Ungbarnasund

Fórum í ungbarnasundstíma í dag og það var þrusustuð hjá okkur öllum. Þar sem ég missti af síðasta tíma vegna prófa þá var ég pínu óörugg til að byrja með en var svo ekki lengi að dífa Daníel á bólakaf þegar kennarinn gaf leyfi. Einar hins vegar…. er algjör gunga! Hann þorði ekki að dýfa Daníel nema rétt niður að nefi og svo strax upp aftur!!! hehehe! Hann er eitthvað að reyna að tala um fyrir mér núna en ég veit alveg hvernig þetta var. Humm… væri ekki hissa ef þessi færsla yrði allt í einu horfin eða mjög breytt þegar ég les hana á morgun….

Daníel var rosalega sáttur við að komast í vatnið og fékk góða útrás fyrir ærslagang og spriklaði eins og fiskur í höndunum á okkur! Annars erum við mæðginin óðum að komast í hátíðarskap og Vala og Jökull eru að koma til okkar á morgun í jólakonfektgerð! Svo held ég að það sé farinn að verða kominn tími á að ég baki eitthvað af jólasmákökum og piparkökum í nýju fínu eldavélinni minni! Svo væri ekki verra ef það myndi nú snjóa aðeins og til að toppa allt þá mættu kennararnir mínir fara að setja inn einkunnirnar mínar til að ég fái nú smá sálarró í jólafríinu 🙂 .

4 thoughts on “Ungbarnasund

  1. Sandra

    Tek i sama streng og Alda. nammnamm geturdu geymt eina piparkoku handa mer?? og kannski einn konfektmola er eg kannski of gradug!!!!! 🙂

  2. Karen

    Auðvitað geymi ég handa þér Sandra mín! Kannski ég taki líka eitthvað frá fyrir Pete til að hann verði ekki útundan. Það verður aldeilis samgangur á milli okkar um hátíðarnar þar sem það er orðið aftur svona stutt á milli 😉

  3. Sandra

    Algjör óþarfi að geyma handa honum kökur hann vill bara súra hrútspunga hehehehe 😀 Það er meiningin að mana hann upp í að prófa, þar sem hann segist prófa allt einu sinni. hihihi 😀 😀

Comments are closed.