Þrjár flugur í einu höggi

Það hlaut að koma að því að við yrðum öll veik í einu. Þetta byrjaði í dag þegar Einar var slappur í maganum um hádegi og svo stuttu seinna mældist Daníel með hita. Þegar svona var komið þá ákvað ég að hætta við boðið sem ég ætlaði að halda á morgun. Það reyndist vera hárrétt ákvörðun því stuttu seinna var ég líka orðin slöpp. Ég er með gubbupest og Daníel er með hita og Einar er með einhverja skemmtilega og hressandi blöndu af þessu tvennu.
Við fórum að sofa stuttu á eftir Daníel í kvöld eða semsagt kl. hálf 9, þess vegna er ég líka vakandi núna!

Ég vona að við verðum öll betri á morgun af þvi að þetta er bara fáránlegt ástand hérna. Í kvöld vorum við að skiptast á að hlaupa á klósettið meðan að hitt reyndi að hafa ofan af fyrir Daníel sem stóð sig samt eins og hetja. Mig grunar að Daníel sé ekki með gubbupest af því að hann borðaði grautinn sinn með bestu lyst í kvöld meðan að bæði ég og Einar þurftum að gubba meðan að á máltíðinni stóð.

2 thoughts on “Þrjár flugur í einu höggi

  1. Alda.

    Elskurnar mínar. Muna svo bara gömlu heimilisráðin: soðið vatn, hrært kók og tekex. Vona þið náið þessu fljótt úr ykkur. x

  2. Unnur

    Æ æ ég vona að þið hressist fljótt greyin mín!Við könnumst við þetta, erum nýstigin upp úr svona veikindum hérna. Það er hins vegar ekki hægt að kenna okkur um að hafa smitað ykkur…nema þá í gegnum msn 😉

Comments are closed.