Kannast einhver við persónurnar Ókí-dókí og Toyota úr Star Wars? Sonur minn er að reyna að sannfæra mig um þetta og heldur því jafnfram fram að 5 ára vinur hans viti miklu meira um Star Wars en við pabbi hans!
Monthly Archives: May 2010
Loftvarnarflautur
Daníel var mjög hissa að heyra loftvarnarflauturnar fara í gang í dag. Áður var hann nýbúinn að missa boltann sinn niður um gætt hérna í húsinu og við fundum hann ekki aftur.
“mamma, kemur þetta hljóð kannski af því að boltinn minn lenti í einhverju efni sem húsið þarf að nota? Kannski?”
Mikil veikindi
Ellen María er búin að vera mikið veik. Fyrir 3 vikum vorum við tilneydd að fara með þau bæði á læknavaktina. Daníel með bráðaeyrnabólgu og Ellen með eyrnabólgu og lungnabólgu. Daníel hefur jafnað sig án vandræða en Ellen hefur verið seinari til. Aftur núna á miðvikudaginn þurftum við að fara til læknsi vegna hita og þá kom í ljós að lungnabólgan var búin að taka sig upp aftur. Fengum breiðvirkari lyf handa henni sem átti bara að gefa í 3 daga. Lyfi virðasat ekki vera að slá á lungnabólguna og þurftum við að kalla á lækni í nótt vegna hita og öndunarerfiðleika. Hann sagði að lungnabólgan virðist ekki stafa af bakteríu heldur vírus. Hann sagði að hún ætti að geta unnið bug á þessu sjálf en ef hitinn heldur áfram eða hún verður sljó þá þyrfti um við að kíkja með hana niður á spítala.
Við erum að vonast að hún braggist fljótt en það er augljóst að þessi langvinnu veikindi eru búin að taka sinn toll og hún er orðin mjög þreytt. Hún fær hita daglega en er hress þess á milli og fær matarlyst. Veikindin eru auðvitað ekki síður erfið fyrir okkur þar sem jþað er erfitt að horfa uppá stelpuna svona vansæla og svenflausar nætur eru aftur orðnar að vana hér á bæ.