Category Archives: Danmörk

Vor

Vorið er komið hérna í Danmörku með endalausum frídögum. Store bededag, Kristi Himmelfarts dag, 2. pinsedag, grundlovsdag. Það eru frídagar í næstum hverri viku, sem lætur tímann líða ennþá hraðar en venjulega.

Ellen er orðin duglegri að fara á leikskólann á morgnana. Það hefur verið erfitt fyrir Karen að skilja hana eftir á morgnana, en nú er komin venja að hún fær að halda í hendina á einhverjum fullorðnum þegar Karen fer og þá er hún sáttari. Hún leikur heilmikið með eldri stelpunum á leikskólanum og er almennt mjög sátt við leikskólann, fyrir utan morgnana. Hún lenti í smá slysi útí garði fyrir nokkrum vikum, var að leika sér í grindunum sem eru þar, en datt framfyrir sig og fékk högg á efri vörina. Fór að hágráta og vörin stokkbólgnaði, og svo á næstu dögum á eftir kom í ljós að önnur framtönnin er dauð, og er núna orðin mjög dökk. Leiðinlegt, en svosem ekkert við því að gera.

Daníel er mjög duglegur í skólanum, duglegur að lesa og sérstaklega duglegur í stærðfræði. Hann er oft að pæla í öllu mögulegu, spyr t.d. uppúr þurru “Pabbi, hvað eru 5 sinnum 15”? og margt fleira. Hann er líka búinn að vera í skáknámskeiði í skólanum og hefur gengið vel þar. Allt svona lógískt virðist liggja vel fyrir honum, stærðfræði, skák, Sudoku o.s.fv. Hann fékk nýja súpertöffaraklippingu fyrir nokkrum, svona feitan hanakamb og er hæstánægður með hana. Karen rakar reglulega hliðarnar til að halda því við. Strákarnir í skólanum ætluðu varla að trúa því að mamma hans gæti gert svona töff klippingu og voru mikið að spurja hvað það hefði kostað 🙂

Daníel búinn að missa fyrstu tönnina.

Stór dagur í dag. Daníel missti fyrstu barnatönnina sína, hægri framtönnina í neðri góm. Hún er búin að vera laus nokkuð lengi, og tönnin við hliðina er líka laus. Í dag var hún svo alveg að losna og Karen hjálpaði aðeins til við að ná henni endanlega út. Daníel var mjög stoltur og fannst mjög skrýtið að finna með tungunni þar sem tönnin hafði verið. Nú er hann mjög spenntur að setja hana undir koddann sinn og fá 10 kr, sem er einmitt nóg til að kaupa fótboltapakka.

Jólin eru búin að vera mjög fín hjá okkur, ég er í fríi og við höfum tekið því rólega saman. Vorum heima á aðfangadag, fórum svo til Öglu og Ragga á jóladag, þar sem Atli og Selma voru líka, og fengum loks Svönu og Atla í afganga á annan í jólum. Ellen og Daníel fengu fullt af spennandi jólagjöfum, Daníel fékk borðfótboltaspil frá okkur, Star Wars spil frá Ellen, mörg spil saman frá afa og ömmu og  fær svo hjól frá Ársæli afa og okkur. Ellen fékk allskonar prinsessudót, og fékk svo hjól frá okkur. Það var gamla hjólið hans Daníels sem við vorum búin að taka í gegn. Við settum stjörnu og fiðrildalímmiða á það, barbie prinsessu körfu og bjöllu, og bleikan lás. Hún var súperánægð og gat varla beðið eftir að komast út að hjóla á jóladag.

Ellen á nýja hjólinu

Næst á dagskrá er svo gamlárskvöld. Við verðum með veislu fyrir fjölskylduna, þetta verður síðasta kvöld Atla og Selmu hérna þannig að það passar vel að enda á fjölskylduveislu. Það verður allt þetta klassíska, kalkúnn, ís, flugeldar, áramótaskaup og gott stuð. Gleðilegt ár!

Viðkvæmur strákur

Daníel fékk að horfa á Garfield myndina í dag. Við kíktum á hana með öðru meðan við vorum að ganga frá og búa til mat. En allt í einu sagði Daníel að hann vildi alls ekki horfa á meira af myndinni og var í miklu uppnámi. Við spurðum hann hvað væri að og hann sagði okkur að hann vildi ekki horfa á mynd þar sem kötturinn væri að henda hundinum út og væri alltaf vondur við hann, og samt væri hundurinn alltaf góður við hann og hefði áhyggjur af honum. Hann fann mikið til með hundinum og var hálfgrátandi þegar hann var að segja okkur þetta. Við hugguðum hann, og sögðum að við gætum horft saman á restina eftir mat, og að kötturinn myndi örugglega læra að maður ætti ekki að haga sér svona. Síðan varð reyndar ekkert úr því þar sem Daníel var svo óþekkur að hann var sendur snemma að sofa.

Ellen byrjaði á leikskólanum í síðustu viku. Við vorum með henni fyrstu tvo dagana og svo var hún bara frá 9-4 hina þrjá dagana. Hún verður í skógarhópinum, en þau voru í bænum alla þessa viku. Á mánudaginn fer hún svo í skóginn í fyrsta skipti og þá fer Karen með henni. Hún er annars bara mjög ánægð með að byrja í leikskóla og líst vel á þetta allt saman. Við erum aðeins stressuð um hvernig það verði fyrir hana að vera alltaf í skóginum, sérstaklega þegar það er kalt og svona, þar sem hún verður stundum svo blá í framan, en við sjáum hvað gerist. Ef það gengur illa þá komum við henni í bæjarhóp.

Svefn

Við vöknuðum rúmlega 6 í morgun og föttuðum að Ellen hafði ekkert vakið okkur um nóttina, sem er mjög óvenjulegt. Við heyrðum í bæði Daníel og Ellen í sínu herbergi en þau voru bara róleg. Svo komu þau inn til okkar og Daníel sagði okkur að hann hefði vaknað um nóttina við að Ellen var að gráta og hann hefði tekið hana uppí rúm til sín. “Til að hún mundi ekki trufla ykkur og þið þyrftuð ekki að vakna” eins og hann sagði. Við vorum að sjálfsögðu súperánægð með hann og hrósuðum honum á fullu. Svo sagði hann líka að hann hefði farið framúr, kveikt á hnattljósinu og fundið snuðið hennar Ellenar og svao slökkt á ljósinu aftur. Daníel var mjög glaður með hvað við vorum ánægð og við töluðum heilmikið um þetta.

Ellen og Daníel eru líka alltaf að vera betri og betri vinir. Oft að leika saman, brölta uppí sófa saman, Daníel að halda á Ellen og að knúsa hvort annað. Nú bíðum við bara og sjáum hvort næsta nótt gengur jafnvel.

Nýr leikskóli hjá Daníel

Daníel byrjaði á nýjum leikskóla í dag. Nýi leikskólinn er Remisen, sami staðurinn og Ellen er á vuggestue. Okkur var boðið pláss fyrir hann fyrir nokkrum vikum þar sem það var enginn biðlisti á einni deildinni og systir hans var þarna fyrir. Við vorum ekki viss um það fyrst, þar sem Daníel á bara tæpt ár eftir á leikskóla en eftir að hafa verið á Remisen með Ellen Maríu og eftir að tala við Daníel um þetta þá ákváðum við að láta hann skipta. Daníel var bara mjög spenntur fyrir þessu, Skarphéðinn vinur hans er á Remisen og honum fannst bara spennandi að vera með honum á leikskóla. Hann kvaddi vinina á Melita í gær og gaf öllum ís og var svo hálfan dag á Remisen í dag og Karen var með honum. Það gekk bara vel og á morgun fer Karen aftur með honum en skreppur svo aðeins í burtu. Þetta verður líka þægilegt fyrir okkur að hafa þau bæði á sama stað og Ellen verður örugglega mjög ánægð að sjá stóra bróður sinn úti á leikskólanum.

Annars hafa síðustu dagar verið mjög fínir, búið að vera frábært veður hvern einasta dag og við búin að gera ýmislegt. Á mánudaginn fórum við útá einn leikvöllinn hérna nálægt með Jenna, Kristjáni og Kjartani og grilluðum pulsur og kjúklingaspjót á útigrilli sem er þarna. Í gær fórum við svo með Anne Louise, Morten, Caroline og Ester Marie útí Lindevang garðinn þar sem er barna “gymnastik” á hverjum miðvikudegi. Þar var búið að setja upp trampólín, sippubönd, allskonar dýnur og fleira og nokkrir frá fimleikafélaginu voru þarna að hjálpa krökkunum að fara í kollhnísa, fara í “rundbold” o.fl. Daníel skemmti sér konunglega og við munum örugglega fara þarna aftur í sumar.

Næst á dagskrá er svo hjólatúr uppí Klampenborg á laugardaginn og svo grill hjá Luke og Zaza á sunnudaginn. Nóg að gera hér í DK 🙂

Desember í Danmörku

Íslensku jólasveinarnir eru komnir til Danmörku og Daníel er mjög spenntur fyrir þeim. Það var búið að telja niður dagana fram að 11. þegar Stekkjastaur átti að koma og nú lesum við á hverju kvöldi um þann jólasvein sem á að koma um nóttina í jólasveinabók sem Hrefna amma sendi honum. Við foreldrarnir erum duglegir að minna gaurinn á að jólasveinar vilja að börn séu þæg því annars fái þau kartöflu í skóinn. Daníel er nú ekki búinn að fá neina kartöflu ennþá en fékk gulrót í nótt, sem er svona millistig milli kartöflu og einhvers meira spennandi. Hann er líka búinn að reyna að leika á jólasveininn með því að setja þrjá skó útí glugga og var soldið svekktur að mamma hans skyldi taka tvo af þeim í burtu.

Núna á föstudaginn lenti hann svo í smá slysi í leikskólanum, datt með hausinn á ofn og þurfti að fara á skadestuen og láta sauma tvö spor í hnakkann á sér. Hann stóð sig samt eins og hetja þegar verið var að sauma og saumarnir verða svo teknir út næsta föstudag.

Ellen er svo að verða eins árs eftir 5 daga. Hún er byrjuð að kunna nokkur orð, mamma, baba (pabbi), da (Daníel) og tssss (kisa).  Þannig að hún getur spjallað við alla fjölskyldumeðlimi. Hún er líka nýlega byrjuð að sofa einn lúr á daginn í staðinn fyrir tvo. Það hefur gengið svona misvel, stundum hefur hún fengið tvo lúra af því að það hefur ekki verið mögulegt að halda henni vakandi en það er að venjast að hafa þetta bara einn lúr. Við höfum verið að reyna að kenna henni að labba svolítið en hún er bara alls ekkert spennt fyrir því, er bara mjög ánægð með að skríða um allt. Hún er líka farin að taka uppá því að reyna að flýja þegar hún veit að hún er að gera eitthvað sem má ekki. Þegar hún sér að maður er að koma að taka eitthvað af henni þá allt í einu fer hún að hlæja og skríður í burtu eins hratt og hún getur.

Annars er bara allt gott að frétta af okkur, afmæli á næstu dögum og svo höldum við okkar önnur jól hérna í Danmörku.

Ellen 10 vikna

Ellen er 10 vikna í dag. Hún heldur áfram að stækka og stækka, var 61 cm á lengd og 5.8 kg í læknisskoðun í vikunni. Hún fór líka til læknis til að láta tékka á mjöðmunum um daginn, þegar hún fæddist fannst lækninum að þær væru kannski aðeins lausar, en í læknisskoðuninni núna kom í ljós að mjaðmirnar eru í fínu lagi. Hún er farin að hjala á fullu og brosa, lætur stundum heyra vel í sér þegar hún er í stuði. Karen og Ellen fóru svo í viku heimsókn til Íslands þar sem Ellen fékk að hitta ömmu sína og báða afa, Tomma frænda og fleiri. Hún er almennt dugleg að sofa og svaf t.d. í þrjá og hálfan tíma úti í vagni í gær.

Daníel er aftur kominn með eyrnabólgu og þarf að fá eyrnadropa tvisvar á dag, sem er alls ekki vinsælt. Hann heyrir ekki mjög vel og á tíma hjá eyrnalækni núna í næstu viku. Þessi tími var pantaður fyrir mánuði síðan þegar hann var nýbúinn að klára síðustu eyrnabólgu, þá sagði læknirinn að ef það væri ennþá vökvi í eyrunum næst myndi hann fá rör í eyrun. Fyrst hann er kominn aftur með eyrnabólgu þá held ég að það sé nú 100 % öruggt að það verði gert. Við vonum að það hjálpi svo þetta eyrnavesen hætti að koma upp aftur og aftur. Annars er hann mikið að reyna á þolinmæði foreldrana þessa dagana, sífellt að ögra og sjá hvað hann kemst upp með, það eru t.d. búin að vera nokkur grátköst í dag. Hvenær klárast þetta tímabil eiginlega…?

3 ára afmæli!

Daníel á afmæli í dag og er orðinn 3 ára! Því miður getum við víst ekki haldið alvöru barnaafmæli með fullt af börnum en við ákváðum bara að reyna að hafa sem skemmtilegastan dag í dag og fá svo Öglu og Ragga í afmæliskaffi á morgun. Þegar Daníel kom fram í morgun vorum við búin að raða upp pökkunum hans og fullt af blöðrum á sófanum. Hann fór strax að taka upp pakka og var mjög ánægður með gjafirnar sínar, sérstaklega var IKEA lestarsettið mjög spennandi. Síðan borðuðum við saman morgunmat í rólegheitunum og fengum smá kökur með. Eftir það fórum við í heimsókn á leikskólann hans Daníels sem hann byrjar á í júlí. Leikskólinn er beint á móti húsinu okkar og okkur leist öllum vel á hann, Daníel vildi helst bara vera þar áfram að leika. Síðan fór ég í skólann en Karen og Daníel fóru að baka og Daníel svo að leggja sig í hádeginu.
Þegar ég var búinn í skólanum um fjögur fór ég með lestinni og hitti Karen og Daníel í tívolí. Þar fékk Daníel að fara í bátana, hringekju, bíla og hoppa á stóru hoppudýnunni. Mikið fjör. Síðan fengum við okkur hamborgara á Burger King og komum okkur heim. Þar háttaði Daníel og svo horfðum við öll saman á Mjallhvíti og dvergana sjö, sem Daníel fanns SVAKALEGA fyndin! Fyrir háttinn lásum við svo fyrir hann eina af nýju bókunum sem hann fékk í afmælisgjöf. Daníel var mjög ánægður eftir daginn og fannst þetta bara fínasti afmælisdagur!
Við erum búin að setja inn nýjar myndir frá maí og júní, meðal annars deginum í dag, þær eru hérna. Annars erum við hætt að setja myndir inná þessa síðu, allar nýjar myndir koma núna inná http://einaregilsson.com/birketinget.

Finnst þér góð lykt af prumpi?

Daníel talar alveg endalaust (stundum of mikið!) og er með ýmsa góða frasa. Nokkrir af þeim hlutum sem hann segir:

  • “Finnst þér góð lykt af prumpi?”. Fyrst prumpar hann hressilega, svo spyr hann  og springur svo úr hlátri! Og þetta hættir aldrei að vera fyndið!
  • “Ertu glaður?” og “Ertu pirr?”. Þegar hann er að tékka á því hvort við séum í góðu skapi. Stundum spyr hann aftur og aftur hvort maður sé glaður og maður þarf stanslaust að svara “já, ég er glaður. Já, pabbi er mjög glaður. Mjög glaður”. Og pirraður/pirruð heitir bara pirr.
  • Talar um sjálfan sig sem “þessi strákur” eða “strákurinn”. Dæmi: “Er pabbi mjög ánægður með þessi strákur?” og bendir á sjálfan sig. Eða “strákurinn er duglegur að taka til”.
  • “Þetta er ekki gott bull”. Sagt þegar ég var eitthvað að bulla í honum.
  • “Óþekkar pönnukökur” eru pönnukökur sem voru bakaðar heima hjá Öglu og festust saman á pönnunni. “Óþekkur pottur” var pottur sem sauð upp úr.

Annars er hann búinn að vera mikið á róló og legestue meðan við bíðum eftir að hann fái leikskólapláss. Legestue er svona hús með dóti þar sem foreldrar geta komið með börnin sín til að leika og hitta önnur börn, og er mjög gott einmitt meðan maður bíður eftir leikskóla. Hann fer yfirleitt þangað tvisvar í viku og svo á róló alla daga. Hann er líka orðinn aðeins ófeimnari við að byrja að tala við hin börnin og er alltaf mjög glaður þegar þau svara honum og kemur og segir okkur “Stelpan sagði hæ við mig”. Hann hefur líka sterkar skoðanir á mat, melóna var “besti matur í heimi” en þegar við spurðum hvort hún væri betri en hamborgari var svarið samt “neeeeeiiiiii”. Vonandi fer hann svo bráðum að komast inn á leikskóla, þá fer hann örugglega að koma með nokkra góða danska frasa hérna heima 🙂