Sumarfrí

Jæja lítið að frétta nema að Daníel er í pössun hjá Hrefnu ömmu í þessari viku og svo er hann líka farinn að labba síðan um helgina. Nýjar myndir komnar inn.

Ofnæmislæknir

Humm, þetta er farið að hljóma dáldið eins og sjúkraskýrsla þessi síða. Engu að síður þá er þetta bara eins og þetta er og í raun eina slúðrið sem við höfum uppá að bjóða 😎

Við fórum til Sigurveigar barna- og ofnæmislæknis í dag. Hún gerði ofnæmispróf á Daníel og það kom í ljós að hann er ekki með neitt fæðuofnæmi, allavegana ekki þessar algengustu tegundir. Okkur létti mikið en… afhverju er hann þá með svona slæmt exem? Jú, það hittir bara þannig á að Daníel er með slæmt barnaexem sem vonandi eldist af honum. Sigurveig gaf okkur mörg góð ráð sem við munum fylgja og svo eigum við tíma hjá henni aftur eftir mánuð. Við fengum líka nýtt sterakrem sem er vægara en það sem við vorum með fyrir. Það er greinilegt að þessi áburður sem við erum búin að vera bera á strákinn er of sterkur fyrir ungbörn. Ég hugsa til þess með hryllingi að við kláruðum næstum því flöskuna en maður treystir auðvitað á það að þessir læknar viti best 🙁 Við eigum líka að halda áfram að gefa honum ofnæmislyfið vegna þess að það er kláðastillandi og það fylgir mikill kláði exemi. Svo þegar maður klórar sér þá espir maður húðina og exemið þannig að þetta verður vítahringur. Nóg um það í bili.

Veðurguðirnir eru hættir að vera í fýlu og farnir að brosa við okkur loksins, loksins! Við erum búin að nýta okkur þetta góða veður og erum búin að fara niður á tjörn, spóka okkur í bænum og fara á róló. Vonandi heldur þetta áfram því manni veitir sko ekkert af smá sól á kroppinn. Ég fer svo í sumarfrí 1.júlí og þá er aldrei að vita nema að við Daníel leggjum land undir fót og skreppum kannski eitthvað með Ársæli afa. Einar fær ekki að koma með þar sem hann er búinn að vera svo óþekkur! Nei, bara djók. Við Einar getum því miður ekki tekið neitt sumarfrí saman í sumar þar sem Inga dagmamma tekur 2 mánuði í sumarfrí og ég á ekkert frí inni og verð að taka launalaust. Við skiptum því þessum 2 mánuðum á milli okkar og svo ætlar hún Hrefna amma að vera svo góð að hlaupa í skarðið inn á milli (grunar að hún sé alsæl með það 🙂 )

Að lokum viljum við óska Jökli afmælisbarni til hamingju með fyrsta afmælisdaginn í dag og við hlökkum til að sjá þig og pabba og mömmu á sunnudaginn 🙂

Læknavaktin…

Daníel er búinn að fara á 2 penicillin kúra útaf eyrnabólgu núna síðustu vikur. Seinni kúrinn var að klárast fyrir 3 dögum en við tókum eftir því í dag að hann var frekar pirraður og var svolítið að toga í eyrun á sér þannig að okkur datt í hug að eyrnabólgan væri komin enn og aftur. Við ákváðum að fara á læknavaktina til að vera viss, enda vill maður að hann fái meðferð sem fyrst ef eitthvað er að. Við höfum farið þarna nokkrum sinnum áður og lent á misgóðum læknum, en sá sem við lentum á í þetta sinn var nú eitthvað alveg nýtt. Hann skoðaði eyrun og sagði okkur að það væri væg eyrnabólga komin í annað eyrað. Hann vildi samt ekki vera að gefa meira penicillin því þetta væri rétt eftir síðasta kúr og þetta færi sennilega bara af sjálfu sér, það væri fínt að gefa honum bara verkjalyf. Síðan sagði hann okkur þessa stórkostlega upplífgandi og hughreystandi sögu:

Þegar strákurinn minn var svona tveggja ára þá var hann einu sinni ferlega pirraður eitthvað. Þetta var í miðju matarboði og ég var bara pirraður á stráknum og fannst hann vera óþekkur [ok, barninu leið illa og þú varst pirraður á því, gott mál]. Síðan að lokum neyddi konan mín mig til að líta á hann og þá sá ég að hann var með bullandi eyrnabólgu. Ég nennti ekki að fara og ná í meðal fyrir hann því þetta var um kvöld og það mátti alveg bíða til morguns þannig að við gáfum honum bara verkjalyf og létum hann fara að sofa. [Nú bjóst ég við að sagan myndi enda á að allt yrði í lagi, þannig að ég yrði rólegri um Daníel. En nei… ]. Síðan um morguninn, þá bara SPRAKK HLJÓÐHIMNAN Á HONUM YFIR ALLAN KODDANN!

Hver var tilgangurinn með því að segja okkur þessa sögu?!? Átti þetta að láta okkur líða betur? Þetta var versta mögulega saga sem hann hefði getað sagt okkur! Í framtíðinni ætlum við a.m.k. bara að fara á barnalæknavaktina í Domus Medica, höfum farið þar einu sinni og þar var mjög fínn læknir sem var ekki að segja neinar hryllingssögur!

AMMÆLI!!!

Jæja þá er litli strákurinn okkar orðinn 1árs! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt :-o. Við ætlum að halda uppá daginn með því að kíkja aðeins niður á tjörn eftir vinnu og gefa Bra Bra brauð og svo er það bara ammælisveisla heima í kvöld fyrir familíuna (Alda, þín tertusneið verður send með Fedex). Reyndar verður haldin sameiginleg ammælisveisla fyrir Magneu (lang-ömmu Daníels) og Daníel þar sem þau fæddust sama dag nema með 83 ára millibili 🙂

Daníel er allur orðinn hressari og farinn að hamast mikið, eða öllu heldur ennþá meira. Hann á eftir að una sér vel í boðinu í kvöld enda ELSKAR hann að fá svona mikla athygli, þá fer hann alveg á kostum 😉

Afmæliskaka

Meiri veikindi

Svo virðist vera sem sýklalyfjakúrinn sem Daníel fór á útaf eyrnabólgunni hafi ekki virkað. Fórum aftur með hann í fyrrakvöld á Læknavaktina af því að hann var svo órólegur og þá kom í ljós þessi mikla eyrnabólga í öðru eyranu sem var enn til staðar. Þannig að læknirinn lét hann á annan sterkari sýklalyfjakúr. Svo er Daníel búinn að vera með furðuleg útbrot á búknum sem hann klægjar alveg svakalega í og við fórum á barnalæknavaktina í gær útaf því og svo er exemið líka alltaf að versna. Lækninn grunaði að þetta væri kannski ofnæmi útaf sýklalyfjunum og ekki getur hann hætt á þeim því eyrnabólgan var þá búin að taka sig aftur uppí hinu eyranu líka og bæði mjög slæm. Hann sagði okkur líka að hætta að nota þetta sterka exsem krem því þetta væri sennilega ekki þetta hefðbundna barnaexsem. Læknirinn lét Daníel á kláðastillandi ofnæmislyf. Þannig að núna er Daníel á stekum sýklalyfjum, sljóvgandi ofnæmislyfi og ofan á allt annað fær hann verkjastillandi stíla meðan að sýklalyfin eru að byrja að verka. Litla skinnið, eins og það sé ekki nóg að vera veikur og með öll þessi óþægindi þá þarf hann að þola á láta sprauta uppí sig tveim tegundum af lyfjum og svo fá stíla 🙁

Ég pantaði tíma hjá astma- og ofnæmislækni fyrir Daníel en hann kemst ekki að fyrr en 19. júlí í almennt ofnæmispróf og svo ekki fyrr en í HAUST í peniciline próf! Ég fór líka í dag í Jurtaapótekið og keypti eyrnaolíu sem á að vera rosalega góð fyrir eyrnabólgu og græðandi exem-krem. Á þessu stigi er ég til í að prófa hvað sem er bara að litla stráknum okkar batni sem fyrst.

Er þetta í alvörunni að virka….?

Við þorum varla að vona en svefnþjálfunin virðist vera farin að virka. Við erum búin að sitja inni hjá Daníel síðustu 4-5 kvöld meðan að hann er að sofna. Ég er alltaf jafn hissa á úthaldinu hjá litla gæjanum en það hefur tekið alveg rúman klukkutíma að sofna. Kannski ekki skrítið því það rosa stuð að hafa pabba eða mömmu sitjandi hjá sér og starandi uppí loftið á hverju einasta kvöldi. Í kvöld lagði ég hann í rúmið og þurfti svo aðeins að skreppa fram en svo þegar ég heyrði ekkert í honum þá ákvað ég að fara ekki aftur inn. Nema hvað að svo sofnar hann bara eftir smá brölt og ekkert mál. Getur verið að svefnþjálfunin sé farin að virka svona fljótt?

Við getum ekkert annað gert en vonað það besta. Næsta mál á dagskrá er að fá Daníel til að lúlla lengur ! á morgnana…… to be continued…

Eyrnabólga var það…

Eftir að Daníel var búinn að vera svona órólegur og með hita annað slagið þá fór ég með hann á læknavaktina á laugardagseftirmiðdaginn. Það kom í ljós að aumingja greyið er með svæsna eyrnabólgu og þá greinilega búinn að vera með hana í einhvern tíma. Annað hvort hefur þetta verið einkennalaus eyrnabólga eins og ég hef heyrt um eða þá að greyið er búin að finna fyrir þessu en kannski með háan sársaukaþröskuld. Bólurnar á tungunni reyndust vera einhver veirusýking sem átti bara að ganga yfir af sjálfu sér og læknirinn hafði engar áhyggjur af því.

Við Einar erum búin að ákveða að byrja aftur með svefnþjálfun. Urðum okkur úti um bókina Draumaland sem er eftir hjúkrunarfræðinginn sem vinnur við svefnráðgjöf á göngudeild barna. Þar má finna mörg góð ráð og stundum finnst okkur eins og höfundurinn sé að segja frá okkar reynsluheimi! Það er aðalega tvennt sem er að valda vandanum en ég nenni ekki að þylja þetta upp hérna. Við erum búin að vera að fylgja ráðunum núna í tvö kvöld. Þetta er svo erfitt, en ég veit að það mun borga sig til lengri tíma litið.

Endalausar framfarir

Daníel er farinn að biðja um áfyllingar á mjólkina sína. Þetta gerist þannig að hann kemur með málið sitt inní eldhús (heldur á því eins og hundur í munninum) stansar hjá ísskápnum og horfir síðan uppá mann og teygir út höndina með glasinu. Ekki vitlaus strákur þetta, enda er það ástæðan fyrir því að það er komin barnalæsing á ísskápinn!!! Hann er svo svakalega snöggur að læra þessa dagana að maður hefur varla undan að finna uppá nýjum hlutum. Hann hermir eftir okkur villt og galið. Hann talar í símann eða fjarstýringar (þekkir ekki muninn enda mjög svipað ) greiðir sjálfum sér með kambinum og hermir eftir einstaka orðum og stundum jafnvel málrómnum þegar maður er að tala við hann.

Reyndar er Daníel búinn að vera eitthvað slappur í dag. Var með hita á miðvikudaginn og svo aftur í nótt og í dag. Hann var svo þreyttur eftir nóttina að við kúrðum uppí rúmi og sváfum til rúmlega 11 sem er algjört met hjá þessum gæja. Til að toppa þetta þá svaf hann í tæpa 2 tíma í eftirmiðdaginn þannig að það er greinilegt að þessi hiti er að þreyta hann ansi mikið. Vonandi hressist hann sem fyrst.

Nýjar myndir komnar inn!

Flutningar + tanntaka = ÁRANGUR

…eða kannski ekki alveg. Jú, mikið rétt við fluttum um helgina og íbúðin okkar er meira og minna í kössum og svörtum ruslapokum as we speak. Við hittum líka svo vel á að Daníel er að taka sjöttu tönnina sína og er búinn að eiga voðalega mikið bágt um helgina. Fimmta tönnin kom okkur alveg að óvörum þar sem við vorum alltaf að stara á neðrigóminn (þar sem nr.6 er að koma) og svo bara einn daginn: ha, komin tönn þarna líka? Vonandi tekur þetta fljótt af því að hann finnur greinilega mikið til og er með nokkrar kommur af og til. Við gáfum honum lítinn stíl í gær og það sló á hitann en ekki svo mikið á óþægindin því miður. Svo var litli anginn alveg lystarlaus í gærkvöldi og vildi ekkert borða sama hvað ég bauð honum. Hann þambaði hins vegar mjólk eins og hann ætti lífið að leysa og að lokum tókst mér að koma í hann ískaldri ab-mjólk með mauki. Þetta hefur sennilega verið hitinn, maður þekkir þetta sjálfur þegar maður er slappur.

Daníel líst held ég samt nokkuð vel á íbúðina og hann er duglegur að fara í könnunarleiðangra enda mikið nýtt til að kanna og skoða. Hann er samt ekki eins hrifinn af sólskálanum eins og ég átti von á en hann á sennilega bara eftir að fatta þetta aðeins betur. Ég sé líka að honum finnst rosa sport ef maður fer út einu megin í eldhúsinu og kemur inn hinu megin. Eitt af okkar fyrstu verkum var að troða öryggisdóti í allar innstungurnar og setja horn á borðið og læsingar á skúffurnar. Það er nefnilega ótrúlegt hvað hann hefur mikinn á huga á þessu allt í einu núna. Restin af vikunni fer í að taka uppúr kössum og koma okkur fyrir en okkur líður öllum rosalega vel í íbúðinni og svo er ekki verra að eiga Völu, Hjalta og Jökul sem nágranna!

Kojak

Daníel sköllótturDaníel er sköllóttur! Við ákváðum að raka hárlufsurnar af honum í þeirri von að hárið muni spretta jafnt og þétt. Litli gaurinn minnir óneitanlega á Kojak en nú þegar, nokkrum dögum eftir klippinguna er hárið byrjað að spretta. Hann verður orðinn fínn á afmælinu sínu. Þessi aðgerð okkar hefur vakið misjöfn viðbrögð og hefur m.a. amma Daníels efast stórlega um dómgreind okkar 😀