Erum búin að eiga yndislegt páskafrí! Veðrið er búið að vera frábært og sól og um 20 stig uppá hvern einasta dag. Ég var í fríi allan vikuna og krakkarnir frá þriðjudeginum og Einar loks frá miðvikudeginum.Fyrsta daginn fórum við með Bas og krökkunum á leikvöll rétt hjá með nesti. Sjoard kom svo til okkar og endaði á að gista. Á miðvikudaginn fórum við í brunch til Anne-louise og Morten, á fimmtudaginn fórum við í Bakken tívolíið með sama fólki. Á föstudaginn fengum við Önnu Maríu, Snorra og Atla í brunch og fórum svo út í garð nálægt. Um kvöldið fengum við heimsókn frá Joanna pólsku vinkonu minni. A laugardaginn fórum við í Frilandsmuseet með picknic þar sem var mikið af gömlum húsum og vaðlaug. Á sunnudaginn fórum við um morguninn í Fælledparken til að prófa páskagjafirnar sem vorum fótboltahanskar og sápukúlusproti. Um eftirmiðdaginn tókum við Kristján með okkur á Kræmmermarked uppí Bellahoj þar sem strákarnir fengu ís, dót og tívolítúr! Í dag reyndum við svo að halda okkur nærri heimahögunum og fór að lokum í túr á leikvöllinn með Svölu og strákunum þar sem Jenni var veikur.
Við erum að reyna að venja Ellen af daglúrinum sem gengur ekki nógu vel þegar við erum að gera svona mikið daginn. Sama er að segja um klósettkennsluna en hún tekur þó á milli langar spretti án þess að pissa og vaknar oft með þurrar bleyjur. Ellen fór meira að segja á klósettið og pissaði á Bakken en hún er annars ekki hrifin af að pissa annarstaðar en heima hjá þér og leikskólanum.
Kvót vikunnar var síðan þegar hún var að suða um eitthvað í pabba sínum og ég var búin að margsvara henni og gerði enn einu sinni. “Nei, Mamma! Ég tala við pabba!!” hvorki meira né minna! Ég varð auðvitað kjaftstopp en þetta lærir hún auðvitað af okkur þannig að þetta er kannski bara mátulegt á mig 😀