Besti hlutur í heimi!

Nivea dollanDaníel á ansi mikið af leikföngum. Hann á allskonar tuskudýr, hringlur, dót til að naga, óróa, leikteppi o.fl. Ekkert af þessu kemst samt í hálfkvisti við það sem Daníel finnst vera BESTI OG STÓRKOSTLEGASTI HLUTUR Í HEIMINUM! Besti hlutur í heimi, sá sem allt dót fölnar í samanburði við, er frekar stór, hvít dolla með Nivea soft rakakremi. Þegar Daníel liggur á skiptiborðinu og lítur til hliðar og sér Nivea dolluna þá tekur hann andköf, spennist allur upp og starir á hana. En það er ekki nóg, hann vill líka fá hana til sín, til að halda á og naga og virða fyrir sér. Í fyrradag var hann frekar pirraður eitthvað á leikteppinu sínu, var svona á mörkunum að það þyrfti að fara að taka hann upp. En þá kom ég með Nivea dolluna, hélt henni fyrir ofan hann og sneri í hringi og þá var hann bara skælbrosandi og starði á dolluna góðu með glampa í augunum. Þetta er ekki einu sinni rakakrem sem við notum á Daníel þannig að það er ekki að honum finnist kremið gott, það er bara útlitið og lagið á dollunni sem er svona stórkostlegt! En þetta er fínt, gott að hann er svona ánægður. Í jólagjöf er ég að hugsa um að gefa honum tannkremstúpu, sjá hvort það verður ekki vinsælt líka.

One thought on “Besti hlutur í heimi!

  1. Hrefna

    Og ég var einmitt að kaupa handa honum þennan fína brúsa með hárnæringu, hann hefur þá nóg til að leika sér að um jólin ! 😀
    Amma.

Comments are closed.