Author Archives: einar

Engar meiri næturgjafir

Nú er komið að því! Við erum byrjuð að venja Daníel á að drekka ekki á nóttunni sem þýðir að innan skamms munum við fá að sofa samfleytt alla nóttina í fyrsta sinn í meira en 4 mánuði! Litli kallinn er farinn að borða góðan skammt af graut á hverju kvöldi þannig að hann á alveg að endast nóttina án þess að fá meira. Fyrir þrem nóttum prófuðum við þetta fyrst, þá vaknaði hann þrisvar og þá fékk hann bara vatn í pela og fór aftur að sofa. Í fyrrinótt vaknaði hann tvisvar eða þrisvar og fékk ekki neitt, bara snuð. Og svo núna í nótt vaknaði hann í fyrsta skipti kl. 5, fékk þá smá vatn og fór aftur að sofa. Ég hef það á tilfinningunni að nóttin í nótt verði fyrirheitna nóttin. Þegar ég tala um að sofa alla nóttina þá meina ég að sjálfsögðu bara til kl. 7, en það er feykinóg!

Svo verður Daníel vigtaður á morgun og þá kemur í ljós hvort allur þessi grautur hefur hjálpað honum að þyngjast. Í síðustu vigtun var hann 6,36 kg, ég giska á að núna sé hann orðinn 6,9 kg. Kemur í ljós á morgun. Fyndið hvað tíminn líður hratt og litli strákurinn okkar er farinn að borða mat og hættur að drekka á nóttunni… Átti ekki von á að hann yrði svona stór svona fljótt!

p.s.
Daníel fékk lítið tuskudýr gefið frá langömmu sinni um helgina, litla kind. Hún hefur verið skírð Kindin Einar.

3 mánaða skoðun

Daníel var að koma úr 3 mánaða skoðun. Hann er orðinn 5,92 kg að þyngd, 62 cm að lengd og með höfuðmál 42,5 cm. Hann fékk líka bólusetningarsprautu við allskonar dóti og stóð sig eins og hetja þegar verið var að stinga hann. Hann fór í þessa skoðun viku áður en hann verður 3 mánaða því litli gaurinn er að fara með okkur til Póllands og við vildum að hann væri nú bólusettur og fínn þegar hann kemur þangað. Daníel fór líka að hlæja í fyrsta skipti núna fyrir 2 dögum. Vorum eitthvað að leika við hann og þá kom allt í einu bara “haha”. Við urðum svaka ánægð með þetta og þá fór hann að reyna að hlæja meira en skríkti bara. Nú notum við hvert tækifæri til að reyna að láta hann hlæja, við þurfum bara að komast að því hvað honum finnst fyndið…

Skírn og brúðkaup

Það er allt að gerast hjá Daníel þessa dagana. Laugardaginn fyrir viku var hann skírður í Háteigskirkju. Hann stóð sig eins og hetja í skírninni, grét ekkert en varð smá pirraður þegar hann fékk vatnið á hausinn. Síðan var hann líka mjög góður í skírnar/brúðkaupsveislunni og fannst bara voða gaman þegar allir vildu fá að halda á honum. Hann fékk fullt af fallegum gjöfum, t.d. silfurhnífapör, gullkross og fullt fullt af fötum.

Síðan kom það okkur Karen mjög á óvart að við fengum eina brúðkaupsgjöf frá Daníel Mána! Við vissum ekki einu sinni að hann kæmist útí búð sjálfur, hvað þá að hann kynni að skrifa á kort. Hann leynir á sér, litli maðurinn. En reyndar var skriftin á kortinu grunsamlega lík skriftinni hjá Hrefnu ömmu hans þannig að okkur grunar hvað hefur gerst: Hann hefur farið útí búð, keypt gjöfina og svo látið ömmu sína skrifa á kortið fyrir sig.

Síðan varð hann líka 2 mánaða gamall fyrir 2 dögum, er alltaf að stækka og þyngjast og var svo góður núna í nótt að sofa samfleytt í 6 tíma og svo aftur í 2 og hálfan! Mikil ánægja 🙂 .

Heimsókn frá Bretlandi

Friðrik, Unnur og Tómas komu í heimsókn á sunnudaginn. Þau búa í Bretlandi og voru að koma heim í sumarfrí þannig að þetta var í fyrsta sinn sem við fengum að sjá Tómas en hann er einmitt 6 vikum eldri en Daníel. Greinilegt að börn stækka alveg fáránlega mikið á 6 vikum þar sem hann var MIKLU stærri en Daníel og virkaði ekki næstum því jafn brothættur, var farinn að halda haus og allt.

Annars fara dagarnir núna í ýmiskonar stúss og útréttingar fyrir brúðkaup og skírn, vorum að smakka kökur í dag, erfitt líf 🙂 . Pössum þó að hafa nógan tíma til að fara reglulega í göngutúra með Daníel og vera úti.

3 vikna

Daníel Máni er alltaf að stækka og er nú orðinn rúmlega þriggja vikna gamall. Hann er farinn að drekka allsvakalega mikið, svona eins og hálft mjólkurbú flóamanna á hverjum degi og vill helst vera á brjóstinu allan daginn. Hann reyndar ælir soldið inná milli en eins og alvöru víkingur lætur hann það ekki á sig fá og bætir það bara upp með meiri mjólk. Hann er hættur að pissa jafnoft á skiptiborðinu en til að halda uppi fjörinu þá er hann farinn að kúka stundum á það í staðinn. Til að þrífa upp kúk, piss, ælu og brjóstamjólk þá notum við svona u.þ.b. 500 taubleyjur á dag og þvottahúsið okkar er óneitanlega farið að minna á þvottaefnisauglýsinguna þar sem er mörg hundruð metra löng þvottasnúra með engu nema skjannahvítum bleyjum.

Í öðrum fréttum er það helst að Daníel Máni sagði fyrstu orðin sín í gær. Það var nú meira bara svona hjal en ég gat nú samt greint nokkuð vel hvað hann var að reyna að segja. Það sem hann sagði var “Pabbi, kauptu handa mér fjarstýrðan bíl og sýndu mér hvernig á að nota hann. Takk”. Því miður var ég einn vitni að þessum merkisatburði og Karen virðist vera eitthvað vantrúuð á þetta þannig að það verða víst ekki keyptir neinir fjarstýrðir bílar strax. En það kemur að því!!

Daníel Máni Einarsson

Jæja, þá erum við búin að ákveða nafn á strákinn. Okkur fannst við verða að drífa í þessu því við vorum orðin þreytt á að kalla hann “hey þú”. Nafnið sem varð fyrir valinu er Daníel Máni Einarsson. Hann verður samt ekki skírður formlega fyrr en 6. ágúst en það er einmitt dagurinn sem við Karen ætlum að gifta okkur 🙂 .

Kúkur og piss!

“Mommy, I´ve got a present for you. I´ll give you a hint: it´s in my diaper and it´s not a toaster!”

Kúkableyja í verðlaun fyrir þann sem þekkir kvótið. Er núna búinn að skipta á u.þ.b. 5000 bleyjum þannig að er orðinn nokkuð sleipur í þessu. Allt gengur annars vel, fullt af fólki búið að koma í heimsókn, öllum líst mjög vel á strákinn. A.m.k. 5 manns búnir að segja að hann sé mjög “mannalegur”, hvað sem það nú þýðir. Eru ekki öll börn mannaleg? Ég efast a.m.k. um að fólk sé mikið að líkja þeim við aðrar dýrategundir (“Til hamingju með strákinn, hann er svakalega líkur hesti!”).

En aftur að kúkamálunum. Drengurinn er engan veginn ánægður þegar á að skipta á honum og öskrar úr sér lungun en jafnar sig um leið og hann er kominn í nýja bleyju. Hann er líka búinn að koma sér upp mjög öflugri leið við að pissa. Hún gengur útá að kúka fyrst, svo þegar hann er kominn á skiptiborðið og úr bleyjunni þá lætur hann rigna gulu yfir foreldra sína, skiptiborðið og allt annað í tveggja metra radíus. Sérstaklega er hann góður í að gera þetta rétt eftir að maður snýr sér frá þannig að hann nái sem bestri pissdreifingu áður en maður tekur eftir þessu og getur stokkið á hann með aðra bleyju. En hann er duglegur að drekka, og yfirleitt voða vær þannig að við erum bara mjög ánægð 🙂 .

Nótt

Að sitja á sófanum kl. 4 um nótt, með strákinn á bringunni á sér, tautandi í sífellu “farðu nú að sofa kallinn minn” og horfandi á Fox News með slökkt á hljóðinu er nú bara ansi gaman. Eiginlega bara miklu skemmtilegra en maður hefði haldið 🙂 .

Drengur Einarsson fæddur

Loksins er hann kominn, lét ekki bíða eftir sér! Hríðirnar byrjuðu á miðnætti 13. sem var akkúrat dagurinn sem hann var settur á. Hríðirnar stigmögnuðust yfir nóttina og kl. 7 um morguninn voru 4-5 mínútur á milli hríða og þá fórum við uppá spítala. Sóttin jókst síðan jafnt og þétt yfir daginn og Karen var tilbúin að rembast akkúrat þegar Bobba, ljósmóðirin okkar úr MFS, mætti á svæðið beint úr sumarfríi. Það var kl. 8 um kvöld og strákurinn var síðan mættur í heiminn kl. 21:39. Hann var 16 merkur að þyngd, 52 cm langur og með 38 cm í höfuðmál. Gistum síðan nóttina í Hreiðrinu þar sem var lítið sofið og mikið dáðst að drengnum. Það var frábær þjónusta í Hreiðrinu og allar ljósmæðurnar mjög hjálpsamar og góðar.

Það er ennþá óvíst hverjum drengurinn líkist en hann er a.m.k. með nefið hans pabba síns og tásurnar hennar mömmu. Hann er búinn að vera mjög vær og góður, miklu rólegri en við áttum von á. Nú erum við komin heim og erum að kynnast hvort öðru og njóta lífsins 🙂 .