Ég hafði samband við heilsugæsuluna þar sem ég var farin að hafa áhyggjur af þessu mallaveseni hans Daníels. Hjúkkan sagði mér að þetta gætir verið komið í einhvern vítahring og að hann vantaði sennilega öll steinefni og að ég ætti að gefa honum einhvern ORKUDRYKK! Hún var að meina gatorade eða powerrade sem eru fljót að vinna upp vökvatap. Ég ræddi þetta fram og til baka við hana en hún sannfærði mig um að þetta væri allt í góðu og ég ætti líka að gefa honum LGG fyrir gerlana. Jæja, ég fylgdi þessum ráðum enda komin frá fagmanneskju og fór og verslaði þetta. Fór svo heim og hugsaði að það væri eins gott að þetta myndi virka. Það er ekki hægt að segja annað en að Daníel var hrifin af orkudrykknum en það var ekkert í líkingu við þegar hann prófaði LGG-ið! Guð, minn góður! Ég var fljót að átta mig að ég hafði opnað fyrir flóðgátt og Daníel var ekki síður hrifinn af umbúðunum en innihaldinu. Svo seinna um kvöldið er ég að taka til eftir kvöldmatinn og tek flöskuna og þá bara alveg tryllist Daníel og róast ekki fyrr en ég gef eftir og læt hann fá hana. Staðan í dag er sú að ég er búin að fela LGG-ið aftast í ískápnum og planið er að við Einar drekkum þetta þegar Daníel er farinn að sofa á kvöldin!
Annað sem er nýtt hjá okkur er það að ég er búin að skrifa undir starfsamning hjá Landsbankanum og er að fara að byrja að vinna núna á þriðjudaginn. Deildin sem ég er að fara að vinna í heitir varsla og viðskiptaumsjón og er staðsett í Hafnarstræti 7 og vinnutíminn er sveigjanlegur milli 8 og 18. Starf mitt mun felast í því að sjá um nokkra lífeyrissjóði sem eru í þjónustu hjá bankanum,bókhald og skýrsur og fleira spennandi. Þetta er vel launað og það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég kom út eftir að hafa verið búin að skrifa undir var: “Nú ætla ég að kaupa nýja kerru handa Daníel!” Þannig að ég skundaði niður í Smáralind og kom út með þessa fínu kerru. Hún verður notuð til að ferja Daníel yfir til dagmömmunnar á morgnana og svo sækir Einar hann um eftirmiðdaginn.
Þannig að við erum bara mjög hress og nú ætlum við að herða á róðrinum varðandi íbúðarmálin og ég held að við séum eiginlega búin að ákveða Fossvogin sem framtíðar aðsetur.
Jæja, þarf að fara að vekja Daníel. Við erum að fara í 8 mánaða skoðun og sprautu núna í hádeginu.
Vá til hamingju með nýja starfið!!! Vá hvað það hlýtur að vera góð tilfinning að vera komin með svona fína vinnu 🙂 Líst vel á Fossvoginn, hafiði séð eitthvað spennó?
Hvernig kerru keyptirðu handa Daníel???
Knúsímús,
Unnur og Tómas.
Enn og aftur til hamingju með vinnuna. Mér líst MIKLU betur á Fossvoginn heldur en Grafarvoginn. Geturðu ímyndað þér, það væri svolítið erfiðara fyrir mig að heimsækja þig allaleið upp í Grafarvog hehehe 😀 Bara smá aulahúmor.
Það var nú alveg mál til komið að prinsinn fengi nýja kerru, það verður að fara vel um hann á ferðalögum 😉 🙂
úps..
Enn og aftur til hamingju karen mín…
er rosalega stolt af þér…
Til hamingju med vinnuna og kerruna! Líst rosa vel á Fossvoginn – (mun betur en á Grafarvoginn.) Hmmm… er bara ad endurtaka allt sem allir hinir eru bunir ad segja, en erud thid buin ad skoda eitthvad i Fossvoginum? x alda.
Svo megid thid endilega setja inn fleiri myndir af Daniel… 😉
já þetta er einhver mynda-leti hérna á heimilinu. Verðum að bæta úr því t.d. með því að finna hleðslutækið fyrir myndavélina 😀
Hvurslags kæruleysi er þetta hjá foreldrunum að týna hleðslutækinu svo fjölskylda og vinir geti ekki fengið myndir til að dást að prinsinum. Hann daníel ætti bara að vera móðgaður 😉 🙂 😀 8)
kveðja Sandra hehehe