Jæja þá er litli strákurinn okkar orðinn 1árs! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt :-o. Við ætlum að halda uppá daginn með því að kíkja aðeins niður á tjörn eftir vinnu og gefa Bra Bra brauð og svo er það bara ammælisveisla heima í kvöld fyrir familíuna (Alda, þín tertusneið verður send með Fedex). Reyndar verður haldin sameiginleg ammælisveisla fyrir Magneu (lang-ömmu Daníels) og Daníel þar sem þau fæddust sama dag nema með 83 ára millibili 🙂
Daníel er allur orðinn hressari og farinn að hamast mikið, eða öllu heldur ennþá meira. Hann á eftir að una sér vel í boðinu í kvöld enda ELSKAR hann að fá svona mikla athygli, þá fer hann alveg á kostum 😉
Til hamingju með Daníel Mána!!! Hipp hipp húrrey!!! Knús til ykkar allra. Annars kannski geymiði bara kökusneiðina fyrir mig í frystinum þar til ég kem heim, held hún bráðni bara í póstkassanum ef hún er send hingað 😉 Svitinn lekur hérna af mér á lyklaborðið við lærdóminn… Fremur erfitt að hugsa skýrt við próflestur í 30 stiga hita. Cyberspace faðmlag og knús. Alda.
Til hamingju með afmæli stóri strákur. Ótrúlegt hvað gerist á einu ári, ég man eftir pabba þínum að dást að því hve Halldóra Ísold var “stór” á eins árs afmælinu hennar í fyrra.
knús