kerfinu er [ritskoðað] sem er ansi spennandi því það notar tækni sem kallast [ritskoðað] sem hægt er að [ritskoðað] og [ritskoðað].
- Erum flutt úr íbúðinni á Guðrúnargötunni (sem var svo lítil að mýsnar voru með kryppu) yfir í íbúðina hjá tengdapabba í Neðstaleiti (sem er svo stór að mýsnar… eh… eru beinar í baki?) Ok, skelfilegur brandari! En já, þetta er a.m.k. miklu betri íbúð og við verðum hérna þar til við finnum okkur nýja íbúð til að kaupa. Erum í því að ganga frá Guðrúnargötunni núna og ætlum að reyna að selja hana sem fyrst. Ef einhvern langar að kaupa íbúð þá bara láta mig vita 🙂
- Er hættur að skokka. Skokk er fyrir plebba.
- Byrjaður og hættur í nýju líkamsræktarátaki sem gekk útá að hlaupa upp 8 hæðir uppí matsal á hverjum degi. Það entist í tvo daga.
- Erum búin að fá okkur nýtt rúm sem mamma og pabbi gáfu okkur í brúðkaupsgjöf. Gamla rúmið okkar var svo mjótt að við urðum að liggja uppá rönd í því en nýja rúmið er aftur á móti álíka stórt að flatarmáli og íbúðin okkar í Guðrúnargötunni (sem var svo lítil að mýsn… hafiði heyrt þennan áður?). Það er a.m.k. mjög stórt, sem veitir ekki af ef ég fer ekki að drífa mig í nýtt líkamsræktarátak!
Svo er náttúrulega fullt að frétta af Daníel en það má lesa um það á síðunni hans.
Eg er alveg lista fikill. Eg er ekkert an theirra. Hey er eg einhverf?!? 8) Jaeja hlaut ad koma ad thvi ad eg fretti thad.
Til hamingju med ad vera flutt i “nyja” husid. 😀
Ha??? Ertu hættur að skokka upp í matsal? Ekkert verið að segja mér frá því! Ég fæ allavegana slatta af líkamsrækt við það að sjá um Daníel (mjög lúmskt) og meira að segja stundum harðsperrur! Og svo fer ég næstum daglega í göngutúr meðan að þú ert í kyrrsetuvinnu 😀
Jamm sammála með þetta einhverfa dæmi. Sandra, farðu svo að koma þér heim. Hlakka til að sjá Pete 🙂
Heyrðu Einar, er síðan þín ekki eitthvað… ljót? Meina þetta ekki illa en finnst hún hafa breyst.
Thid hjonakorn erud skondin. Er thad svona sem thetta er ordid???? Spjallid saman i gegnum netid 🙂
hahahahaha
Haha likamsraektin enntist bara fram ad brudkaupi! Eg er samt feginn thvi tha er eg ekki sa eini sem er ekki i likamsraekt. Min helsta areynsla fer i ad hlaupa a eftir straeto sem gerist reyndar nokkrum sinnum a dag.