Sögulok

Jæja það er komið að sögulokum. Við erum að spá í að hætta með síðuna eða allavegana að hætta að skrifa inná hana og dæla myndum. Það er svona mesta nýjabrumið farið af þessu og heimsóknum hefur fækkað jafnt og þétt. Við þökkum öllum þeim sem hafa fylgst hérna með Daníel og okkur foreldrunum síðan í júní og hafði það sem allra best. En þetta eru ekki endalokin, við erum með tæki sem er kallað sími (meir að segja þrjá!) og fólk notar þetta til að eiga samskipti. Svo þið auðvitað alltaf velkomin í heimsókn ;).

4 thoughts on “Sögulok

  1. Alda.

    Ég mótmæli harðlega !!!!!!!!! Ég kíki inn á þessa síðu á næstum hverjum degi! Þessar síður þeirra feðga eru aðal skemmtiefni mitt og mesta contactið mitt við fjölskylduna!!!!!!! Þarf ég að búa til undirskriftalista??? Svo verður líka bara svo gaman fyrir Daníel sjálfan að lesa þetta allt um sjálfan sig þegar hann er orðinn stór. Ég mótmæli harðlega í nafni Daníels líka.

  2. Steina

    Jáhérna!!

    Ég er eiginlega bara í sjokki, er þetta ekki djók Karen eða?

    Ég kíki alltaf annað slagið og ætlaði mér alveg að halda því áfram, finnst rosalega gott að sjá hvað er að frétta þó ég sé ekki dugleg að hringja.

  3. Fridrik

    Sammala Oldu. Madur ser lika ekki neinar myndir gegnum thetta sima taeki. Annars get eg litid sagt um thetta thvi eg set aldrei myndir inn a siduna hans Tomasar!

Comments are closed.