Monthly Archives: July 2009

7 mánaða

Ellen er orðin pinnstíf og finnst ekkert skemmtilegra en að standa. Hún kemur sér líka úr sitjandi stöðu í liggjandi og er þegar farin að reyna við að koma sér á fjórar fætur. Hún er líka farin að reyna að toga sig upp en enn sem komið er þá gengur það ekki en maður má passa sig ef maður er með hana í gamla barnavagninum. Mér finnst þetta rosalega snemmt og minnir að Daníel hafi verið í kringum 9 mánaða þegar hann fór að toga sig upp, verð að athuga það.

Eins og hún er dugleg á einu sviði þá er hún als ekki til fyrirmyndar á öðrum. Þannig er að hún vill als ekki borða neitt annað en þurrmjólk. Hana klígjar við áferðinni af graut og mauki og vill helst ekkert með þetta hafa en við foreldrarnir höldum ótrauð áfram að reyna að venja hana á venjulegan mat. Við ýmist plötum hana með því að gera lapþunnan graut í stútkönnuna eða eitthvað álíka eða göbbum hana með því að þykjast ætla að gefa henni að drekka en stingum þess í stað grautarskeið uppí hana. Held það sé samt takmarkað hvað það mun endast lengi áður en hún fer að fatta þetta. En hún þrýfst vel þannig að það er engin ástæða til að hafa áhyggjur en okkur langar mjög til að losna við þessar pelagjafir enda voða þreytadi til lengdar.

Við erum líka núna að taka svefninn í gegn og reyna að vera ákveðnari þar sem Ellen er mikið fyrir að vakna kl.5 á morgnana. Þetta er allt í góðum farvegi en það er erfitt að halda sig við þetta og rosalega freistandi að sleppa þessu bara lausu.