Daníel er búinn að vakna á bilinu 5-6 alla vikuna og þegar hann vaknar er ekki séns að láta hann fara að sofa aftur. Við keyptum bókina Draumalandið, sem er um svefnvandamál barna, en hún hjálpar ekki mikið þar sem hún fjallar langmest um börn sem vilja ekki fara að sofa, eða sem eru alltaf að vakna á nóttunni. Daníel fer alveg að sofa á kvöldin, hann vaknar ekki á nótunni, við viljum bara að hann sofi aðeins LENGUR! Erum búin að prófa að láta hann vaka lengur og erum líka búin að líma fyrir gluggana í svefnherberginu þannig að það er vel dimmt þar inni en það hjálpar ekkert heldur. Lítur út fyrir að við verðum bara að sætta okkur við að vakna kl. 6 í sumar 🙁
Morgunstund gefur gull í mund og allt það… þið verðið bara að fara að sofa á sama tíma og Daníel. Hætta að horfa á CSI á kvöldin og horfa frekar á morgunþátt stöðvar 2 … 🙂
Ég held að það sé ekkert hægt að gera í þessu…Það er bara svoooooo rosalega gaman að vakna á morgnana þegar maður er svona lítill…af hverju erum við ekki svona líka???
Til hamingju með að vera búin að fá nýju íbúðina!!!