Bloggleti

Hef ekki verið duglegur að blogga undanfarið. Ástæðan er sú að ég hef verið í prófum og þegar maður er í prófum hefur maður eeeeeekkert að segja! Ég er ekki búinn að hugsa um annað síðustu 10 daga en fallaforritunarmál, ljósútreikninga, diffrun, heildun og núna stöðuvélar og Turing vélar. Ég kem heim eftir 10 tíma í skólanum, Karen spyr “hvað segirðu?” og ég segi “öööh, ég er búinn að læra að finna flatarmál milli tveggja ferla með heildun.” Ég er ekki samræðuhæfur!

En þetta endar allt á morgun, síðasta prófið, Stöðuvélar og Reiknanleiki. Hin prófin hafa öll gengið ágætlega og þetta gerir það vonandi líka. Svo er bara mánudagsdjamm og svo slappa af á þriðjudaginn. Á miðvikudaginn byrjar svo 3 vikna námskeið í vefþjónustum sem verður örugglega fínt 🙂

Er að hugsa um að bæta nokkrum fleiri kvótum við í quotes vinstra megin á síðunni. Ef einhver er með einhverjar góðar hugmyndir um fyndin kvót úr bíómyndum endilega skella því inní kommentakerfið.

8 thoughts on “Bloggleti

  1. Hrannar

    Spurning um að bæta kvótum frá Homer J. Simpson, það er til einhver vefsíða með helling af þeim en ég man ekki slóðina..

  2. Hrefna

    Til hamingju með að vera búinn að forrita föll ( eða falla í fallaforritun ??) + reikna út heildarljós og diffra út stöðuvélar með Turing mótor- eða ??? Skemmtu þér vel í kvöld ! Mamma þín 🙂

  3. Friðrik

    Haha! Með því að kjósa á öllum tölvum sem ég hef aðgang að hefur mér tekist að koma 8) upp fyrir :D.

  4. Einar

    Friðrik: Reyndu að hemja þig á senda takkanum þangað til þú ert a.m.k. búinn að skrifa nafnið þitt! Annars ef þig langar virkilega að svindla á skoðanakönnuninni gætirðu bara blokkað cookies frá nemendur.ru.is og kosið eins oft og þig langar… En það er að sjálfsögðu bannað! STRANGLEGA BANNAÐ!!;)

  5. Unnur

    Hey ertu ekki buinn i profum? Tha er engin afsokun fyrir bloggleysi! Madur hefur alltaf nog ad segja thegar madur er buinn i profum;)

Comments are closed.