Daníel er búinn að vera mjög slappur í maganum í meira en viku núna og þessu fylgir alveg pípandi ….! Greyið litla skinnið harkar samt af sér en er á köflum orðinn mjög rauður á bossanum 🙁 .Hann heldur engu og maður er látlaust að skipta á honum. Á sunnudaginn tók ég hann uppúr klukkan hálf 8 og klukkan 9 var ég búin að skipta 4 sinnum á honum! Það eru allir að segja mér að þetta fylgi tanntöku og það er alveg rétt að það er ein tönn uppi alveg við það að brjótast í gegn. Ég ætlaði að tala við þær í ungbarnaeftirlitinu á mánudaginn þegar hann átti að fara í 8 mánaða skoðun en tímanum var frestað þangað til á föstudag. En hann er búinn að vera að borða rosalega vel og drekkur svakalega mikið en af því að þetta er kominn svo langur tími þá ætla ég að heyra í þeim þarna niður á heislugæslu.
Ég get nú rétt ímyndað mér að greyið sé mjög þjáður í bossanum. Ekki vildi ég vera með nibbara í meira en viku og bleyju í þokkabót. ÁTZZ 🙁