Útbrot

Jæja, litli gaurinn þarf bara að fara til læknis í dag. Hann er búinn að vera með útbrot núna í nokkra daga, héldum fyrst að það gæti verið útaf Vicks kreminu sem við settum á bringuna á honum en þetta hefur ekkert batnað þó við hættum að nota það. Erum búin að reyna að bera Mildizon krem á þetta í nokkra daga en virðist ekkert hjálpa. Þetta eru svona rauðir flekkir og svo er húðin svona hálfgróf sumstaðar 🙁 . Vonandi getur læknirinn bent á eitthvað krem eða eitthvað til að laga þetta. Annars er hann líka kominn með niðurgang aftur, gáfum honum soyamjólk í gær í staðinn fyrir stoðmjólk og hann þambaði hana eins og vitlaus maður. Þá kom í ljós að hún var díííísæt þannig að hann var bara mjög sáttur! En já, vonandi fer þetta allt að batna, og fljótlega reynum við að ná myndum af efri tönninni sem er komin og setja inn á netið.

2 thoughts on “Útbrot

  1. Sandra

    Oj sojamjólk mig hryllir við tilhugsuninni. En auðvitað þótti honum hún góð sykursætur strákurinn 🙂

  2. Alda.

    Þegar ég opna síðuna hans Daníels og sé myndina af honum, bráðna ég gjörsamlega. Hann er algjör engill.

Comments are closed.