Próflestur = mikið að heiman

Jæjja þá er prófatíð að ganga í garð. Ég fer sem betur fer ekki nema í 2 próf en það er nú alveg nóg þar sem ég get ekki lært nema í 4 tíma á dag og svo um helgar. Þetta gerir það að verkum að ég sé Daníel voðalega lítið á kvöldin og ennþá minna um helgar og ég sakna hans alveg svaaaaaaaakalega mikið.

Ég held að Daníel sé heldur ekki ánægður með þetta. Hann lýsti skoðunn sinni á þessum lestri best í gær með því að ÆLA YFIR GLÓSURNAR MÍNAR! Vonda mamma! Greinilegt að ég verð að bæta honum þetta upp í næsta mánuði 😉 .

4 thoughts on “Próflestur = mikið að heiman

  1. Steina

    oh

    já mér líður einmitt líka svo illa. Ég fór í morgunn frá snúllunni minni auk þess sem hún er í pössun frá 8-17 alla virka daga. mér líður ótrúlega illa yfir þessu.
    Ég fer í 3 próf og á eftir um 50-60% af námsefninu. 🙁

  2. Anonymous

    Haha, ældi á glósurnar. Þvílíkt og annað eins. Greyin mín, ég öfunda ykkur ekki af þessum prófum. Gangi ykkur vel. 🙂

Comments are closed.