Á morgun verður Ellen hálfs árs gömul! Hún er nú fyrir nokkru farin að sitja alveg sjálf og nýtur þess að skoða sig um í vagninum. Við erum þess vegna búin að fjárfesta í nýrri kerru (því við eigum svo fáar,bara 3) sem veitir góðann stuðning við bakið og er mikið tæknitól. Ellen er líka farin að sjá sjálf um snuðið og aðeins byrjuð að ýta sér afturábak sem ég man vel eftir hjá Daníel þegar hann byrjaði hjá dagmömmunni.Hún er byrju að borða þónokkuð og hefur hingað til fengið gulrætur og sveskjur, sem eru uppáhaldið, epli, perur, banana, avókadó, brokkólí, blómkál, sætar kartöflur, apríkósur. Hún er ekkert yfir sig hrifin af stöppuðum banana en er alveg til í að hjakkast á honum ef hún fær að bíta í hann úr hendinni minni. Ég hef líka prófað að gefa henni vel þroskuð jarðaber til að naga og kirsuber. Hún var mjög hrifin af jarðaberjunum en gretti sig svakalega yfir kirsuberjunum, sennilega of súr. Mér finnst alveg svakalega gaman að leyfa henni að fá smá smakk af því sem ég er að borða og hún er alltaf jafn spennt að horfa á mig borða. Í gær fékk hún fyrsta kjötið útí grænmetisgrautinn og það er ekki hægt að segja að hún hafi verið mjög hrifin. En við höldum bara áfram að reyna.
En tíminn líður og nú erum við búin að sækja um pláss fyrir litlu dömuna á leikskóla. Við ákváðum að sækja um ákveðna leikskóla og bíða frekar lengur en að hún fari á fyrsta leikskólann sem losnar. Tilhugsunin um að hún fari á “stofnun” svona lítil (1árs) fer alveg með mömmuhjartað og hef ég ekki útilokað að athuga með dagmömmur.