Lítið að gerast

Lítið að gerast hjá okkur þessa dagana, Daníel er hjá dagmömmunni og ég er bara að stússast í atvinnuleit og ýmsu öðru sem til fellur. Við fórum í síðasta sundtímann í gær og er Daníel núna formlega útskrifaður sundkappi. Hann er alveg þrusuduglegur að kafa og er alveg óhræddur í vatninu og við erum líka orðin mjög örugg með hann í sundi. Ég mæli tvímælalaust með svona námskeiði en ég er ekki viss um hvort við förum á framhaldsnámskeiðið sem verður í maí. Við verðum bara að vera duglega að fara í sund núna í framhaldinu og ég er að spá í að setja bara fastann tíma í sund t.d. á laugardagsmorgnum (humm… eða í hádeginu). Það væri kannski bara gaman að fá alla krakkana saman (Ísold, Jökul, Jakob og Maríu) og gera þetta að rútínu tvisvar í mánuði eða eitthvað. Spáum í því.
Svo fórum við í gær að kaupa hókus-pókus stól til að hafa hjá ömmu og afa í Háaleitinu. Keyptum þennan fína notaða stól með auka sessu á 3500 kall. Okkur Einari finnst þetta mjög töff stóll og miklu skemmtilegri en þessi TrippTrapp stóll sem við erum með núna. Þetta eru auðvitað stólarnir sem voru aðalmálið þegar við vorum að alast upp, spurning hvor stóllinn fer uppí Háaleitið 🙂 .
Eitt að lokum. Í nótt svaf Daníel nánast heila nótt án þess að vakna frá 9-7!!! Þið sem eruð vön því að fá að sofa alltaf óáreitt gerið ykkur sennilega ekki grein fyrir því hverskonar lúxus þetta er fyrir okkur. Við vöknuðum semsagt öll í rosalega góðu skapi í morgun, útsofin og hress. Vonandi verður þetta svona áfram….en ég ætla ekki að treysta á það 😉 .

4 thoughts on “Lítið að gerast

  1. Vala

    Jú við gerum okkur sko grein fyrir þessum lúxus. Jafnvel þó að Jökull sofi oft alveg frá 9 til 7 þá vakanar j-hann samt oftast 1-2x og þarf að fá snuðið eða bara aðeins að láta í sér heyra. Svo þegar þessar nætur detta inn þar sem við sofum öll alla nóttina þá er maður alveg endurnærður.

  2. Karen

    Hókus-pókus stóllinn er í prufukeyrslu núna, sjáum til. Það sem máli skiptir er að Daníel getur setið með okkur til borðs næst þegar við komum.

Comments are closed.