Gera tvennt í einu

Konur segja oft að karlmenn geti ekki gert fleiri en einn hlut í einu. Þetta er rangt. Tökum Daníel Mána sem dæmi, hann getur gert tvennt í einu, þ.e. borðað og kúkað! Núna þegar hann er að fá graut þá er hann búinn að taka uppá því að kúka í leiðinni. Hann er kannski búinn að fá svona 3-4 skeiðar og þá allt í einu sér maður þvílíkan rembingssvip og lyktin gýs upp! Samt heldur hann áfram að borða eins og ekkert sé. Hann hefur væntanlega hugsað með sér “hmmm, ég er alltaf að borða, og alltaf að kúka. Af hverju ekki að sameina þetta tvennt og spara smá tíma?”. Þetta held ég að sé fín þróun og sýni að Daníel hafi heilmikla hæfileika í verkefnastjórnun!

5 thoughts on “Gera tvennt í einu

  1. Vala

    nákvæmlega, nýta tímann. Nú líst mér vel á hann að vera svona skipulagður. Glatað að þú missir af sundinu á mánudaginn. En gangi þér nú vel að lesa og í prófinu.

  2. Karen

    Einar minn, ætlarðu ekki að fara að skirfa um eitthvað annað en “hægðir” hérna á síðunni hjá syni þínum?

  3. Alda

    Til Karenar: Hvad faidi eiginlega langt jolafri ? Ofunda thig ekkert sma. Skoli hja mer alla daga, 7 daga vikunnar (ja, lika a sunnudogum), fra og med 5. desember fra niu a morgnanna til atta a kvoldin – til 23.desember, og thar sem thad var gaur ad baetast i hopinn okkar og thad vantar extra dag, tha a kannski ad nota 24da lika !!! x

  4. Karen

    Jólafrí? Alda mín mömmur fá aldrei jólafrí, sumarfrí, veikindafrí……. En ef þú ert að meina að gera minna af einu (skóla) og meira af öðru þá er ég búin 2. des. 😀

Comments are closed.