Author Archives: karen

Litla skessan okkar

Þetta er það sem við köllum hana Ellen Maríu í daglegu tali. Hún er með svo djúpa og kraftmikla rödd, svo ekki sé talað um frekjusakpinn að ekkert annað nafn er við hæfi. Reyndar finnst mér Ellenar nafnið alltof ljúft fyrir hana og hefðum við betur nefnt hana Bóthildi eða Hallgerði. En hún er nú samt litla skessan okkar og við foreldrarnir höfum endalaust gaman af ákveðninni og frekjuskapnum í henni þó það sé auðvitað líka oft mjög þreytandi. Hún lætur Daníel ekki komast upp með neitt kjaftæði og hann má heldur fara að vara sig ef ekki á að enda illa því litla skessan er farin að slá all hressilega frá sér. Hann lærir þá kannski bara lexíuna á erfiða mátann, fyndið samt að hann láti þetta ofbeldi samt ekki stoppa sig í að stríða henni?

Núna eru kerru mál hérna hæst á dagskrá og þetta er eins og frumskógur. Við erum búin að skera þetta niður í 2 kerrur og nú þarf bara að klára þetta og ákveða en það er hægara sagt en gert.

Daníel er aftur byrjaður í leikskólanum eftir sumarfrí og líkar mjög vel. Eg er enn að bíða eftir bakslaginu og leikskólakennararnir segja að það geti enn verið von á því, sérstaklega núna þegar skógurinn er byrjaður á fullu 3 vikur í senn. Ég er hæst ánægð með Remisen og finnst æði að koma að sækja krakkana þar sem þau eru yfirleitt að leika sér saman einhverstaðar eins og englar – annað en heima!  Við höldum áfram að leiðrétta Daníel í íslenskunni en erum svo stundum kannski ekki mikið betri sjálf. Hann er komin með fystu “kennslubókina” sína og er hún um tölur og hvernig á að skrifa þær og leggja saman. Hann byrjar spenntur og við sitjum yfir þessu með honum. Hann er líka búinn að læra að skrifa nafnið sitt án vandræða.

Ellen er öll að koma til í talinu. Nýjustu orðin eru voffi, gaffall, baby, kjoll, hjóla, lúlla, stígvél, kerra og marg fleira. Í rauninni segir hun flest það sem við kennum henni en aðeins sumt nær að haldast. Hún er orðin líka dugleg að segja nöfn á fólki og skilur greinilega meirihlutann af því sem við segjum. Þar með sagt er hún líka oft viljandi að óhlýðnast og gera það gagnstæða sem við biðjum hana um. Henni finnst mjög gaman að hjálpa til og er algjör lítil húsmóðir í sér. Hún hendir dóti í ruslið (líka óum beðin) og er dugleg að leggja á borð með mér.

Loksins leikskóli!

Ellen María er loksins byrjuð á vöggustofunni Remisen. Aðlögunin kom okkur öllum ánægjulega á óvart og fóstrurnar stönglast á því að hún sé eitt léttasta barn í alögun sem þær hafa sér. Hún hefur greinlega verið svona glorsoltin eftir öðrum félagsskap en mömmu gömlu. Nema hvað að þar sem við eigum svona frábæra stelpu, hafa fóstrurnar sennilega hugsað með sér, hvernig væri þá að fá hitt barnið hingað yfir líka. Þannig að úr varð að Daníel var boðið að flytja yfir á Remisen líka, skógardeildina. Við vorum als ekki viss, sérstaklega í ljósi þess að Daníel er að fara í skólaundirbúning næsta vor. Við hins vegar kynntum hugmyndina fyrir Daníel og Skarphéðinn vinur hans væri þegar á leikskólanum. Daníel kom okkur öllum á óvart og var og er óður í að skipta um leiksóla. Þessi nýji leikskóli er frábær og mikið og gott starf unnið þar. Við bíðum spennt eftir að fá að byrja og það verður vonandi núna 1.júlí.

Gullkorn

Kannast einhver við persónurnar Ókí-dókí og Toyota úr Star Wars? Sonur minn er að reyna að sannfæra mig um þetta og heldur því jafnfram fram að 5 ára vinur hans viti miklu meira um Star Wars en við pabbi hans!

Loftvarnarflautur

Daníel var mjög hissa að heyra loftvarnarflauturnar fara í gang í dag. Áður var hann nýbúinn að missa boltann sinn niður um gætt hérna í húsinu og við fundum hann ekki aftur.

“mamma, kemur þetta hljóð kannski af því að boltinn minn lenti í einhverju efni sem húsið þarf að nota? Kannski?”

Mikil veikindi

Ellen María er búin að vera mikið veik. Fyrir 3 vikum vorum við tilneydd að fara með þau bæði á læknavaktina. Daníel með bráðaeyrnabólgu og Ellen með eyrnabólgu og lungnabólgu. Daníel hefur jafnað sig án vandræða en Ellen hefur verið seinari til. Aftur núna á miðvikudaginn þurftum við að fara til læknsi vegna hita og þá kom í ljós að lungnabólgan var búin að taka sig upp aftur. Fengum breiðvirkari lyf handa henni sem átti bara að gefa í 3 daga. Lyfi virðasat ekki vera að slá á lungnabólguna og þurftum við að kalla á lækni í nótt vegna hita og öndunarerfiðleika. Hann sagði að lungnabólgan virðist ekki stafa af bakteríu heldur vírus. Hann sagði að hún ætti að geta unnið bug á þessu sjálf en ef hitinn heldur áfram eða hún verður sljó þá þyrfti um við að kíkja með hana niður á spítala.

Við erum að vonast að hún braggist fljótt en það er augljóst að þessi langvinnu veikindi eru búin að taka sinn toll og hún er orðin mjög þreytt. Hún fær hita daglega en er hress þess á milli og fær matarlyst. Veikindin eru auðvitað ekki síður erfið fyrir okkur þar sem jþað er erfitt að horfa uppá stelpuna  svona vansæla og svenflausar nætur eru aftur orðnar að vana hér á bæ.

Framfarir í orðaforða

Helstu framfarir í orðaforða hjá Ellen.

Hoppa, pabbi (mjög skýrt), gó (skór), lita (lyfta), gala (galli), mee (meira), de (þetta) og gúga (alvarlegri bleyjuskipti) og buba (bumba)

Þar að auki sækir hún dótið fyrir mig t.d. þegar við erum að fara út og ég bið hana um að sækja skóna og hjálminn og fleira. Hún er svaka hrifin af því að herma eftir öllu sem við gerum og hún setur í þvottavélina með mér og hengir upp þvottinn líka. Svo fórum við í búðina um daginn og litla kellingin var heldur betur dugleg að hjálpa mömmu sinni að setja í köfuna allt sem ég bað um þó hún kunni ekki alveg að takmarka sig við eitt stykki af hverju. Ekki má gleyma því hvað Ellen er dugleg að henda öllu í ruslið þessa dagana. Virðist vera nýtt áhugamál og henni finnst voða gaman ef við látum hana hafa eitthvað og biðjum um að fara með í ruslið. Allt að koma.

Annað nýtt er að við vorum að fjárfesta í nýjum hjólavagni um daginn og krakkarnir eru svo hrifnir af þessu. Ég efast ekki um að við Einar verðum komin í mjög gott form í sumar enda er vagninn sjálfur 13,4 kg + 17 kg (Daníel) + 12 kg (Ellen) + ca.2 kg (matur og föt) eða  ca. 44 kg!!! Núna verða bara teknir æfingartúrar hérna í Kaupmannahöfn því við erum með plön um að fara í lengri helgarferðir í sumar 😀

Mamma er best!

Það er ósjaldan sem ég fæ ástarjátningar frá einkasyninum en í dag fékk ég held ég besta hrósið!

“mamma, þú ert aðeins fallegri en Caroline!”

Caroline er semsagt kærastan hans Daníels af leikskólanum sem við eyddum öllum deginum með í dag. Þetta er sko ekki slæmt hrós og hvað getur maður gert annað en að brosa 😀

Vor í lofti

Jæja litla kellingin byrjaði loksins að labba fyrir ca.3 vikum fyrir alvöru. Gerir allt svo miklu auðveldara. Nú er minnsta málið að skella henni með á hjólið og ekki þurfa að setja hana niður í eitthvað drullusvað heldur bara setja hana niður og hún bara stendur og bíður meðan maður er að ganga frá. Ellen finnst alveg rosalega gaman að fara út að leika og þá sérstaklega að hjóla. Hún kemur oft með skóna til mín og suðar um að fara út og ef hún kemst í gula hjóla hjálminn einhverstaðar þá er næstum engin undankomu leið fyrir mig. Ef ég fer ekki með hana út þá leggst hún við dyrnar og tekur frekjukast. Hún er líka orðin voðalega dugleg að sækja dót fyrir mig eins og bolta og dudduna og skóna. Enn sem komið er talar hún voða líti kannski af því að við erum heldur ekki svo duglega að kenna henni 🙁 En hún kann að segja nöfnin okkar allra, bumba, datt, bolti, kisa og galli ( útgallinn), NEI, o-ó (ef hún dettur eða missir eitthvað) og kúka, annars bullar hún bara eitthvað og þá er giskuleikur hjá mér þar til hún fær það sem hún vill . Þetta er allt sagt auðvitað mjög óskýrt en hún segir hlutina allavegana alltaf eins.

Ellen er búin að sofa rosalega illa rúmlega síðustu 2 vikurnar. Ég fór fljótlega með hana til eyrnalæknis og þá var hún með slæma eyrnabólgu öðru megin. Núna er hún búin með pennicilin skammtinn enn samt vaknar hún þannig að ég reikna með að við kíkjum aftur til læknisins í vikunni.

Daníel er meira afbrýðisamur en hann hefur nokkurntíma verið. Hann reynir á þolmörk okkar frá klukkan 6 á morgnana þegar hann vaknar og til 8 á kvöldin þegar hann loksins sofnar. Við reynum að veita þeim jafna athygli eftir bestu getu en það er auðvitað ekki alltaf hægt. Mér finnst hann taka marga hluti sem við gerum fyrir hann sem sjálfsagða og hann er vanþakklátur út í eitt! pirr! Þannig að í þessari viku hef ég ákveðið að hann fær bara harfagraut í morgunmatinn, ekkert brauð eða weeta-bix eins og hann hefur kannski fengið annanhvern dag. Auk þess er ekkert sjónvarp og ekkert auka í ávaxtanestið eins og apanammi eða hafrakex. Sjáum hvað setur 😀 Hann er auðvitað voað góður inná milli líka, því má ekki gleyma! Ég er búin að kenna honum öll bílamerkin og á leið í og úr leikskólanum þá veljum við okkur sitthvort merkið og teljum. Þetta finnst honum mikið gaman og gaman að spá í bílunum. En núna er vorið komið og þá fer hann bráðum að hjóla í leikskólann aftur.

Annað gullkorn:

“mamma ég elska þig síðustu töluna” – kemur út frá því að við erum búin að ræða stærðir og tölustafi og hvernig alltaf hægt sé að segja hærri tölu 😀 krútt!

Ellen 1.árs

Nú er Ellen loksins orðin 1 árs og við héldum uppá afmælið með því að bjóða Öglu og Ragga og Lindu og Peter í smá köku. Ellen fékk föt og dót í afmælisgjöf. Hún fór líka í 1. árs skoðunina hjá lækninum og fékk sprautuna. Að  þessu sinni sá Einar um að taka stelpuna í skoðunina og var Ellen 10,7 kg og 76 cm.

Sterk lungu!

Ellen er mjög hávær, vægt til orða tekið. Veit ekki hvaðan hún hefur þessi sterku lungu og kröftugu rödd en maður fær óspart að heyra hana t.d. við matarborðið, á skiptiborðinu og þegar krakkarnir eru að leika. Daníel verður meira að segja skelkaður þegar Ellen rekur upp öskur þegar henni er gert eitthvað á móti skapi.

En litla kellingin byrjaði að reisa sig upp sjálf og standa fyrir nokkrum dögum. Þetta finnst henni mjög skemmtilegt og ekki verra þegar við erum öll að hvetja hana áfram með klappi. Þá stendur hún oft upp sjálf og byrjar að klappa líka. Þetta kallar fram gríðarleg afbrýðisköst hjá Daníl sem segir líka sjálfur vel kunna að standa og heimtar að við hrósum honum líka. Í framhaldi af þessu þá erum við að reyna að fá hana til að byrja að labba en Ellen hefur engann áhuga á því og hún vill ekki einu sinni að við reisum hana upp heldur vill hún sjálf gera þetta allt. Það er í gangi veðmál milli okkar Einars hvort hún mun læra að ganga fyrir eða eftir áramót og ég sagði fyrir. Ég vona bara að hún fari að drífa í því að taka þessi fyrstu skref fyrir mömmu sína því annars lendi ég í því að þurfa að gera eitthvað heldur pínlegt.

Jólin komu og fóru og voru hvít í fyrsta skipti í 14 ár hér í Danmörku. Allt fór að óskum nema að þessi dýrindismatur sem við Einar höfðum á aðfangadag féll í grýttann jarðveg hjá börnunum. Í forrétt var rækjubrauðréttur sem var neitað að smakka. Í aðalrétt var fyllt önd með hnetu og döðlusósu og Daníel var hreinlega að kúgast við að borð hana! Jólamaturinn hjá þeim báðum var því banani! Þau fengu síðan fullt,full af pökkum eins og við var að búast. Flottasti pakkinn var Flexitrax bílabraut frá okkur foreldrunum. Daníel lék sér að þessu næstum öll jólin og það hefur þurft að draga hann í burtu frá þessu oftar en einu sinni til að gera hin daglegu verk eins og að þvo sér og borða. Annars er allt gott og nú hlökkum við bara til áramótanna saman í jólafríi 😀

Í lokin þá er Ellen komin með 5 tennur og núna í dag vorum við búin að uppgötva að fyrstu jaxlinn er kominn í gegn vinstra megin uppi enda skemmtileg nótt að baki .