Daníel er búinn að vera ansi pirraður síðustu daga, búinn að gráta frekar mikið og vera órólegur. Við vorum ekki viss hvort hann væri að taka tennur eða hvort honum væri illt í eyrunum eða hvað, en grunaði helst að það væru tennur því hann nagaði gjörsamlega allt sem hann kom nálægt. Svo í gærmorgun var Karen að skoða góminn á honum og þá sá hún glitta í tennur í neðri gómnum! Ekki bara eina heldur tvær framtennur! Í gærkvöldi gat maður svo greinilega fundið fyrir tönnunum þegar Daníel beit í puttann á manni. Við keyptum deyfigel fyrir góminn svo hann fyndi ekki jafn mikið til en þegar við reyndum að setja það á góminn sleikti Daníel það strax af og kjamsaði á því af bestu lyst, enda er gelið með svakalegu lakkrísbragði. Það er greinilegt að Daníel ætlar að taka forskot á sæluna og borða jólasteikina með okkur!
Vá stóri strákur til hamingju með það. Passaðu þig bara Karen mín, þá er ekki langt fyrsta bitið hjá þér við brjóstagjöf… 🙂
Rosalega gerist þetta allt hratt.
Daníel veit greinilega að mamma hans ætlar að hafa gómsæta jólasteik 😀
Jebb, hann verður farinn að ganga þegar þú loksins kemur 😉
Daníel: Til hamingju með tennurnar !
Karen: Til hamingju með afmælið ! Ég vildi nú reyndar meina að afmælið þitt væri 15. des en mamma var alveg á því að það væri 13. des ? Vonandi að Daníel bíti ekki svona í tilefni dagsins. Eigðu góðan afmælisdag! Knús x
Já ELSKU KAREN mín
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ…
ég er búin að vera svo eigingjörn og niðursokkin í fockidsfjdsfjksng vísindaheimspeki argh argh ….Að ég gleymdi að óska þér til hamingju 🙁
ég knúsa þig extra fast annað kvöld, finnst þetta rosalega leiðinlegt…
knús knús
Til hamingju med tonnina 🙂 Thid vinirnir getid tha nartad i jolasteikina saman…thu hefur reyndar forskot thvi Tomas er bara med eina!