Monthly Archives: May 2011

Hoppuslys

Daníel og Ellen voru að hoppa uppí rúmi í morgun þegar við heyrðum allt í einu skaðræðisöskur frá Daníel. Við þutum inn og sáum hann liggjandi á rúminu og það fossblæddi úr andlitinu á honum! Hann hafði rekið andlitið í gluggakistuna og fengið djúpan skurð á kinnbeinið. Við héldum taubleyju við sárið því það blæddi svo mikið og

Daníel með risaplástur

gáfum honum svo frostpinna sem hjálpaði heilmikið. Sárið var það djúpt að það þurfti að sauma þannig að Karen fór með hann á slysavarðstofuna þar sem voru saumuð 4 spor.  Daníel var mjög duglegur en fannst samt vont þegar það var verið að deyfa og sauma. Eftir þetta fór hann svo í SFO sem gekk bara vel, hann kvartaði ekkert og var bara hress.

 

Daníel fór svo til Sjoerd eftir SFO og þar rákust hann og Wies á hvort annað svo harkalega að það byrjaði aftur að fossblæða úr sárinu! Karen þurfti svo að hreinsa sárið aftur sem var sárt og leiðinlegt. Nú vonum við bara að það komi ekki svakalegt ör undan þessu. Það kemur í ljós eftir nokkra daga, planið er að láta taka saumana út á þriðjudaginn.

 

Daniel skólastrákur


I dag var fyrsti dagurinn i SFO hjá Daníel. Við fórum fyrst með Ellen i Remisen þar sem hann sagði stoltur krökkunum sem voru að fara í rútuna að hann væri ekki að koma heldur fara í SKÓLANN! Komum við hjá Sjoerd og Natali og vorum samferða þeim. Það var mikið stuð og spenna. Daniel var ekkert stressaður og bara glaður allann tímann og ekki leið á löngu þar til að hann bað um að fá að fara einn í könnunarleiðangur. Það var allt fullt af fólki en mér fannst þetta einmit tilvalið fyrir hann víst hann var svona jákvæður á þetta allt. Myndi kannski setja tóninn fyrir það sem koma skal. Allt fór vel og við foreldrarnir kvöddum um 10 og við tók kynning á hópnum og ferð um skólalóðina. Einar sótti hann svo um 12.30 og þá vildi hann als ekki koma heim þar sem hann var að spila foosball við Skarphéðinn, Grím og Sjoerd og greinilega mikið stuð. Vonandi að þetta gangi eins smurt á morgun þegar hann hittir eldri krakkana sem koma inn rétt fyrir 13. Einar ætlar að taka aftur hálfann dag og sækja hann um 14 en svo á miðvikudaginn er fullur dagur eða um 7 timar.