Flutningar + tanntaka = ÁRANGUR

…eða kannski ekki alveg. Jú, mikið rétt við fluttum um helgina og íbúðin okkar er meira og minna í kössum og svörtum ruslapokum as we speak. Við hittum líka svo vel á að Daníel er að taka sjöttu tönnina sína og er búinn að eiga voðalega mikið bágt um helgina. Fimmta tönnin kom okkur alveg að óvörum þar sem við vorum alltaf að stara á neðrigóminn (þar sem nr.6 er að koma) og svo bara einn daginn: ha, komin tönn þarna líka? Vonandi tekur þetta fljótt af því að hann finnur greinilega mikið til og er með nokkrar kommur af og til. Við gáfum honum lítinn stíl í gær og það sló á hitann en ekki svo mikið á óþægindin því miður. Svo var litli anginn alveg lystarlaus í gærkvöldi og vildi ekkert borða sama hvað ég bauð honum. Hann þambaði hins vegar mjólk eins og hann ætti lífið að leysa og að lokum tókst mér að koma í hann ískaldri ab-mjólk með mauki. Þetta hefur sennilega verið hitinn, maður þekkir þetta sjálfur þegar maður er slappur.

Daníel líst held ég samt nokkuð vel á íbúðina og hann er duglegur að fara í könnunarleiðangra enda mikið nýtt til að kanna og skoða. Hann er samt ekki eins hrifinn af sólskálanum eins og ég átti von á en hann á sennilega bara eftir að fatta þetta aðeins betur. Ég sé líka að honum finnst rosa sport ef maður fer út einu megin í eldhúsinu og kemur inn hinu megin. Eitt af okkar fyrstu verkum var að troða öryggisdóti í allar innstungurnar og setja horn á borðið og læsingar á skúffurnar. Það er nefnilega ótrúlegt hvað hann hefur mikinn á huga á þessu allt í einu núna. Restin af vikunni fer í að taka uppúr kössum og koma okkur fyrir en okkur líður öllum rosalega vel í íbúðinni og svo er ekki verra að eiga Völu, Hjalta og Jökul sem nágranna!

3 thoughts on “Flutningar + tanntaka = ÁRANGUR

  1. Sandra

    Til hamingju með að vera flutt. Gott að heyra að öllum líður vel ég vona bara að sumarið farið að koma til ykkar. Bæbæ dúllos

  2. vala

    Já bara verst að þessir nýju nágrannar ykkar eru ekkert duglegir að taka á móti ykkur. En til hamingju með flutninginn. Ég fer í sumarfrí 1. júní en þangað til er alveg klikk að gera.

Comments are closed.