Fórum til skurðlæknisins í fyrradag og hann var sammála okkur um að naflaslitið væri mikið en hann vildi samt ekkert gera í þessu eins og er. Læknirinn sagði að það væri mjög, mjög sjaldgæft að garninir klemmdust á milli og þetta mætti bíða þar til hann væri 4-5 ára en samt bara fylgjast með þessu. Ég var fegin að vera bara búin að fá botn í málið og álit sérfræðings. Annars er bara lítið að frétta nema að ég er að fara frá strákunum á föstudaginn og til Danmerkur að heimsækja Láru mína. Það verður erfitt að slíta sig frá þeim en ég held að maður hafi bara gott af smá húsmæðraorlofi 🙂
Mikið er það nú gott að hann þurfi ekki að ganga í gegnum svæfingu og aðgerð alveg strax. Já ég verð spennt að heyra hvernig gengur hjá þér í húsmæðrarorlofinu. Ég fer frá mínum strákum í maí.
Hafðu það rosa gott í útlöndum 🙂