Daníel kom uppí rúm til mín í nótt eins og venjulega. Svo vekur útvarpsvekjaraklukkan okkur kl. 06:40 og ég snooza. Svo kveikir hún aftur á sér 10 mínútum seinna og þá teygir Daníel sig í klukkuna og snoozar! Ég var sem betur fer vakandi (annars hefði farið illa) og lít á hann, þá segir minn: Mamma og Daníel lúlla meira 😀 Litli kallinn! Hvað ætli komi næst? Ætli hann verði búinn að hita fyrir mig kaffi þegar ég vakna á morgun?
Author Archives: karen
Málgleði
Hann Daníel er alveg ótrúlegur og þroskinn þeysist áfram. Daníel er farin að tengja mikið orðin saman sem hann kann og út koma oft ótrúlega fyndnar meiningar.
Eins og sumir vita þá á ég það til að vera dáldið stjórnsöm og meira að segja afskiptasöm á köflum myndu sumir segja. Hann Daníel hefur kannski ekki erft frá mér neitt útlitstengt en hann hefur svo sannarlega marga skapgerðarþætti sem koma beint frá mér! Hann er farinn að vera dáldið frekur og lætur ganga mikið á eftir sér. Auk þess er hann farinn að skipa fólki mikið fyrir. Hann á það til að fara út á svalir ef krakkar eru að leika sér í garðinum og kalla (öskra) yfir þá alskyns skipanir sem hvorki þau né við skiljum. Það eina sem við skiljum er að hann bannar þeim að gera þetta eða hitt og vill oft á tíðum að þau hætti einhverju! Svo í gær þá tók hann pabba sinn algjörlega fyrir. Þetta var semsagt um eftirmiðdaginn og það var opið útá svalir þar sem við erum með borð og stóla.
D: pabbi út
E: nei ekki núna Daníel
D: út núna!
E: ok
D: pabbi sitja
E: (gáttaður sest)
D: pabbi ekki sitja!
E: (yfir sig hrifinn af setningunum) ok og stendur upp og fer inn
D: NEI! Pabbi út!
Þarna er ég farin að veltast úr hlátri inní eldhúsi. Þetta er alveg ótrúlegt að um leið og hann er farinn að geta tjáð sig eitthvað þá byrjar hann á að skipa okkur fyrir hægri vinstri! Greinilega sonur minn!
Ég er voðalega hissa á þessu skyndilega tali því þetta gerðist næstum því allt á bara 1-2 dögum að hann fattaði að tengja þetta saman. Hann kann fleiri fleiri orð en þarna loksins fattaði hann hvað hann ætti að gera, alveg eins og þegar maður lærir að lesa… þetta bara allt í einu smellur!
Í morgun var hann síðan að tjá sig um það að hann vildi ekki fara til dagmömmunnar heldur vera heima að kúra. Getur einhver ímyndað sér eitthvað betra en að vera heima með barninu sínu og kúra bara undir teppi og hafa það huggó? Ekki ég allavegana þannig að ég þurfti að taka á öllu mínu til að neita honum um þetta og skella honum beint í fötin. En núna um leið og Daníel er byrjaður að tala þá er hann farinn að gabba mig enn meira. Áðan vorum við að fara í bað. Þá segir minn allt í einu “Daníel kúka”. Ég auðvitað hendist af stað og kippi honum blautum uppúr og vonast eftir fyrstu koppaferðinni. En allt kemur fyrir ekki og Daníel viðurkennir að hann þurfti ekki að kúka! Skamm skamm Daníel fyrir að gabba mömmu svona þannig að uppskeran var aðeins rennandi blautt gólf.
Þetta er aðalmaðurinn!
Það er fátt annað sem kemst að þessa dagana en Bubbi byggir. Það eru sama hvort það eru bækurnar eða teiknimyndirnar, allt er þetta jafn skemmtilegt!
Leikskóli og svefn
Daníel er alltaf að verða skemmtilegri og skemmtilegri með hverjum deginum. Það er alltaf að bætast við orðaforðann og skilningurinn er orðinn mjög góður. Við fengum tilkynningu fyrir páska um að eftir Daníel biði pláss á leikskóla og erum við Einar að fara að kíkja á leikskólann á mánudaginn næsta. Mér tókst víst að klúðra aðeins leikskólaumsókn Daníels og sótti ég um Hamraborg í staðinn fyrir Klettaborg. Maður hefði haldið að Hamraborg væri í Hamrahverfi en svo er víst ekki heldur er Hamraborg í Grænuhlíð í Hlíðahverfi (sennilega eitthvað tengt við Hamrahíð?). En allavegana þá er Daníel semsagt kominn með pláss þarna sem er svo sem allt í lagi. Ég nenni varla að vera að standa í því að breyta þessu þar sem þetta er hvort sem er í leiðinni í vinnuna til mín og þar sem Daníel byrjar ekki á leikskólanum fyrr en Einar verður farinn út þá fellur það hvort sem er í minn hlut að sjá um að alla keyrslu til og frá.
Daníel virðist hafa farið mjög mikið fram í svefntækni sinni við að fá að vera í pössun hjá ömmu og afa meðan að við vorum í Amsterdam. Ég hef aldrei vitað til þess að hann hafi sofið eins vel og hann gerir núna. Hann byrjar á því að sofna í sínu herbergi og síðan fljótlega uppúr miðnætti kemur hann yfir til okkar. Hann kemur alltaf mín megin og vekur mig og segir “kúúúúúúúraaa….mamma kúúúúúúraaaaaaa” þá tek ég hann yfirleitt hálfsofandi uppí rúm til mín með einu handtaki. Þegar hann kemur uppí þá virkilega SEFUR hann! Ekki þetta endalausa brölt eins og maður er svo vanur. Þetta er búið að ganga svona alla vikuna og ég ætla varla að trúa þessu. Það er ekki einu sinni hægt að treysta á að hann veki okkur tímanleg lengur og þegar klukkan hringir þá vill minn yfirleitt lúlla lengur!!! Ég get varla beðið eftir laugardagsmorguninum, hver veit nema að við fáum öll að lúlla saman til kl.8???
17 mánaða
Nú er Daníel að verða 17 mánaða eftir 10 daga. Hann er alltaf að stækka og læra nýja og nýja hluti. Orðafjöldinn er nú ekki mikill en hann kemur hægt og sígandi t.d. getur hann ómögulega lært að segja afi því hann ruglar því alltaf við aaaa… sem þýðir að vera góður. Þannig að þegar ég bið hann um að segja afi við afa sinn þá byrjar minn alltaf að strjúka mér um kinnina. En þó að orðafjöldinn sé ekki mikill þá skilur hann meira en mann grunar. Hann skilur mig, þó svo að hann hlýði ekki alltaf, þegar ég bið hann að láta eitthvað aftur á sinn stað eða koma með eitthvað til mín eða þegar ég bið hann um að setja alla kubbana sína í skúffuna aftur.
Um daginn vorum við að taka herbergið hjá litla gaurnum í gegn og nú er það orðið svaka flott. Fyrir og eftir myndir eru í nýjasta albúminu. Daníel er mjög ánægður með breytinguna og er farinn að vera mikið í herberginu sínu og oft finnst honum gaman að sitja við borðið sitt og skoða myndabækur. Læt þetta duga í bili. 😉
Tíminn líður hratt…
Loksins er komið fullt af nýjum myndum í albúmið undir Ágúst 2006. Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Daníel er núna búinn að vera síðustu tvær vikurnar með mér í sumarfríi og við erum búin að hafa það rosalega fínt. Í síðustu viku var rosalega gott verður fyrripart vikunnar og þá vorum við mikið úti að leika en núna seinni vikuna er búið að vera frekar blautt. Í húsinu okkar búa tveir kisar og Daníel er rosalega hrifinn af þeim og stundum leyfir útikisinn okkur að klappa sér. Daníel er orðinn mjög laginn og blíður við Simba og ég þarf bara að segja “vera aaaa við kisa” ef hann gleymir sér og þá áttar hann sig strax. Kannski hefur hann erft það frá mér að vera svona hrifinn af dýrunum.
Svo er Daníel alveg þvílíkt duglegur að læra nýja hluti. Hann er búinn að læra að klifra uppá alla skapaða hluti og meira að segja uppí rúm en hann er ekki alveg eins duglegur að fara niður aftur, en þetta er allt að koma. Svo er hann orðinn svo duglegur að labba útum allt og líka á grasi og ósléttu og meira að segja farinn að hlaupa smá! Maður hefur varla undan að hlaupa um á eftir honum og honum finnst alveg þvílíkt hallærislegt ef maður reynir að halda í höndina á honum t.d. í Kringlunni.
Daníel er líka búinn að læra fullt af nýjum orðum eins og; nei, Dani (Danni), glug (gluggi), boti (bolti), disi (kisi), vumm (brummi) og bíbí og svo er það dudda sem á við um allt sem hann bendir á og vill fá í hendurnar.
Sumarfrí
Jæja lítið að frétta nema að Daníel er í pössun hjá Hrefnu ömmu í þessari viku og svo er hann líka farinn að labba síðan um helgina. Nýjar myndir komnar inn.
Ofnæmislæknir
Humm, þetta er farið að hljóma dáldið eins og sjúkraskýrsla þessi síða. Engu að síður þá er þetta bara eins og þetta er og í raun eina slúðrið sem við höfum uppá að bjóða 😎
Við fórum til Sigurveigar barna- og ofnæmislæknis í dag. Hún gerði ofnæmispróf á Daníel og það kom í ljós að hann er ekki með neitt fæðuofnæmi, allavegana ekki þessar algengustu tegundir. Okkur létti mikið en… afhverju er hann þá með svona slæmt exem? Jú, það hittir bara þannig á að Daníel er með slæmt barnaexem sem vonandi eldist af honum. Sigurveig gaf okkur mörg góð ráð sem við munum fylgja og svo eigum við tíma hjá henni aftur eftir mánuð. Við fengum líka nýtt sterakrem sem er vægara en það sem við vorum með fyrir. Það er greinilegt að þessi áburður sem við erum búin að vera bera á strákinn er of sterkur fyrir ungbörn. Ég hugsa til þess með hryllingi að við kláruðum næstum því flöskuna en maður treystir auðvitað á það að þessir læknar viti best 🙁 Við eigum líka að halda áfram að gefa honum ofnæmislyfið vegna þess að það er kláðastillandi og það fylgir mikill kláði exemi. Svo þegar maður klórar sér þá espir maður húðina og exemið þannig að þetta verður vítahringur. Nóg um það í bili.
Veðurguðirnir eru hættir að vera í fýlu og farnir að brosa við okkur loksins, loksins! Við erum búin að nýta okkur þetta góða veður og erum búin að fara niður á tjörn, spóka okkur í bænum og fara á róló. Vonandi heldur þetta áfram því manni veitir sko ekkert af smá sól á kroppinn. Ég fer svo í sumarfrí 1.júlí og þá er aldrei að vita nema að við Daníel leggjum land undir fót og skreppum kannski eitthvað með Ársæli afa. Einar fær ekki að koma með þar sem hann er búinn að vera svo óþekkur! Nei, bara djók. Við Einar getum því miður ekki tekið neitt sumarfrí saman í sumar þar sem Inga dagmamma tekur 2 mánuði í sumarfrí og ég á ekkert frí inni og verð að taka launalaust. Við skiptum því þessum 2 mánuðum á milli okkar og svo ætlar hún Hrefna amma að vera svo góð að hlaupa í skarðið inn á milli (grunar að hún sé alsæl með það 🙂 )
Að lokum viljum við óska Jökli afmælisbarni til hamingju með fyrsta afmælisdaginn í dag og við hlökkum til að sjá þig og pabba og mömmu á sunnudaginn 🙂
AMMÆLI!!!
Jæja þá er litli strákurinn okkar orðinn 1árs! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt :-o. Við ætlum að halda uppá daginn með því að kíkja aðeins niður á tjörn eftir vinnu og gefa Bra Bra brauð og svo er það bara ammælisveisla heima í kvöld fyrir familíuna (Alda, þín tertusneið verður send með Fedex). Reyndar verður haldin sameiginleg ammælisveisla fyrir Magneu (lang-ömmu Daníels) og Daníel þar sem þau fæddust sama dag nema með 83 ára millibili 🙂
Daníel er allur orðinn hressari og farinn að hamast mikið, eða öllu heldur ennþá meira. Hann á eftir að una sér vel í boðinu í kvöld enda ELSKAR hann að fá svona mikla athygli, þá fer hann alveg á kostum 😉
Meiri veikindi
Svo virðist vera sem sýklalyfjakúrinn sem Daníel fór á útaf eyrnabólgunni hafi ekki virkað. Fórum aftur með hann í fyrrakvöld á Læknavaktina af því að hann var svo órólegur og þá kom í ljós þessi mikla eyrnabólga í öðru eyranu sem var enn til staðar. Þannig að læknirinn lét hann á annan sterkari sýklalyfjakúr. Svo er Daníel búinn að vera með furðuleg útbrot á búknum sem hann klægjar alveg svakalega í og við fórum á barnalæknavaktina í gær útaf því og svo er exemið líka alltaf að versna. Lækninn grunaði að þetta væri kannski ofnæmi útaf sýklalyfjunum og ekki getur hann hætt á þeim því eyrnabólgan var þá búin að taka sig aftur uppí hinu eyranu líka og bæði mjög slæm. Hann sagði okkur líka að hætta að nota þetta sterka exsem krem því þetta væri sennilega ekki þetta hefðbundna barnaexsem. Læknirinn lét Daníel á kláðastillandi ofnæmislyf. Þannig að núna er Daníel á stekum sýklalyfjum, sljóvgandi ofnæmislyfi og ofan á allt annað fær hann verkjastillandi stíla meðan að sýklalyfin eru að byrja að verka. Litla skinnið, eins og það sé ekki nóg að vera veikur og með öll þessi óþægindi þá þarf hann að þola á láta sprauta uppí sig tveim tegundum af lyfjum og svo fá stíla 🙁
Ég pantaði tíma hjá astma- og ofnæmislækni fyrir Daníel en hann kemst ekki að fyrr en 19. júlí í almennt ofnæmispróf og svo ekki fyrr en í HAUST í peniciline próf! Ég fór líka í dag í Jurtaapótekið og keypti eyrnaolíu sem á að vera rosalega góð fyrir eyrnabólgu og græðandi exem-krem. Á þessu stigi er ég til í að prófa hvað sem er bara að litla stráknum okkar batni sem fyrst.