Vor og viðsnúningur

Þá er Ellen María búin að fara í fyrstu flugferðina sína og líkaði það svo svakalega vel að hún vildi sem minnst sofa báðar leiðir, móður sinni til mikillar gleði. Afi og amma á Há-ó voru að vonum rosalega glöð að sjá litlu og fyrstu ömmustelpuna sína og tóku varla eftir burðarfólkinu sem fylgdi með (ég og Tommi). Það var svo mikið dáðst að stelpunni en allt í einu kviknaði ljós og við vorum boðin velkomin líka 😀 Því miður var ég veik mest alla ferðina og Ellen skynjaði þreytuna í mér og eins breytt umhverfi og svaf því lítið sem ekkert. Það breyttist hins vegar um leið og við komum heim.

Núna er “venjulegur” dagur hjá okkur ca. svona: Förum á fætur kl. 7 og höfum okkur til. Síðan fer Ellen í vagninn kl.08.10 og við fylgjum Daníel á leikskólann. Svo er Ellen sett í garðinn í vagninum þegar við komum heim og sefur þar til ca.11. Svo tekur hún hálftíma til klukkutímalúr inni og svo fer hún aftur út í vagn ca.14 og þar til við sækjum Daníel í leikskólann hálf 4. Þessir lúrar ganga auðvitað misvel og Ellen viðist, eins og flest önnur börn, finna á sér hvenær er óhenntugast fyrir okkur foreldrana að hún vakni t.d. alltaf þegar ég sest við matarborðið.

Ellen María er alltaf meira og meira að skoða allt í kringum sig og já meira en bara veggmyndirnar. Hún fylgir okkur eftir þegar við löbbum framhjá henni og það nýjasta er að hún er byjuð að snúa sér. Hún byrjaði á því að snúa sér af bakinu yfir á magann í fyrradag en það var reyndar smá svindl því hún var uppí hjónarúmi. Svo fór ég að prófa að láta hana velta sér af maganum yfir á bakið og þökk sé risahausnum, sem hún erfið frá ónefndu foreldri, gengur það mjög vel. Hún er líka orðin rosalega góð í að liggja á maganum og hætta að tryllast þegar ég legga hana á hann.

Daníel er búinn að vera að reyna hressilega á uppeldishæfileika okkar og þolinmæði síðastliðna daga. Hann er búinn að vera gjöramlega á haus og að gera okkur klikkuð. Það eru allir að segja okkur að hann sé að láta reyna á mörkin og bla bla bla já og honum gengur það bara svona svakalega vel. Það er ótrúlegt hvað maður leyfir honum að tjúna sig mikið upp og hann gjörsamlega gerir í þess t.d. með því að svara okkur ekki og segjast líka vel við að vera í skammarkróknum, hverju svara maður þá??? Hann er reyndar búinn að vera að þjást af þrálátri eyrnabólgu greyið og fékk loksins rör í eyrun í gær. Það var mjög óhuggnalegt að sjá hann svæfðan og líka þegar hann var að vakna því hann var svo ólíkur sjálfum sér en samt fljótur að jafna sig. Fljótlega eftir aðgerðina sagði hann “mamm, þú talar svo  hátt!” og svo beint á eftir “ég heyri svo hátt”. Vonandi að honum líði betur og það kæmi mér ekki á óvart að þessi veikindi séu búin að vera að hafa áhrif á skapið hjá honum. Núna bind ég sterkar vonir við að við getum farið að vinna í því að leiðrétta talið hjá honum enda er hann farinn tala svo óskýrt að það erum bara við foreldrarnir sem skiljum hann.

Ellen 10 vikna

Ellen er 10 vikna í dag. Hún heldur áfram að stækka og stækka, var 61 cm á lengd og 5.8 kg í læknisskoðun í vikunni. Hún fór líka til læknis til að láta tékka á mjöðmunum um daginn, þegar hún fæddist fannst lækninum að þær væru kannski aðeins lausar, en í læknisskoðuninni núna kom í ljós að mjaðmirnar eru í fínu lagi. Hún er farin að hjala á fullu og brosa, lætur stundum heyra vel í sér þegar hún er í stuði. Karen og Ellen fóru svo í viku heimsókn til Íslands þar sem Ellen fékk að hitta ömmu sína og báða afa, Tomma frænda og fleiri. Hún er almennt dugleg að sofa og svaf t.d. í þrjá og hálfan tíma úti í vagni í gær.

Daníel er aftur kominn með eyrnabólgu og þarf að fá eyrnadropa tvisvar á dag, sem er alls ekki vinsælt. Hann heyrir ekki mjög vel og á tíma hjá eyrnalækni núna í næstu viku. Þessi tími var pantaður fyrir mánuði síðan þegar hann var nýbúinn að klára síðustu eyrnabólgu, þá sagði læknirinn að ef það væri ennþá vökvi í eyrunum næst myndi hann fá rör í eyrun. Fyrst hann er kominn aftur með eyrnabólgu þá held ég að það sé nú 100 % öruggt að það verði gert. Við vonum að það hjálpi svo þetta eyrnavesen hætti að koma upp aftur og aftur. Annars er hann mikið að reyna á þolinmæði foreldrana þessa dagana, sífellt að ögra og sjá hvað hann kemst upp með, það eru t.d. búin að vera nokkur grátköst í dag. Hvenær klárast þetta tímabil eiginlega…?

Fyrstu vikurnar hjá Ellen

Ellen litla hefur sofið eins og engill síðan hún fæddist og vaknar bara til að drekka og láta skipta á sér. Við höfum því enn sem komið er lítið fengið að sjá hana vakandi en lærðum það síðast að láta börnin sofa ef þau sofa. Hjúkrunarfræðingurinn Pernille kom í heimavitjun þegar Ellen var 9 daga og þá var hún orðin 4,3 kg eða semsagt búin að þyngjast um 400 gr! Stelpan kom vel út úr skoðuninni og sagði Pernille að henni sýndist mjaðmirnar vera búnar að jafna sig. Daníel hefur haldið áfram að vakna á nóttunni grátandi og kom í ljós að hann var með alvarlega eyrnabólgu sem hann fékk sýklalyf við. Það dugði hins vegar ekki og hljóðhimnan sprakk hægra megin að lokum. Hann var veikur samtals í 9 daga og heimavið með okkur Ellen auðvitað allan tímann. Það hefur verið ansi krefjandi að vera heima með bæði börnin en gekk þó þar sem Ellen hefur sofið svo vel allann daginn. Okkur hefur stundum liðið eins og æðra vald sé að reyna að halda Daníel í burtu frá leikskólanum eða mér í burtu frá þægilegu lífi. Daníel var fyrst með hlaupabóluna í 10 daga í desember og svo veikur í aðra viku og daginn sem Ellen fæddist byrjaði hann í jólafríi. Núna í janúar náði hann að fara 5 daga í leikskólann áður en næstu veikindi helltust yfir. Eins og ég elska strákinn minn mikið þá er komið nóg af þessari heimaveru fyrir næsta árið enda takmarkað hvað maður þolir mikið að vera innilokaður með eitt nýfætt og eitt veikt barn.

Ég byrjaði að mæta á mömmumorgnana 13.janúar og það gengur vel að smala inn mömmum í  hópinn. Rosalega gott að eiga eitthvað svona eitt fast stefnumót í viku og drífa sig út og hitta aðrar íslenskar stelpur.

Fyrstu dagarnir og jólin

Við komum heim með litluna okkar 22.des og sem betur fer höfðum við haft vit á því að klára matarinnkaupin fyrir jólin fyrir fæðinguna. Við vorum því bara í þægilegheitunum heima fram að jólum þar sem Daníel var byrjaður í jólafríi í leikskólanum. Daníel var spenntur fyrir litlu systur en átti auðvitað erfitt að skilja að hún væri viðkvæm og þoldi ekki mikið hnoð og pot. Við reyndum samt eftir besta megni að leyfa honum að vera eins mikið með henni og hægt er t.d. með því að leyfa honum að halda á henni í sófanum og kúra smá saman uppí rúmi og svol. Daníel átti samt erfitt með að taka þessum miklu breytingum á heimilislífinu og til að bæta gráu ofan á svart þá var hann í jólafríi þannig að hans venjulega rútína var heldur ekki til staðar. Við reyndum hins vegar að gera það besta úr þessu og halda jákvæðninni án þess þó að leyfa honum að komast upp með allt. Við áttum yndisleg jól saman í rólegheitunum hérna heima á aðfangadag og á jóladag fórum við í hangikjötsveislu til Öglu og Ragga. Ellen lét lítið fyrir sér fara öll jólin enda vaknaði hún bara rétt til að drekka og svo farin aftur að sofa eins og engill.

Heimferðin

Eftir frábæra fæðingu var ég ólm í að komast heim til Daníels því ég fékk samviskubit að  vera ekki heima hjá honum og hann ekki alveg viss hvað væri í gangi. Við Einar ákváðum þó að lokum að ég myndi gista 2 nætur í friði á spítalanum víst það var í boði en hann fór heim eftir eina nótt. Ég sá ekki eftir því enda var þetta eina tækifærið fyrir okkur tvær að kynnast og vera í rólegu umhverfi til að koma brjóstagjöfinni vel í gang. Feðgarnir komu síðan að heimsækja okkur um eftirmiðdaginn 21.des og Daníel var pínu áttavilltur og vissi ekki alveg hvaðan á sig stóð veðrið. Hann var þó spenntur að sjá litlu systur en það voru líka margir aðrir hlutir á spítalanum sem fönguðu athygli hans ekki síður þannig að þessi heimsókn var í styttra lagi. Þeir komu síðan daginn eftir að sækja mig í hádeginu með barnavagninn. Mér fannst tíminn vera endalaust að líða meðan að ég var að bíða eftir þeim til kl.13. Ég saknaði þess að vera heima hjá mér með strákunum mínum þó svo að það var auðvitað yndislegt að vera með litlunni líka. Þeir komu að lokum eftir að ég hringdi til að athuga stöðuna og var stelpunni pakkað í galla sem var ALLTOF stór og svo í vagninn og svo heim með strætó og lest.

Fæðing Ellenar

Jæja, ekki var þetta gabb eins og síðast.

Fyrstu verkir komu um nóttina aðfaranótt laugardagsins 20. desember. Við vorum ekki viss framanaf hvort að þetta væri að fara af stað en til öryggis þá fór Einar í verslunarferð snemma um morguninn. Um 10 leytið var orðið ljóst að fæðingin var að byrja og við hringdum í Öglu systur Einars stuttu seinna og báðum hana um að gera ekki nein plön fyrir daginn. Svo um hádegi var farið að vera 5 mín á milli þannig að við hringdum aftur í hana og báðum hana að koma. Hún var alveg róleg þangað til við sögðum henni hvað væri langt á milli, þá stökk hún af stað á hjólið með símann í hendinni. Við vildum frekar vera í rólegheitunum heima heldur en að fara of snemma á fæðingardeildina. Verkirnir voru þolanlegir og við skreyttum saman jólatréð með Öglu en Daníel hafði smá áhyggjur af mömmu sinni. Uppúr klukkan 2 voru 3-4 mínútur á milli og þá hringdum við á leigubíl.

Leigubílstjórinn var ekkert mjög glaðlegur þegar hann sá Karen og heyrði hvert við vorum að fara – hehe var örugglega hræddur um að vatnið mynda fara í bílnum. Komum á fæðingardeildina rétt um 3 og sett í skoðun, útvíkkunin var þá orðin 7 sem gladdi okkur mjög. Þá ákváðum við að sleppa mænudeyfingu og hinu sem við vorum búin að plana einfaldlega af því að þetta var búið að ganga svo vel og við töldum Karen vel geta þolað framhaldið. Karen fór í sturtu og heitan pott og 2 mínútur yfir 5 fæddist krílið okkar. Einar fékk að kíkja til að sjá hvort kynið það væri og það reyndist vera yndisleg lítil stelpa. Einar klippti svo á naflastrenginn.

Þetta var svo ótrúleg upplifun og svo allt öðruvísi en síðasta fæðing. Okkur fannst við vera við stjórn allan tíman og jákvætt hugarfar og samheldni hafði mikið að segja um hvað þetta gekk vel. Stelpan var vel vakandi þegar hún fæddist og byrjaði að gráta um leið og hún kom út. Hún var 3930g, 53cm og höfuðmál var 37cm, semsagt ívið stærri en ljósmóðirin hafði spáð.

Við gistum bæði á spítalanum fyrstu nóttina. Spítalinn var mjög fínn og mjög vel hugsað um okkur. Daginn fór Einar svo og náði í Daníel og kom með hann í heimsókn að sjá litlu systur. Daníel var ekkert yfir sig hrifinn, en var soldið spenntur og hissa. Einar og Daníel fóru svo heim en Karen og Ellen voru eina nótt í viðbót í góðu yfirlæti á spítalanum.

Ímyndunarleikur

Daníel er mikið í því að ímynda sér hluti núna og er það ýmist hús, bátur, flugvél eða bakarí. Þetta er mun vinsælla en allt dótið hans til samans og það mætti sennilega pakka helmingnum af því saman og henda í geymslu. Þessir leikir eru teknir mjög alvarlega og himinn og jörð farast næstum því ef maður labbar óvart í gegnum lokaða og hvað þá læsta hurð. Þannig að ef við foreldrarnir erum orðnir dáldið leiðir á því að sitja inní húsin með Daníel þá verðum við eiginlega að fá hann til að opna með lyklinum og hleypa okkur út ef við ætlum að halda honum góðum. Um daginn var hann meira að segja farinn að tala við ímyndaða stelpu sem hann var að neita að baka snúða fyrir….. humm hvenær ætti maður að fara að hafa áhyggjur? Nei, við höfum svo sem engar áhyggjur af þessu því það er bara gaman að fylgjast með þessu öllu saman.

Stjórnsemi

Daníel er farinn að vera meira og meira “manipulative” eftir því sem á líður og er stöðugt að reyna að sjá hvað hann kemst langt með okkur foreldrana, sem er yfirleitt mjög stutt! Þessi hegðun felst í gríðarlegri stjórnsemi og miklum sjálfstæðisvilja – sumir myndu kannski segja óþekkt en við sjáum greinilegan mun á þessari hegðun og venjulegri óþekkt.  Daníel vill hafa lokaorðið og reynir að stjórna okkur eða gefa okkur fyrirmæli líkt og við gerum við hann, munurinn er bara að sumir hérna eru “fullorðna fólkið” og aðrir ekki. Stundum er þetta bráðskemmtilegt og maður þarf að snúa sér undan til að láta hann ekki sjá mann hlægja en stundum er þetta svo pirrandi að maður lokar bara augunum og þarf að minna sig á að barnið er bara 3gja ára! Svo núna um helgina fór gaurinn í pössun til Öglu og Ragga og við vöruðum þau að sjálfsögðu við þessari hegðun og sögðum þeim að láta ekki vaða yfir sig. Þegar við komum að sækja Daníel í dag þá fengum við að heyra allt um hvað gekk á. Daníel fékk að stjórna hver drakk hvað á heimilinu og hver borðaði hvað. Hann vaknaði 20 mín í 6 um morguninn og tókst að draga Öglu frammúr. Hann fékk að hafa klósettpappírgjörning inní stofu hjá þeim, draga þau út á róló, fékk ís og plataði þau að lokum til að kaupa eitthvað dót handa sér úr sjálfsala.  Þetta er allt eitthvað sem við könnumst við úr daglegu lífi en látum sjaldna eftir honum en það er gott að hann fékk allavegna útrás á þessu öllu hjá frænku sinni, kannski fáum við smá pásu í staðinn.

Annars er Daníel bara mjög sáttur við leikskólann sinn og finnst gaman að fara þangað á hverjum degi. Við erum að reyna að kenna honum meiri dönsku sem gengur missvel enda er hann missmóttækilegur fyrir þessu og athyglin ekki mikil. Við keyptum því nokkrar danskar bækur og erum að reyna að lesa þær fyrir hann á döns-íslensku og hann er alveg að ná nokkrum orðum. Á föstudaginn á síðan að vera smá veisla í leikskólanum til fagna nýju leiktæki á lóðinni. Það eiga að vera kökur og grillaðar pylsur og Daníel er mjög spenntur líkt og við foreldranir því þarna fáum við loksins tækifæri til að hitta vini hans Daníels og foreldra þeirra.

Litla músin

Ég set þetta hérna inn þar sem þetta er líka dagbókin okkar um Daníel. Efast um að þetta hafi mikið skemmtanagildi fyrir aðra en það er gaman að eiga þetta því maður er svooooo fljótur að gleyma.

Í morgun vaknaði Daníel fyrir allar aldir eða nánar til tekið kl.6 að staðartíma. Við erum með þá reglu hér á bæ að foreldrar fara ekki framúr rekkju fyrr en kl.7 í fyrsta lagi sama hvað Daníel raular og tautar. Hann er samt ekki vitlaus strákurinn og veit að það eru nokkrir hlutir sem munu koma okkur framúr eins og t.d. að segja “ég þarf að pissa”, eða “ég er svangur”. Við foreldrarnir eru hins vegar ekki heldur svo vitlaus og erum komin með hin ýmsu  mótsvör eins og “farðu bara sjálfur á koppinn” eða “það er ekki kominn matartími”. Þá kemur Daníel með krók á móti bragði eins og að biðja okkur um að tæma koppinn og við vitum að hann er hreinlætisfrík og ef við gerum það ekki þá mun hann gera það sjálfur!  Nú í morgun var hann hins vegar komin með nýja stratigíu og kallaði hátt og snjallt “Pabbi og mamma, það er mús hérna!” Við gátum að sjálfsögðu ekki hunsað þetta þar sem Daníel bendir oft réttilega á hluti eins og kónuglær eða annað. Þegar Eianr er loksins kominn framúr spyr hann hvar músin sé, hvar hann hafi séð hana hlaupa. Svarið frá Daníel lét ekki á sér standa “Hún borðaði ostinn sinn og fór síðan út að leika!”