Humm, þetta er farið að hljóma dáldið eins og sjúkraskýrsla þessi síða. Engu að síður þá er þetta bara eins og þetta er og í raun eina slúðrið sem við höfum uppá að bjóða 😎
Við fórum til Sigurveigar barna- og ofnæmislæknis í dag. Hún gerði ofnæmispróf á Daníel og það kom í ljós að hann er ekki með neitt fæðuofnæmi, allavegana ekki þessar algengustu tegundir. Okkur létti mikið en… afhverju er hann þá með svona slæmt exem? Jú, það hittir bara þannig á að Daníel er með slæmt barnaexem sem vonandi eldist af honum. Sigurveig gaf okkur mörg góð ráð sem við munum fylgja og svo eigum við tíma hjá henni aftur eftir mánuð. Við fengum líka nýtt sterakrem sem er vægara en það sem við vorum með fyrir. Það er greinilegt að þessi áburður sem við erum búin að vera bera á strákinn er of sterkur fyrir ungbörn. Ég hugsa til þess með hryllingi að við kláruðum næstum því flöskuna en maður treystir auðvitað á það að þessir læknar viti best 🙁 Við eigum líka að halda áfram að gefa honum ofnæmislyfið vegna þess að það er kláðastillandi og það fylgir mikill kláði exemi. Svo þegar maður klórar sér þá espir maður húðina og exemið þannig að þetta verður vítahringur. Nóg um það í bili.
Veðurguðirnir eru hættir að vera í fýlu og farnir að brosa við okkur loksins, loksins! Við erum búin að nýta okkur þetta góða veður og erum búin að fara niður á tjörn, spóka okkur í bænum og fara á róló. Vonandi heldur þetta áfram því manni veitir sko ekkert af smá sól á kroppinn. Ég fer svo í sumarfrí 1.júlí og þá er aldrei að vita nema að við Daníel leggjum land undir fót og skreppum kannski eitthvað með Ársæli afa. Einar fær ekki að koma með þar sem hann er búinn að vera svo óþekkur! Nei, bara djók. Við Einar getum því miður ekki tekið neitt sumarfrí saman í sumar þar sem Inga dagmamma tekur 2 mánuði í sumarfrí og ég á ekkert frí inni og verð að taka launalaust. Við skiptum því þessum 2 mánuðum á milli okkar og svo ætlar hún Hrefna amma að vera svo góð að hlaupa í skarðið inn á milli (grunar að hún sé alsæl með það 🙂 )
Að lokum viljum við óska Jökli afmælisbarni til hamingju með fyrsta afmælisdaginn í dag og við hlökkum til að sjá þig og pabba og mömmu á sunnudaginn 🙂