Svo virðist vera sem sýklalyfjakúrinn sem Daníel fór á útaf eyrnabólgunni hafi ekki virkað. Fórum aftur með hann í fyrrakvöld á Læknavaktina af því að hann var svo órólegur og þá kom í ljós þessi mikla eyrnabólga í öðru eyranu sem var enn til staðar. Þannig að læknirinn lét hann á annan sterkari sýklalyfjakúr. Svo er Daníel búinn að vera með furðuleg útbrot á búknum sem hann klægjar alveg svakalega í og við fórum á barnalæknavaktina í gær útaf því og svo er exemið líka alltaf að versna. Lækninn grunaði að þetta væri kannski ofnæmi útaf sýklalyfjunum og ekki getur hann hætt á þeim því eyrnabólgan var þá búin að taka sig aftur uppí hinu eyranu líka og bæði mjög slæm. Hann sagði okkur líka að hætta að nota þetta sterka exsem krem því þetta væri sennilega ekki þetta hefðbundna barnaexsem. Læknirinn lét Daníel á kláðastillandi ofnæmislyf. Þannig að núna er Daníel á stekum sýklalyfjum, sljóvgandi ofnæmislyfi og ofan á allt annað fær hann verkjastillandi stíla meðan að sýklalyfin eru að byrja að verka. Litla skinnið, eins og það sé ekki nóg að vera veikur og með öll þessi óþægindi þá þarf hann að þola á láta sprauta uppí sig tveim tegundum af lyfjum og svo fá stíla 🙁
Ég pantaði tíma hjá astma- og ofnæmislækni fyrir Daníel en hann kemst ekki að fyrr en 19. júlí í almennt ofnæmispróf og svo ekki fyrr en í HAUST í peniciline próf! Ég fór líka í dag í Jurtaapótekið og keypti eyrnaolíu sem á að vera rosalega góð fyrir eyrnabólgu og græðandi exem-krem. Á þessu stigi er ég til í að prófa hvað sem er bara að litla stráknum okkar batni sem fyrst.
Já það er ekki lítið lagt á litla skinnið. Batnaðarkveðjur til Daníels
OG þetta heilbrigðiskerfi ætti að skammast sín fyrir að láta fólk bíða mánuðum saman efir tíma en svona er þetta víst í fleiri löndum en Íslandi
Æi litli kallinn…þetta er nú meira ástandið!!! Hrikalegt að þið þurfið að bíða svona lengi eftir að fá tíma…
Vona að kútinum batni fyrir eins árs afmælið!!
Knús,
Unnur.