Daníel sem er búinn að ná núna fullum tökum á rúllutækninni, finnst ekkert skemmtilegra núna en að liggja á maganum. Ef við setum hann á bakið þá er hann búinn að velta sér yfir á augabragði. Þessi skyndilega rúllutækni kom okkur í opna skjöldu og þá sérstaklega Einari. Þannig var að Einar fór inní eldhús að búa til graut handa Daníel sem lá á teppi inná stofugólfi. Það er hægt að sjá beint innan úr eldhúsinu þar sem Daníel liggur alltaf í stofunni en þegar Einar er síðan að koma inní stofu þá er DANÍEL BARA HORFINN! En hann fór nú ekki langt, náði bara að rúlla sér nokkrum sinnum og útaf teppinu og þar með úr augnsýn! Ég held að hann hafi ætlað að kíkja í heimsókn til mín í skólann 🙂 . Ætli það fari ekki að fara bráðum að koma tími á leikgrindina?
Um leið og Daníel varð svona spenntur fyrir því að rúlla sér þá kom annar áhugi samfara því og það er að skríða!!! Hann er nú ekki byrjaður að skríða en hann er byrjaður að reyna að lyfta bossanum og hreyfa lappirnar með, þó með litlum árangri enn sem komið er. Ég veit ekki hvað eg er búin að reyna oft að lyfta upp bossanum á honum og kenna honum svona handa og fótatökin en það hefur alltaf komið fyrir ekkert. Það er greinilegt að börnin láta ekkert ýta á eftir sér í svona efnum heldur fara bara á eigin hraða, í þessu tilfelli ljóshraða 😉 . Ég held ég standist ekki mátið og ætli að fara að kaupa handa honum einhverskonar skriðsokkabuxur sem eru með eitthvað stammt efni á hnjánum.
Ég er að fara í próf í dag (jákvæðir straumar milli kl 14-17 eru vel þegnir) og Einar ætlar að fara í millitíðinni með Daníel í vigtun og svo í ungbarnasundið sem ég því miður missi af í þetta skipti. Ég vona að Daníel hafi þyngst eitthvað af viti núna því að hann borðar eins og hestur! Svo er hann líka búinn að taka sig á í mjólkurdrykkjunni, held að hann hafi bara verið hálflystarlaus útaf kvefinu og hóstanum.
Það er eitt búið að vera að angra mig dáldið og það er hvað það eru margir búinir að koma inná þessa síðu og ég veit ekkert hverjir það eru. Þetta fer að nálgast 3000 hitt og ég veit auðvitað að nánasta fjölskylda og vinir kíkja hingað en hvað með allt hitt? Og enginn skrifar í gestabókina eða kommentar eða neitt. Mig er farið að gruna að fólk útí bæ sem kannski rétt þekkir okkur Einar sé að lesa hérna um heimilislífið hjá okkur og ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það. Kannski maður ætti að setja inn password… Einhverjar skoðanir á því?
Ég er með skoðun 🙂 Ekki setja password, frekar skamma mig fyrir að skrifa ekki í gestabókina. Þetta er reyndar bara annað skiptið sem ég kíki hingað, lofa að skrifa næst 😉
Karen mín, ég kíki næstum á hverjum degi svo 5 mánaða aldur Daníels x 30 dagar gera ca.150 af þessum heimsóknum- og þetta er bara ég ! Svo er Egill og allir aðrir í báðum fjölskyldunum og vinirnir -allir þeir sem þykja vænt um ykkur, þetta er fljótt að koma ! 🙂
Hrefna
Ég á líka slatta af thessum heimsóknum! Vá hvad hann hefur staekkad – madur getur bara fylgst med á myndum hédan frá Spáni! Bestu kvedju Agla
PS Atli bidur ad heilsa
Ég á örugglega svona 2500 heimsóknir, er alltaf að kíkja á ykkur 😉
Jæjja það er gott að vita Þið megið endilega vera duglegri að skilja eftir ykkur smá vísbendingar um veru ykkar hér. Annars eru víst líka margir með link á þessa heimasíðu.
Vinir minir sem fara a mina sidu ramba natturulega a siduna og svo adur en eg fekk netid heima var eg alltaf a mismunandi tolvum a netkaffihusum sem eru orugglega allar skradar sem mismunandi gestur thannig ad eg efast um ad thetta seu einhverjir 3000 okunnugir ad kikja hingad. Eg kiki natturulega herna i hvert skipti sem eg fer a netid lika.
Eg segi baedi ja og nei um passwordid.
Skil vel ad thu viljir ekki ad Petur og Pall ut i bae seu ad lesa um ykkar daglega lif. En gud hvad folk ma vera einmanna ef thad er ad lesa um folk sem thad thekkir ekki neitt 🙁
Kvedja Sandra
ps. ertu i afmaelisundirbuningi nuna? Aetlardu ad gera e-d spes?? 🙂
Já ég myndi ekki setja password bara síðast í dag fékk ég skrif í gestabókina hennar halldóru ísoldar frá Debby sem var með mér í grunnskóla, hún var svo himinlifandi yfir að hafa rambað inn á síðuna. Það er ótrúlega gaman að fá svoleiðis heimsóknir líka.
Jæjja ekkert password skal það vera 8)
Ég verð nú að segja að mér finnst öruggara að hafa password inn á síðuna hans Tómasar…ég er nú líka frekar paranoid en ég heyrði einhvern tímann að það væru fullt af perrum sem héngu á barnalandi…ég vil a.m.k. ekki taka sénsinn á því…en það er bara mín skoðun! Þið eruð líka ekki með síðuna ykkar inni á barnalandi þannig að það er meira seif.