Fórum í fyrsta ungbarnasundstímann í gær og það var svaka stuð. Var nú ekki mikið gert annað en að láta börnin venjast vatninu rólega. Ég var nú dáldið fegin að þau voru ekki bara látinn kafa í fyrsta tíma eins og ég hafði ímyndað mér. Mér tókst auðvitað að gera einhver mistök þannig að Daníel fékk vatn í nebbann og var að vonum ekki ánægður með það en það var fljótt að ganga yfir þar sem það var svo margt sem fangaði athygli hans. Vala og Hjalti vinafólk okkar er líka á þessu námskeiði með strákinn sinn Jökul. Við erum búin að ákveða að við verðum alltaf með sitthvorn strákinn í klefanum þannig að einn getur séð um barnið meðan að hinn er í sturtu og svona.
Pabbi minn var ekki paránægður þegar ég sagði honum frá þessu námskeiði þar sem maður lætur börnin í kaf og þau bjarga sér sjálf. Ég hef þetta beint upp eftir honum: “ÆTLIÐ ÞIÐ AÐ DREKKJA BARNINU!!!” Hann er auðvitað af gamla skólanum og þar að auki vatnshræddur. Ég ætla alveg að sleppa því að segja honum frá litla slysinu í gær með eina barnabarnið hans 😉 .
Það er fyndið hvað maður er fljótur að venjast góðum hlutum og tekur þá sem sjálfsagða. Við erum ekkert öðruvísi en aðrir með það, nú er ég að tala um svefninn hans Daníels. Þessi svefn er uppspretta endalausra umræðna hérna. Daníel er búinn að vera súperduglegur að sofa bæði á nóttunni og daginn unanfarið. Þetta hefur gert okkur kleift að fara aðeins seinna að sofa en auðvitað í nótt ákvað Daníel að vakna kl 5 og EKKI FARA AFTUR AÐ SOFA! Og þegar Daníel sefur ekki, þá sofum við ekki. Við verðum bara að vona að þetta hafi verið smá útúrdúr en ég ætla ekki að taka aftur þá áhættu að fara að sofa um miðnætti og bara halda mig við þá reglu að fara að sofa ekki seinna en 11.
Vá, ég veit alveg hvað þú átt við Karen mín, ég svaf ekki lengur en 3 tíma samfleytt í 3 mánuði eftir að Halldóra Ísold fæddist og lifði það af, en í dag ef hún vaknar 6 eins og gerist stundum er ég ónýt allan daginn.
Gaman að lesa þetta um sundið, við erum einmitt að fara að byrja næsta laugardag í sundi og engin smá tilhlökkun hér á bæ 😉 Og já maður kannast við svona morgunhana, Sveinn Skúli byrjar alltaf svona hógvært tal til að kanna hvort einhver er vakandi og ef hann fær svar þá er allt látið flakka 🙂
Hæ Guðrún. Rosalega er hann Sveinn Skúli skarpur. Nennir ekki að vera að eyða orku í þetta ef það er enginn á staðnum til að hlusta 😀
Godur hann pabbi thinn. 🙂
Sonur minn hefur lika verid ad laera ad synda og eg soldid stressud og hraedd um ad hann. Mer finnst MIdjardarhafid otharflega stort 😉 svo eru thessar oldur og svona EN svo vard hann fyrir aras krabbadyrs og eg held ad hann se haettur ollum sundaefingum! EN thad er lika kominn vetur…