Í morgun var Daníel ennþá með hita og hann var kominn yfir 40 stig. Við hringdum á læknavaktina og þau sendu lækni hingað. Hún sagði að Daníel væri kominn með flensuna sem væri að ganga og þá mætti alveg búast við hita í 6-7 daga! Við eigum bara að halda áfram að gefa honum hitalækkandi og nóg að drekka. Við spurðum lækninn líka útí naflaslitið hjá honum og hún benti okkur á barnaskurðlækni sem við eigum að tala við útaf því. Við erum semsagt að fara í tíma hjá honum í næstu viku. Hún sagði okkur líka að görnin gæti klemmst útí naflaslitinu og þá þyrfti að fara með hann undireins uppá bráðamóttöku. Þannig að við vonumst bara til að þessi barnaskurðlæknir geti gert við þetta sem fyrst.
Author Archives: einar
Slagsmál!!!
Þegar ég fór að sækja Daníel í dag til dagmömmunar var hann með stórt rautt klór niður alla kinnina! Þá kom í ljós að einhver lítill ofbeldishrotti hafði klórað hann! Ég sá ofbeldismanninn og fór strax að hugsa um hvernig ég gæti hefnt fyrir Daníel. Datt fyrst í hug að segja stráknum að fara að hlaupa með skæri eða eitthvað en síðan sá ég að mér, ég er nú sæmilega þroskaður og fullorðinn maður og á víst ekki að hefna mín á smábörnum. Auk þess er miklu betra að gera það seinna, þegar hann á síst von á því!
En allavegana, við fórum og keyptum græðandi og sótthreinsandi krem og bárum á þetta. Nú verða allar tilraunir til að kenna Daníel að segja “mamma” settar á pásu, fyrst verðum við greinilega að kenna honum að berja frá sér!
Útbrot
Jæja, litli gaurinn þarf bara að fara til læknis í dag. Hann er búinn að vera með útbrot núna í nokkra daga, héldum fyrst að það gæti verið útaf Vicks kreminu sem við settum á bringuna á honum en þetta hefur ekkert batnað þó við hættum að nota það. Erum búin að reyna að bera Mildizon krem á þetta í nokkra daga en virðist ekkert hjálpa. Þetta eru svona rauðir flekkir og svo er húðin svona hálfgróf sumstaðar 🙁 . Vonandi getur læknirinn bent á eitthvað krem eða eitthvað til að laga þetta. Annars er hann líka kominn með niðurgang aftur, gáfum honum soyamjólk í gær í staðinn fyrir stoðmjólk og hann þambaði hana eins og vitlaus maður. Þá kom í ljós að hún var díííísæt þannig að hann var bara mjög sáttur! En já, vonandi fer þetta allt að batna, og fljótlega reynum við að ná myndum af efri tönninni sem er komin og setja inn á netið.
Aðskilnaðarkvíði
Núna þegar Karen er byrjuð að vinna þá fer hún labbandi með Daníel á morgnana til dagmömmunnar og tekur síðan strætó í vinnuna, en ég mæti 8 í vinnuna á bílnum og sæki Daníel kl. 4 og svo Karen einhverntímann eftir það. Þegar ég kom í dag að sækja Daníel þá sat hann í litlu uppblásnu sundlauginni sem hann situr oft í hjá dagmömmunni og lék sér, hæstánægður. En þegar hann sá mig þá kom bara þvílík skeifa og hann fór að hágráta! Það lagaðist þegar ég tók hann upp en svo þegar ég var búinn að klæða hann í og lét dagmömmuna fá hann eitt augnablik meðan ég klæddi mig í skóna þá fór hann aftur að hágráta! Hann gerir þetta líka heima, ef maður yfirgefur herbergið sem hann er í þá er hann sannfærður um að maður sé að yfirgefa hann að eilífu og verður mjög ósáttur. Þetta er víst eðlilegt á þessum aldri og gengur yfir á endanum en á meðan verðum við víst bara að passa að fara ekki of langt frá honum 😉 .
Nýjar myndir
Nýjar myndir komnar inn. Skriðæfingar, sitjandi að leika sér o.fl 🙂
Sundhöllin er drasl!
Ungbarnasundið er í pásu þangað til 16. janúar en sundkennarinn mælti samt með að við færum a.m.k. tvisvar sjálf með Daníel í sund þangað til. Við erum búin að fara einu sinni í Grafarvogslaug með Völu, Hjalta og Jökli, það var ágætt, en laugin frekar köld miðað við Grensáslaugina. Nú í dag ætluðum við svo að prófa Sundhöllina, sundkennarinn hafði mælt með henni sem einni af þeim laugum þar sem væru upphitaðar barnalaugar. Karen fór með Daníel í kvennaklefann en þá kom í ljós að það er engin aðstaða til að leggja hann frá sér. Það er skiptiborð inná klósettunum en þau eru innaf sturtunum þannig að ekki er hægt að fara með hann þangað meðan er verið að klæða sig úr. Svo þegar við fórum í barnalaugina þá var hún bara skítköld! Þeir segja að hún sé 32 gráður en Grensáslaug er 33 gráður og þessi var ekkert nálægt því. Við vorum þarna í svona 2 mínútur, drifum okkar svo uppúr og förum aaaaldrei þarna aftur með Daníel 🙁 . Semsagt, mælum ekki með Sundhöllinni fyrir ungbarnasund!
Besti hlutur í heimi!
Daníel á ansi mikið af leikföngum. Hann á allskonar tuskudýr, hringlur, dót til að naga, óróa, leikteppi o.fl. Ekkert af þessu kemst samt í hálfkvisti við það sem Daníel finnst vera BESTI OG STÓRKOSTLEGASTI HLUTUR Í HEIMINUM! Besti hlutur í heimi, sá sem allt dót fölnar í samanburði við, er frekar stór, hvít dolla með Nivea soft rakakremi. Þegar Daníel liggur á skiptiborðinu og lítur til hliðar og sér Nivea dolluna þá tekur hann andköf, spennist allur upp og starir á hana. En það er ekki nóg, hann vill líka fá hana til sín, til að halda á og naga og virða fyrir sér. Í fyrradag var hann frekar pirraður eitthvað á leikteppinu sínu, var svona á mörkunum að það þyrfti að fara að taka hann upp. En þá kom ég með Nivea dolluna, hélt henni fyrir ofan hann og sneri í hringi og þá var hann bara skælbrosandi og starði á dolluna góðu með glampa í augunum. Þetta er ekki einu sinni rakakrem sem við notum á Daníel þannig að það er ekki að honum finnist kremið gott, það er bara útlitið og lagið á dollunni sem er svona stórkostlegt! En þetta er fínt, gott að hann er svona ánægður. Í jólagjöf er ég að hugsa um að gefa honum tannkremstúpu, sjá hvort það verður ekki vinsælt líka.
Tennur!
Daníel er búinn að vera ansi pirraður síðustu daga, búinn að gráta frekar mikið og vera órólegur. Við vorum ekki viss hvort hann væri að taka tennur eða hvort honum væri illt í eyrunum eða hvað, en grunaði helst að það væru tennur því hann nagaði gjörsamlega allt sem hann kom nálægt. Svo í gærmorgun var Karen að skoða góminn á honum og þá sá hún glitta í tennur í neðri gómnum! Ekki bara eina heldur tvær framtennur! Í gærkvöldi gat maður svo greinilega fundið fyrir tönnunum þegar Daníel beit í puttann á manni. Við keyptum deyfigel fyrir góminn svo hann fyndi ekki jafn mikið til en þegar við reyndum að setja það á góminn sleikti Daníel það strax af og kjamsaði á því af bestu lyst, enda er gelið með svakalegu lakkrísbragði. Það er greinilegt að Daníel ætlar að taka forskot á sæluna og borða jólasteikina með okkur!
Gera tvennt í einu
Konur segja oft að karlmenn geti ekki gert fleiri en einn hlut í einu. Þetta er rangt. Tökum Daníel Mána sem dæmi, hann getur gert tvennt í einu, þ.e. borðað og kúkað! Núna þegar hann er að fá graut þá er hann búinn að taka uppá því að kúka í leiðinni. Hann er kannski búinn að fá svona 3-4 skeiðar og þá allt í einu sér maður þvílíkan rembingssvip og lyktin gýs upp! Samt heldur hann áfram að borða eins og ekkert sé. Hann hefur væntanlega hugsað með sér “hmmm, ég er alltaf að borða, og alltaf að kúka. Af hverju ekki að sameina þetta tvennt og spara smá tíma?”. Þetta held ég að sé fín þróun og sýni að Daníel hafi heilmikla hæfileika í verkefnastjórnun!
Kúkabomba!!!
Eins og sum ykkar vita þá hefur Daníel verið að spara kúkableyjurnar undanfarið. Það hefur enginn kúkur verið síðustu 9 daga en úr því var heldur betur bætt í kvöld! Við sátum í stofunni og mér fannst ég finna smá lykt, hélt kannski að þetta hefði bara verið smá prump en ákvað samt að fara og tékka á þessu. Þegar við komum á skiptiborðið sá ég að það var brún rönd á samfellunni fyrir ofan bleyjuna. Þegar ég svo tók hann úr bleyjunni þá sá ég MESTA KÚK SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÆVINNI!! Hann var gjörsamlega þakinn kúki bæði að framan og aftan, og ekki bara smá klessur heldur ÞYKKT LAG AF KÚK YFIR ÖLLU! Ég panikkaði að sjálfsögðu og kallaði á Karen og í sameiningu þrifum við það mesta af honum og skelltum honum svo oní vask til að ná restinni af. Án gríns þá hefur þetta örugglega verið hátt í hálft kíló af kúk! Litli gaurinn var þrusuánægður með þetta allt saman og við foreldrarnir vorum sömuleiðis mjög ánægð með að kúkaverkfallinu væri lokið.