Spilakvöld

Buðum Friðrik, Unni og Gísla hingað í gær að spila. Spiluðum Trivial Pursuit þar sem ég tapaði og svo Friends spilið. Friends spilið er flóknasta og skrýtnasta spil í heimi!! Reglurnar meika engan sens, maður fær spjald með myndum af fullt af hlutum og á að draga hring utan um einn hlut fyrir hvern vin og þarf svo að fara í íbúðina hans og svara spurningu til að geta krossað yfir þann hlut. Hinsvegar má maður velja sér spurningar og þær eru númeraðar frá 1-5 sem skiptir engu máli þar sem það eru engir flokkar þannig að númerin standa í raun ekki fyrir neitt og myndirnar skipta engu máli. Svo er smá svona actionary í þessu, en bara ef þú lendir á mynd af vinunum og ert með kaffibollann, ef þú lendir á mynd af þeim en ert ekki með kaffibollann þá færðu kaffibollann. En þú getur auðvitað líka fengið kaffibollann með því að krossa yfir mynd af myndaramma. Svo ef maður þarf að leika (ég þurfti til dæmis að leika hið ógleymanlega atriði “Phoebe að hjóla…” !?!?) þá eiga hinir að giska og ef þeir giska rétt þá græðir sá sem er að leika á því. Hmmmmmm, ég veit hvað þið eruð að hugsa, af hverju ættu þá hinir einu sinni að reyna að giska rétt ef það er bara að hjálpa þeim sem er að leika?? Nú, auðvitað af því að ef maður giskar rétt þá má maður gera hring utan um eina af regnhlífunum sínum! Svo eru reglurnar fullar af skemmtilegum setningum eins og “…Sá sem á að leika tekur spjald og les af því leikatriðið án þess að hinir leikmennirnir heyri…”. Hmmm, les hann þá ekki bara Í HLJÓÐI? Hljómar eins og hann þurfi að hlaupa í næsta herbergi og lesa upphátt þar svo enginn heyri. En þetta var nú samt mjög gaman, hef ekki horft á þessa þætti í 2-3 ár þannig að var soldið ryðgaður í þessu en gat nú samt svarað nokkrum spurningum.

Þessar reglur minntu mig samt á fóstbræðraatriðið þar sem þau voru að spila heimatilbúið spil sem var flóknasta spil í heimi. “Ég er með laufatíuna, þá fæ ég slag. Nei, ég trompa með 2 fimmum og einum fjarka, þá snýst hringurinn við og þú færð hattinn. Aha, þá nota ég jókerinn og spegla þig, þá skiptum við um sæti og þú dregur 6 spil. Nei, ég er með spaðagosa og hjartaþrist, þá læt ég þig fá 3 verstu spilin mín og þú situr hjá í 2 umferðir…”

4 thoughts on “Spilakvöld

  1. Karen

    Jamm þetta var flóknasta/skrítnasta spil sem ég hef farið í og líka mjög órökrétt. Ég vissi t.d. aldrei neitt hvað var í gangi og gerði bara það sem mér var sagt að gera 8)
    Annars vorum við Gísli að brillera í Trivialinu og hefðum pottþétt unnið þetta ef við hefðum fengið frið til að pæla aðeins meira í spurningnunm. Ég pant aftur vera með Gísla í liði næst, sorry Einar 😀

  2. lauga

    Hmmm… þetta Friends spil hljómar ekkert allt of vel. Ég þoli ekki flóknar reglur og flókin spil. Ef reglurnar eru ekki einfaldar þá spila ég það ekki 😉

  3. Einar

    Karen: Jæja, vilt bara ekki vera með mér í liði! Þá pant ég vera aftur með Nóa í liði!

    Lauga: Þetta spil var samt alls ekkert flókið í samanburði við spilið sem þú reyndir að kenna okkur í sumó. Það þurfti nú tvær doktorsgráður og þriggja vikna námskeið til að skilja það spil!!

  4. lauga

    Nei nei nei hvaða bull er í þér… þetta var næsteinfaldasta spil í geimi…
    En það er sannað að hversu einfalt sem spilið er þá er erfitt að læra það þegar maður er búinn að fá sér eins og..hmmm… 4-5 bjóra? 😉
    Manst nú hvernig Birnu gekk með að kenna Hrannari kleppara og ólsen ólsen upp og niður þarna síðar í bústaðnum 😀

Comments are closed.