Nú er Daníel að verða 17 mánaða eftir 10 daga. Hann er alltaf að stækka og læra nýja og nýja hluti. Orðafjöldinn er nú ekki mikill en hann kemur hægt og sígandi t.d. getur hann ómögulega lært að segja afi því hann ruglar því alltaf við aaaa… sem þýðir að vera góður. Þannig að þegar ég bið hann um að segja afi við afa sinn þá byrjar minn alltaf að strjúka mér um kinnina. En þó að orðafjöldinn sé ekki mikill þá skilur hann meira en mann grunar. Hann skilur mig, þó svo að hann hlýði ekki alltaf, þegar ég bið hann að láta eitthvað aftur á sinn stað eða koma með eitthvað til mín eða þegar ég bið hann um að setja alla kubbana sína í skúffuna aftur.
Um daginn vorum við að taka herbergið hjá litla gaurnum í gegn og nú er það orðið svaka flott. Fyrir og eftir myndir eru í nýjasta albúminu. Daníel er mjög ánægður með breytinguna og er farinn að vera mikið í herberginu sínu og oft finnst honum gaman að sitja við borðið sitt og skoða myndabækur. Læt þetta duga í bili. 😉
Gaman að fá nýja bloggfærslu. Annars sagði hann Einar mér að Daníel gæti nú þegar sagt “vísitala neysluverðs”. Er hann að hjálpa þér við ritgerðina kannski líka ? 😀
Ég hef ekki kíkt hérna inn svo lengi en mér til mikillar hamingju voru komnar nýjar myndir :o) áttu einhverjar snjómyndir? Flott herbergið hjá Daníel, málaðir þú fiskana eða eru þetta límmiðar (litu ekki út fyrir það). GEGGJAð sætt 😉
Fiskarnari eru gólfmottur sem fást í IKEA og svo er þeim skellt á með dobble-teipi. Þetta er stolin hugmynd en virkar engu að síður 😀
Fórum um daginn að reisa snjókall og ég var með myndavélina en akkúrat þegar ég ætlaði að taka mynd þá varð hún batterílaus! 🙁