Jæjja ég fékk þá frábæru hugmynd í dag að breyta svefntímanum hans Daníels og reyna að láta hann sofa einn langann lúr á daginn eins og vinur hans Jökull gerir. Þannig að Daníel vaknaði kl.6 (eins og venjulega) og við foreldrarnir reyndum að þrjóskast við (eins og venjulega) að taka hann uppí til okkar strax en gáfumst svo auðvitað upp(eins og venjulega) eftir 10-15 mín. Þannig að minn er síðan hálfvakandi til rúmlega 7 þegar við gefumst endanlega upp á svefninum og förum á fætur. Síðan tökum við Daníel smá kríu um 9 leytið í 15-20 mín, eða öllu heldur Daníel þar sem ég var rétt að sofna þegar hann vaknaði. Svo er hann góður til rúmlega 11 og þá gef ég honum hafragrautinn til öryggis(mjög erfitt að mata þreytt og pirrað barn) og svo þykist ég sjá á honum þreytumerki um hálf 12 þannig að ég gef honum að súpa og svo beint út í vagn. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar að nú myndi hann kannski sofa í rúma 2 kannski jafnvel 3 tíma!!! Neibb, ég var rétt búin að borða og búa til barnamat þegar minn vaknar, eftir aðeins klukkutíma svefn, alveg snældvitlaus! Þannig að ég bregð á það ráð að fara með hann út í góða veðrið að labba og sem betur fer datt mér í hug að taka með mér þurrmjólk í pela bara til öryggis. Daníel áfram brjálaður og ég þýt með hann út þannig að ég er ekki einu sinni búin að klæða mig almennilega í úlpuna áður en hurðin skellist á eftir mér. Látunum linnir ekki hjá Daníel sama hvað ég rugga og hugga og gef snuð, ekki fyrr en ég gef honum pelann. Það var eins og barnið hafði aldrei fengið að borða áður og á stuttum tíma runnu 170 ml ljúflega niður í mallann á stráknum. Við skulum ekki gleyma að fyrir tæpum tveim tímum fékk hann risaskammt af hafragraut sem er lengi að meltast og mjög seðjandi + mjólkin frá mér og svo var hann sofandi. Þessi strákur er greinilega sonur pabba síns; botnlaus! Jæja, þá hætti hann að gráta loksins en að fara sofa? Think again! Þannig að ég held áfram að ganga og ganga og ganga af því að veðrið var svona gott og svo loksins um tvö sofnar hann og er búinn að vera sofandi síðan (klukkutími). Ég veit ekki hvort ég ætti að prófa þetta aftur á morgun…. sé hvað hann sefur lengi núna.
Annars er fátt skemmtilegra hjá Daníel núna en að grípa í tásurnar og velta sér heilann hring, auðvitað í tveim lotum. Fengum svo Völu og Jökul í heimsókn í gær. Við mæðurnar lögðum strákana saman á leikteppið eftir að þeir voru vaknaðir og það er stysst frá því að segja að Daníel átti fótum sínum fjör að launa ef hann bara gæti labbað! Jökull var bara í því að toga og pota í Daníel þannig að það var varla óhætt að skilja þá saman eftir meðan að við mæðurnar hömuðumst í jólakortagerð. Ekki bætti úr að Daníel er dáldið viðkvæmur og grátgjarn þannig að um leið og hann fann að það var verið að brjóta eitthvað á sinn hlut þá var skeifan fljót að koma og ég auðvitað þurfti að hlaupa til til að hugga. Jæjja ég ætla að nýta þennan tíma meðan að strákurinn er sofandi og reyna að gera eitthvað hérna heima…. heyrðu, hann er VAKNAÐUR!
hei gella, Jólasveinarnir eru eftir allt 13 Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottaskefill, Askasleikir, Hurðaskellir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur, Kertasníkir. Mömmur vita greinilega ekki alltaf allt best 😉
já þessar mömmur eru alltaf að svindal á manni! Það eru örugglega margir sem fara á mis við 5 gjafir útaf því að þau taka orð foreldra sinna trúanleg. 🙂