Áframhaldandi skrif

Jæja þið segið nokkuð! Það virðist vera áhugi fyrir áframhaldandi skrifum um litla pjakkinn okkar. Við getum víst heldur ekki verið að bregðast öllum “útlendingunum” okkar. Við munum reyna að skrifa hérna áfram reglulega þótt það muni kannski líða dáldill tími á milli. Ég hvet ykkur líka til að commenta eða skrifa í gestabókina. Svo væri nú líka gaman ef EINAR myndi skrifa endrum og eins hérna inná síðuna hjá eina barninu sínu!

Annars er Daníel veikur núna eina ferðina enn og í þetta skipti er það kvef og hósti. Litla greyið getur lítið sofið á nóttunni vegna hósta og óþæginda. Við fengum okkur í dag eukalíptus dropa til að setja á koddann og vonandi munu þeir létta honum öndunina.

5 thoughts on “Áframhaldandi skrif

  1. Hrefna

    Karen mín, mikið er ég glöð yfir þessari endurskoðun þinni!
    Vona að litli kallinn sofi vel í nótt, sjáumst á morgun.
    Hrefna tengdó og amma. 🙂

  2. alda.

    It’s a deal. Vona að þetta verði nú síðustu veikindin hjá litla skinninu (nú hljóma ég eins og mamma) í bili. x

  3. Sandra

    Já ég er nú alveg í skýjunm að þið ákváðuð að loka ekki síðunni hans Daníels. Það er fastur liður hjá mér að kíkja hvað er helst í fréttum af prinsinum. Segi bara HÚRRA 🙂

  4. Steina

    Góð ákvörðun, þið munuð líka sjálf hafa gaman af því að rifja hitt og þetta upp um hann Daníel seinna meir, þetta gleymist hrikalega fljótt.

Comments are closed.