Sjúkdómsgreiningin

Þá eru veikindin liðin hjá. Daníel var hitalaus á laugardaginn en svo um kvöldið var greyið komið með útbrot á maganum, bringunni, höfðinu og bakinu. Þá ákváðum við að skjótast niður á læknavakt og láta athuga strákinn. Það tók á móti okkur mjög alvarlegur læknir og eftir stutta skoðun þá sagði hann: Þá vitum við hvað þetta er…. Ég auðvitað panikaði: HVAÐ ER AÐ HONUM???? Sjúkdómsgreiningin var Mislingabróðir sem er víst væg veirusýking, mjög algeng hjá börnum undir 1 árs. Þetta lýsir sér einmitt með smárokkandi hita í 3-4 daga og svo koma útbrotin í ljós og hverfa á ca. 12-24 tímum. Við vorum mjög ánægð að heyra þetta og viti menn strax í gær var strákurinn farinn að hressast og svaf alveg 3-4 tíma yfir daginn.

Ég hef vissan grun um það að Daníel hafi smitast af Jökli vini sínum en hann var einmitt búinn að vera með svona smá hita í nokkra daga. En þá eru þeir bara búnir með þetta, held að þetta komi bara einu sinni án þess að vita það. Ég væri ekki hissa ef við fengjum heyra allt um þessa veiru frá Agli afa sem er meinafræðingur á Landspítalanum 😉 .

Daníel er núna kominn aftur til Ingu dagmömmu og við vonum að þessi langa fjarvera hafi ekki alveg gert aðlögunina að engu.

2 thoughts on “Sjúkdómsgreiningin

  1. Alda

    Sem dóttir þessa meinafræðings er ég nokk viss um að maður geti bara fengið sama vírusinn einu sinni. 😉

  2. Vala

    haha, en fyndið við erum akkúrat búin að vera að ganga í gegnum allt þetta sama. Og við erum akkúrat að prísa okkur sæl yfir því að vera hvorki einsæðir foreldrar né foreldra langveiks barns. En annars grunar okkur að Jökull hafi smitast af Daníel því Jökull veiktist ekki fyrr en á miðvikudag. En sem sagt útbrotin eru akkúrat að ganga yfir núna og við ætlum bara að sleppa sundinu í dag.

Comments are closed.