Daníel er sköllóttur! Við ákváðum að raka hárlufsurnar af honum í þeirri von að hárið muni spretta jafnt og þétt. Litli gaurinn minnir óneitanlega á Kojak en nú þegar, nokkrum dögum eftir klippinguna er hárið byrjað að spretta. Hann verður orðinn fínn á afmælinu sínu. Þessi aðgerð okkar hefur vakið misjöfn viðbrögð og hefur m.a. amma Daníels efast stórlega um dómgreind okkar 😀
Líst vel á ykkur
Sammála ömmunni!
he he þetta er bara svalt.
Mér líst vel á Söndru og Steinu en Friðrik….hefur þú aldrei verið snoðaður? 😀
samkvæmt hárgreiðslufólki er það alger vitleysa að hár þykkni við að vera klippt… klipping og snoð er bara til snyrtingar… Löngu búin að spurja að öllu slíku, svo ef ykkur vantar einhvern tíma að vita “allt það sem þið alltaf vilduð spurja hárgreiðslumanninn en þorðuð aldrei” þá bara meila á mig. x
Já ég er nú sammála, ömmunni, Friðrik og Öldu. En nóg um það. Hvernig ganga flutningarnir, eitthvað ætlaði ég nú að vera duglegri í þeim málunum, ætlaði að hjálpa að bera kassa og svoleiðis. Við verðum nú að fara að hittast, ég er alveg að fara í sumarfrí.