Daníel er veikur 🙁 . Hann er búinn að vera með hita í tvo daga og er ekkert að skána sýnist mér sama hvað hann fær mikið af hitalækkandi. Þetta byrjaði á mánudagseftirmiðdaginn að við fundum að hann var heitur en spáðum ekkert meira í því þar sem að hann var mjög hress. Svo mældum við hann fyrir svefninn og hann var með 38,8 þannig að hann fékk stíl og svo að sofa. Það var ekki mikið sofið og um nóttina var hann kominn með 39,8 hita. Við auðvitað sem “first time parents” gripum í símann og hringdum í læknavaktina! Konan sem svaraði skildi mig alveg og róaði mig. Sagði að þetta væri bara pest sem hann hafði sennilega fengið hjá dagmömmunni sem hann var að byrja hjá.
Svo vaknaði hann daginn eftir hitalaust en eftir hádegi byrjuðu veikindin aftur og svo hefur hann verið að kasta pínu upp með. Annað sem fylgir er að hann er frekar lystarlaus og maður þarf að hafa fyrir því að láta hann borða og hann er ekkert spenntur fyrir að fá að drekka hjá mér sem mér finnst nú pínu leiðinlegt.
Mér finnst verst hvað hann missir mikið úr hjá dagmömmunni þar sem að aðlögunin gekk svo vel en við verðum örugglega ekki langt frá byrjunarreit þegar hann loksins mætir aftur úr veikindafríinu.
Vonandi fer Daníel að hressast sem fyrst, manni finnst maður vera svo vanmátta að horfa uppá hann svona veikann og geta ekkert gert í því og ekki bætir úr að Einar er að vinna langt fram á kvöld alla þessa viku.
Æææ aumingja litli kúturinn, það hlýtur að vera svoooo erfitt að vera lítill og lasinn:( Sendu honum batnaðarkveðjur og knús frá mér 🙂 Hvernig gengur annars atvinnuleit?
Greyið litli gaurinn. Hann var svo slappur en samt svo góður í gærkvöldi. Daníel er algjört æði sem ég hafði nú alveg búist við.
Ég hef lítið getað verið í atvinnuleitinni núna útaf veikindunum. Daníel er ennþá með hita og er þetta þriðji dagurinn Nú má ég ekki gefa honum meira hitalækkandi en hjúkrunarfræðingurinn sagði mér að koma með hann ef hitinn fer upp fyrir 39 gráður.