Við þorum varla að vona en svefnþjálfunin virðist vera farin að virka. Við erum búin að sitja inni hjá Daníel síðustu 4-5 kvöld meðan að hann er að sofna. Ég er alltaf jafn hissa á úthaldinu hjá litla gæjanum en það hefur tekið alveg rúman klukkutíma að sofna. Kannski ekki skrítið því það rosa stuð að hafa pabba eða mömmu sitjandi hjá sér og starandi uppí loftið á hverju einasta kvöldi. Í kvöld lagði ég hann í rúmið og þurfti svo aðeins að skreppa fram en svo þegar ég heyrði ekkert í honum þá ákvað ég að fara ekki aftur inn. Nema hvað að svo sofnar hann bara eftir smá brölt og ekkert mál. Getur verið að svefnþjálfunin sé farin að virka svona fljótt?
Við getum ekkert annað gert en vonað það besta. Næsta mál á dagskrá er að fá Daníel til að lúlla lengur ! á morgnana…… to be continued…
Ég hélt alltaf að maður ætti að loka hurðinni og láta börnin orga þangað til þau myndu sofna sjálf en ekki stija og bíða eftir að Óli Lokbrá kemur. Er það alrangt? Ég er svo hrifin af því hvað þið eruð dugleg að lesa ykkur til og reyna hinar ýmsu aðferðir við hinu og þessu. Þegar ég loksins eignast barn má ég senda það til ykkar Karen og Einar??? 😀 PLÍS
Humm.. það er munur á frekju og að langa ekki að fara að sofa og aðskilnaðarkvíða. Það hlýtur að vera hræðilega tilfinnig að halda að í hvert skipti sem maður hverfur úr augnsýn þá sé maður farinn fyrir fullt og allt eða bara ekki lengur til.
Ég hafði greinilega ekki hugsað þetta neitt ítarlega. ÆÆÆ nú líður mér illa og finnst ég algjör gribba 🙁
Já þú er vond! Nei nei bara djók, þú ert fyrirmyndarfrænka 🙂 8)