Monthly Archives: April 2009

4. mánaða

Ellen María er orðin 4 mánaða og í skoðuninni var hún 7,1 kg. Hún er aðeins að fara niður fyrir kúrfuna sína en skv. hjúkrunarfræðingunum þá er þetta ekkert alvarlegt. Hún hefur verið að afvísa brjóstinu dáldið undanfarið og við þvi gripið til þess ráðs að gefa henni þurrmjólk. Hún er búin að sofa talsvert betur eftir að við byrjuðum að gefa henni þurrmjólk fyrir nóttina annars er hún bara á brjóstinu. Hún er líka orðin rosalega athugul og er mikið að leika sér með dót og naga. Daníel er líka alltaf að leika við hana eins og góðir bræður gera. Hann er líka alltaf jafnmontinn af henni hvert sem hann fer.

Ellen vill líka mikið vera með og sættir sig engann veginn að vera skilin eftir í ömmustólnum á matartímum heldur vill fá að sitja með okkur þannig að það endar yfirleitt á að Einar heldur á henni. Sömu sögu er að segja þegar mín er vakandi í vagninum. Helst vill hún bara sitja en auðvitað full lítil fyrir það og ræður ekki við það almennilega. Við höfum gripið til þess ráðs að skella brjóstagjafapúðanum bakvið hana og þá fær hún aðeins að kíkja.

Tásufundur og ný orð

Maður mætti nú vera duglegri að skrifa um Ellen Maríu en þetta var svo sem það sem tengdamamma var búin að vara mig við. Við bætum úr því hér og nú.

Það sem er helst að frétta af Ellen er að hún er orðin duglegri að sofa á nóttunni enda erum við Einar búin að skipta um stað í rúminu. Núna sefur Einar Ellenar megin og réttir mér hana bara þegar ég á að gefa henni og í staðinn á ég að sjá um Daníel sem gengur svona upp og ofan þar sem ég virðist vera orðin ónæm fyrir grátinum í þeim báðum. Ellen fer núna að sofa milli 21-22 og sefur til ca.2-3 og svo aftur til 6 en þá vekur hún okkur yfirleitt með einhverri þrumuræðu. Ellen er nefnilega þannig úr garði gerð að hún grætur ekki nema eitthvað virkilega mikið sé að og þegar hún vaknar í rúminu eða vagninum þá byrjar hún yfirleitt á því að tala frekar en gráta. Hún fann líka um daginn tásurnar sínar og grípur í þær stöku sinnum á skiptiborðinu. Hún er líka rosalega dugleg að reyna að skríða og það eina sem kemur í veg fyrir að hún þjóti af stað er bringan og andlitið.

Daníel er orðinn miklu betri í að tala og hann kemur heim næstum daglega með einhver ný orð eða setningar á dönsku. Hann er einnig farinn að tjá tilfinngar sínar af meiri nákvæmni og dýpt. T.d. segir hann að eitthvað sé dámsamlegt ef það er betra en gott og einnig hefur orðið yndislegt verið notað nokkrum sinnum.