Daníel er farinn að vera meira og meira “manipulative” eftir því sem á líður og er stöðugt að reyna að sjá hvað hann kemst langt með okkur foreldrana, sem er yfirleitt mjög stutt! Þessi hegðun felst í gríðarlegri stjórnsemi og miklum sjálfstæðisvilja – sumir myndu kannski segja óþekkt en við sjáum greinilegan mun á þessari hegðun og venjulegri óþekkt. Daníel vill hafa lokaorðið og reynir að stjórna okkur eða gefa okkur fyrirmæli líkt og við gerum við hann, munurinn er bara að sumir hérna eru “fullorðna fólkið” og aðrir ekki. Stundum er þetta bráðskemmtilegt og maður þarf að snúa sér undan til að láta hann ekki sjá mann hlægja en stundum er þetta svo pirrandi að maður lokar bara augunum og þarf að minna sig á að barnið er bara 3gja ára! Svo núna um helgina fór gaurinn í pössun til Öglu og Ragga og við vöruðum þau að sjálfsögðu við þessari hegðun og sögðum þeim að láta ekki vaða yfir sig. Þegar við komum að sækja Daníel í dag þá fengum við að heyra allt um hvað gekk á. Daníel fékk að stjórna hver drakk hvað á heimilinu og hver borðaði hvað. Hann vaknaði 20 mín í 6 um morguninn og tókst að draga Öglu frammúr. Hann fékk að hafa klósettpappírgjörning inní stofu hjá þeim, draga þau út á róló, fékk ís og plataði þau að lokum til að kaupa eitthvað dót handa sér úr sjálfsala. Þetta er allt eitthvað sem við könnumst við úr daglegu lífi en látum sjaldna eftir honum en það er gott að hann fékk allavegna útrás á þessu öllu hjá frænku sinni, kannski fáum við smá pásu í staðinn.
Annars er Daníel bara mjög sáttur við leikskólann sinn og finnst gaman að fara þangað á hverjum degi. Við erum að reyna að kenna honum meiri dönsku sem gengur missvel enda er hann missmóttækilegur fyrir þessu og athyglin ekki mikil. Við keyptum því nokkrar danskar bækur og erum að reyna að lesa þær fyrir hann á döns-íslensku og hann er alveg að ná nokkrum orðum. Á föstudaginn á síðan að vera smá veisla í leikskólanum til fagna nýju leiktæki á lóðinni. Það eiga að vera kökur og grillaðar pylsur og Daníel er mjög spenntur líkt og við foreldranir því þarna fáum við loksins tækifæri til að hitta vini hans Daníels og foreldra þeirra.