Monthly Archives: May 2009

Ellen að rúlla sér og byrja að sitja

Ellen verður stærri og duglegri með hverjum deginum. Síðasta miðvikudag velti hún sér í fyrsta skiptið af bakinu yfir á magann, hún hefur verið næstum því búin að ná því í nokkrar vikur en nú gat hún gert það alveg almennilega. Um leið og það tókst þá var það líka gert á fullu, velta sér á magann, aftur á bakið, aftur á magann o.s.fv. Þetta er ágætis leið fyrir hana til að ferðast um, er stundum búin að færast ágætlega frá þeim stað sem við settum hana niður. Eftir að hún fór að gera þetta er hún líka duglegri við að vera á maganum, sem er mjög fínt fyrir hana til að æfa sig og verða stífari.

Hún er líka alveg að verða tilbúin að sitja sjálf, vantar bara aðeins uppá að vera nógu stíf og halda jafnvæginu. Hún getur stundum setið í nokkrar sekúndur sjálf en dettur alltaf niður á endanum. Við höfum líka verið að leyfa henni að sitja uppi í kerrunni sinni og skorða hana bara með sænginni, það gengur mjög vel og hún er hrifin af því. Nú bíðum við bara eftir að hún geti farið að sitja alveg sjálf, það verður mikið stuð!

Matarmálin hjá Ellen

Ellen fékk fyrsta grautarsmakkið í dag enda er bara vika í 5 mánaða afmælið. Ég er ekki alveg viss hvað henni fannst um þetta og þó svo að það þyrfti magar tilraunir með hverja skeið þá endaði þetta mest allt ofaní maga. Mér finnst hún allt í einu hafa tekið svo stórt stökkí þroska. Hún fylgist með öllu sem fram fer og teygir sig langar leiðir eftir dóti sem hana langar að fá hvort sem það er eitthvað sem hún á að fá eða ekki. Í dag prófaði ég líka að leyfa henni að sitja í vagninum og það var mikið fjör þó svo að hún var að sjálfsögðu vel skorðuð með kerrupokanum á alla kanta til að detta ekki.

Nýjasta hjá Daníel

Daníel er að ganga í gegnum mikið Ödipusarskeið sem gengur út á það að tjá ást sína á mér í tíma og ótíma. Maður hefði haldið að strákur sem elskaði mömmu sína svona mikið myndi hlíða henni í einu og öllu en það er svo sannarlega ekki málið. Hérna er eitt samtal sem ég við hann um daginn (D rödd lesist mjög skræk og í prakkaraskapi)

D : Þegar ég verð stór ætla ég að giftast

M : já, hverjum ætlarðu að giftast?

D : Ég ætla bara að giftast Grím

M : Nei, þú getur ekki gifst Grím. Þú ættir að giftast stelpu

D : Þá ætla ég bara að giftast þér!

M : Þú getur ekki gifst mér, ég er gift pabba

D : ……. Þá ætla ég bara ekki að giftast neitt

Annað. Daníel elskar Keifer Chefs lagið “Every day I love you less and less” nema í hans þýðingu heitir lagið lessíless.

Fyrsti maí

Daníel fékk að sleppa við að fara á leikskólann í dag. Í staðinn fóru hann og Ellen María með Karen útí Frederiksberg have að hitta Evu Stínu, Óskar og Hjálmar. Daníel og Óskar voru fínir saman og spölluðu á bæði íslensku og dönsku. Danskan er alltaf að verða betri hjá honum og honum finnst gaman að tala hana heima stundum. “Jeg taler dansk”, “Taler du ikke dansk?” o.s.fv. Annars eru líka prump, kúk og piss brandarar mjög vinsælir. Svona var samtalið hjá okkur fyrir svefninn í dag:

E: “Góða nótt Daníel minn, dreymi þig vel”

D: “Góða nótt prumpukall!”

E: “Þetta er ekki fallegt”

D: “Þú ert prumpukall”

E: “Ekki segja svona”

D: “Góða nótt”.

Ellen María er ekki farin að rífa svona hressilega kjaft við foreldra sína ennþá, en miðað við hvað hún lætur mikið heyra í sér er þess eflaust ekki langt að bíða!