Monthly Archives: November 2005

Klukk!

Var að sjá að við vorum klukkuð af Friðrk og Unni þannig að hérna koma 5 atriði um Daníel:

  1. Daníel er mjög stundvís strákur. Fæddist daginn sem hann var settur og vaknar alltaf rétt yfir 6 til að fá morgunmjólkina sína.
  2. Hann var og er mjög líkur pabba sínum á fleiri en einn hátt.
  3. Daníel finnst ekkert skemmtilegra þessa dagana en að rúlla sér á teppinu og reyna að skríða.
  4. Daníel er algjört matargat og borðar flest allt sem honum er boðið, líka þótt það sé ekki matur!
  5. Daníel er mikill húmoristi og er ekkert vandlátur á hvað honum finnst fyndið. Hann getur samt verið á stundum algjör drama-drotting líka.

Við klukkum hér með Jökul og Svein Skúla!

Nú gerast hlutirnir hratt!

Daníel sem er búinn að ná núna fullum tökum á rúllutækninni, finnst ekkert skemmtilegra núna en að liggja á maganum. Ef við setum hann á bakið þá er hann búinn að velta sér yfir á augabragði. Þessi skyndilega rúllutækni kom okkur í opna skjöldu og þá sérstaklega Einari. Þannig var að Einar fór inní eldhús að búa til graut handa Daníel sem lá á teppi inná stofugólfi. Það er hægt að sjá beint innan úr eldhúsinu þar sem Daníel liggur alltaf í stofunni en þegar Einar er síðan að koma inní stofu þá er DANÍEL BARA HORFINN! En hann fór nú ekki langt, náði bara að rúlla sér nokkrum sinnum og útaf teppinu og þar með úr augnsýn! Ég held að hann hafi ætlað að kíkja í heimsókn til mín í skólann 🙂 . Ætli það fari ekki að fara bráðum að koma tími á leikgrindina?

Um leið og Daníel varð svona spenntur fyrir því að rúlla sér þá kom annar áhugi samfara því og það er að skríða!!! Hann er nú ekki byrjaður að skríða en hann er byrjaður að reyna að lyfta bossanum og hreyfa lappirnar með, þó með litlum árangri enn sem komið er. Ég veit ekki hvað eg er búin að reyna oft að lyfta upp bossanum á honum og kenna honum svona handa og fótatökin en það hefur alltaf komið fyrir ekkert. Það er greinilegt að börnin láta ekkert ýta á eftir sér í svona efnum heldur fara bara á eigin hraða, í þessu tilfelli ljóshraða 😉 . Ég held ég standist ekki mátið og ætli að fara að kaupa handa honum einhverskonar skriðsokkabuxur sem eru með eitthvað stammt efni á hnjánum.

Ég er að fara í próf í dag (jákvæðir straumar milli kl 14-17 eru vel þegnir) og Einar ætlar að fara í millitíðinni með Daníel í vigtun og svo í ungbarnasundið sem ég því miður missi af í þetta skipti. Ég vona að Daníel hafi þyngst eitthvað af viti núna því að hann borðar eins og hestur! Svo er hann líka búinn að taka sig á í mjólkurdrykkjunni, held að hann hafi bara verið hálflystarlaus útaf kvefinu og hóstanum.

Það er eitt búið að vera að angra mig dáldið og það er hvað það eru margir búinir að koma inná þessa síðu og ég veit ekkert hverjir það eru. Þetta fer að nálgast 3000 hitt og ég veit auðvitað að nánasta fjölskylda og vinir kíkja hingað en hvað með allt hitt? Og enginn skrifar í gestabókina eða kommentar eða neitt. Mig er farið að gruna að fólk útí bæ sem kannski rétt þekkir okkur Einar sé að lesa hérna um heimilislífið hjá okkur og ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það. Kannski maður ætti að setja inn password… Einhverjar skoðanir á því?

Gera tvennt í einu

Konur segja oft að karlmenn geti ekki gert fleiri en einn hlut í einu. Þetta er rangt. Tökum Daníel Mána sem dæmi, hann getur gert tvennt í einu, þ.e. borðað og kúkað! Núna þegar hann er að fá graut þá er hann búinn að taka uppá því að kúka í leiðinni. Hann er kannski búinn að fá svona 3-4 skeiðar og þá allt í einu sér maður þvílíkan rembingssvip og lyktin gýs upp! Samt heldur hann áfram að borða eins og ekkert sé. Hann hefur væntanlega hugsað með sér “hmmm, ég er alltaf að borða, og alltaf að kúka. Af hverju ekki að sameina þetta tvennt og spara smá tíma?”. Þetta held ég að sé fín þróun og sýni að Daníel hafi heilmikla hæfileika í verkefnastjórnun!

Svefntilraunir taka 1

Jæjja ég fékk þá frábæru hugmynd í dag að breyta svefntímanum hans Daníels og reyna að láta hann sofa einn langann lúr á daginn eins og vinur hans Jökull gerir. Þannig að Daníel vaknaði kl.6 (eins og venjulega) og við foreldrarnir reyndum að þrjóskast við (eins og venjulega) að taka hann uppí til okkar strax en gáfumst svo auðvitað upp(eins og venjulega) eftir 10-15 mín. Þannig að minn er síðan hálfvakandi til rúmlega 7 þegar við gefumst endanlega upp á svefninum og förum á fætur. Síðan tökum við Daníel smá kríu um 9 leytið í 15-20 mín, eða öllu heldur Daníel þar sem ég var rétt að sofna þegar hann vaknaði. Svo er hann góður til rúmlega 11 og þá gef ég honum hafragrautinn til öryggis(mjög erfitt að mata þreytt og pirrað barn) og svo þykist ég sjá á honum þreytumerki um hálf 12 þannig að ég gef honum að súpa og svo beint út í vagn. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar að nú myndi hann kannski sofa í rúma 2 kannski jafnvel 3 tíma!!! Neibb, ég var rétt búin að borða og búa til barnamat þegar minn vaknar, eftir aðeins klukkutíma svefn, alveg snældvitlaus! Þannig að ég bregð á það ráð að fara með hann út í góða veðrið að labba og sem betur fer datt mér í hug að taka með mér þurrmjólk í pela bara til öryggis. Daníel áfram brjálaður og ég þýt með hann út þannig að ég er ekki einu sinni búin að klæða mig almennilega í úlpuna áður en hurðin skellist á eftir mér. Látunum linnir ekki hjá Daníel sama hvað ég rugga og hugga og gef snuð, ekki fyrr en ég gef honum pelann. Það var eins og barnið hafði aldrei fengið að borða áður og á stuttum tíma runnu 170 ml ljúflega niður í mallann á stráknum. Við skulum ekki gleyma að fyrir tæpum tveim tímum fékk hann risaskammt af hafragraut sem er lengi að meltast og mjög seðjandi + mjólkin frá mér og svo var hann sofandi. Þessi strákur er greinilega sonur pabba síns; botnlaus! Jæja, þá hætti hann að gráta loksins en að fara sofa? Think again! Þannig að ég held áfram að ganga og ganga og ganga af því að veðrið var svona gott og svo loksins um tvö sofnar hann og er búinn að vera sofandi síðan (klukkutími). Ég veit ekki hvort ég ætti að prófa þetta aftur á morgun…. sé hvað hann sefur lengi núna.

Annars er fátt skemmtilegra hjá Daníel núna en að grípa í tásurnar og velta sér heilann hring, auðvitað í tveim lotum. Fengum svo Völu og Jökul í heimsókn í gær. Við mæðurnar lögðum strákana saman á leikteppið eftir að þeir voru vaknaðir og það er stysst frá því að segja að Daníel átti fótum sínum fjör að launa ef hann bara gæti labbað! Jökull var bara í því að toga og pota í Daníel þannig að það var varla óhætt að skilja þá saman eftir meðan að við mæðurnar hömuðumst í jólakortagerð. Ekki bætti úr að Daníel er dáldið viðkvæmur og grátgjarn þannig að um leið og hann fann að það var verið að brjóta eitthvað á sinn hlut þá var skeifan fljót að koma og ég auðvitað þurfti að hlaupa til til að hugga. Jæjja ég ætla að nýta þennan tíma meðan að strákurinn er sofandi og reyna að gera eitthvað hérna heima…. heyrðu, hann er VAKNAÐUR!

Próflestur = mikið að heiman

Jæjja þá er prófatíð að ganga í garð. Ég fer sem betur fer ekki nema í 2 próf en það er nú alveg nóg þar sem ég get ekki lært nema í 4 tíma á dag og svo um helgar. Þetta gerir það að verkum að ég sé Daníel voðalega lítið á kvöldin og ennþá minna um helgar og ég sakna hans alveg svaaaaaaaakalega mikið.

Ég held að Daníel sé heldur ekki ánægður með þetta. Hann lýsti skoðunn sinni á þessum lestri best í gær með því að ÆLA YFIR GLÓSURNAR MÍNAR! Vonda mamma! Greinilegt að ég verð að bæta honum þetta upp í næsta mánuði 😉 .

5 mánaða skoðun

Daníel var 5 mánaða á sunnudaginn síðasta og fórum við þess vegna í 5 mánaðaskoðun í gær þar sem hann var vigtaður, mældur og fékk sprautu! Aftur er Daníel ekki nógu duglegur að þyngjast eða tæp 6,8 kg þrátt fyrir allann þennan graut. Hann er hins vegar vel langur eða 67,5 cm minnir mig. Hjúkrunarfræðingurinn (þessi sama og hefur verið að fylgja okkur eftir í þessum vigtununum öllum) sagðist ekkert vita hvert allur þessi grautur væri að fara en sagði samt að þetta væri ekkert til að hafa áhyggjur af af því að þetta væri flottur og hraustur strákur. Hún spurði mig út í vaxtarlag föðursins og ég sagði auðvitað eins og er að hann er mjög langur og grannur og fitnar aldrei sama hvað hann lætur oní sig og hún sagði að þá hefði Daníel sennilega bara erft þetta frá pabba sínum. En engu að síður þá ákváðum við að bæta inn annari grautarmáltíð inní daginn hjá honum og að þessu sinni hafragraut til að auka fjölbreytnina. Að lokum fékk svo litli kallinn sprautu og stóð sig eins og hetja!

Eftir skoðunina fórum við svo að versla smá mat handa kallinum þar sem ég keypti lífrænann ungbarnahafragraut, þriggjakornagraut og svo nokkarar Hipp krukkur með kjúlla, hrísgrjónum og grænmeti. Máltíðirnr hjá stráknum eru þá svona að hann fær í hádeginu hafragraut með stöppuðum banana eða rifnum eplum, í eftirmiðdaginn fær hann grænmetis eða ávaxtamauk og svo á kvöldin fær hann hirsgraut með maltextrakt. Þess á milli fær hann bara að súpa hjá mér. Svo reynir maður að hafa smá fjölbreytni í þessu til að hann fái nú að kynnast nýjum hlutum og verði ekki leiður á þessu. Ég er líka að próf að gefa honum soðið volgt vatn í pelann blandaðann með smá hreinum safa og hann drekkur það með bestu list en um leið og það er BARA vatn þá vill hann ekki sjá það. Gengur ekkert með þessa stútkönnu, ætla að bíða með það.

Við erum svo að fara að fá tripp-trapp stólinn hjá Tomma og Önnu Maríu um helgina og þá getur Daníel farið að sitja með okkur til borðs í skamman tíma í einu. Hann verður auðvitað vel skorðaður þar sem hann er ekki farinn að sitja ennþá. Hann er sko ekki lengur sáttu að sitja bara á gólfinu meðan að við erum að borða og búinn að fatta það að það er meira spennandi hlutir að gerast uppá borðinu!

Ungbarnasund og vökunætur

Fórum í fyrsta ungbarnasundstímann í gær og það var svaka stuð. Var nú ekki mikið gert annað en að láta börnin venjast vatninu rólega. Ég var nú dáldið fegin að þau voru ekki bara látinn kafa í fyrsta tíma eins og ég hafði ímyndað mér. Mér tókst auðvitað að gera einhver mistök þannig að Daníel fékk vatn í nebbann og var að vonum ekki ánægður með það en það var fljótt að ganga yfir þar sem það var svo margt sem fangaði athygli hans. Vala og Hjalti vinafólk okkar er líka á þessu námskeiði með strákinn sinn Jökul. Við erum búin að ákveða að við verðum alltaf með sitthvorn strákinn í klefanum þannig að einn getur séð um barnið meðan að hinn er í sturtu og svona.
Pabbi minn var ekki paránægður þegar ég sagði honum frá þessu námskeiði þar sem maður lætur börnin í kaf og þau bjarga sér sjálf. Ég hef þetta beint upp eftir honum: “ÆTLIÐ ÞIÐ AÐ DREKKJA BARNINU!!!” Hann er auðvitað af gamla skólanum og þar að auki vatnshræddur. Ég ætla alveg að sleppa því að segja honum frá litla slysinu í gær með eina barnabarnið hans 😉 .

Það er fyndið hvað maður er fljótur að venjast góðum hlutum og tekur þá sem sjálfsagða. Við erum ekkert öðruvísi en aðrir með það, nú er ég að tala um svefninn hans Daníels. Þessi svefn er uppspretta endalausra umræðna hérna. Daníel er búinn að vera súperduglegur að sofa bæði á nóttunni og daginn unanfarið. Þetta hefur gert okkur kleift að fara aðeins seinna að sofa en auðvitað í nótt ákvað Daníel að vakna kl 5 og EKKI FARA AFTUR AÐ SOFA! Og þegar Daníel sefur ekki, þá sofum við ekki. Við verðum bara að vona að þetta hafi verið smá útúrdúr en ég ætla ekki að taka aftur þá áhættu að fara að sofa um miðnætti og bara halda mig við þá reglu að fara að sofa ekki seinna en 11.

Kúkabomba!!!

Daníel í vaskinumEins og sum ykkar vita þá hefur Daníel verið að spara kúkableyjurnar undanfarið. Það hefur enginn kúkur verið síðustu 9 daga en úr því var heldur betur bætt í kvöld! Við sátum í stofunni og mér fannst ég finna smá lykt, hélt kannski að þetta hefði bara verið smá prump en ákvað samt að fara og tékka á þessu. Þegar við komum á skiptiborðið sá ég að það var brún rönd á samfellunni fyrir ofan bleyjuna. Þegar ég svo tók hann úr bleyjunni þá sá ég MESTA KÚK SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÆVINNI!! Hann var gjörsamlega þakinn kúki bæði að framan og aftan, og ekki bara smá klessur heldur ÞYKKT LAG AF KÚK YFIR ÖLLU! Ég panikkaði að sjálfsögðu og kallaði á Karen og í sameiningu þrifum við það mesta af honum og skelltum honum svo oní vask til að ná restinni af. Án gríns þá hefur þetta örugglega verið hátt í hálft kíló af kúk! Litli gaurinn var þrusuánægður með þetta allt saman og við foreldrarnir vorum sömuleiðis mjög ánægð með að kúkaverkfallinu væri lokið.

Haustkvef

Daníel er búinn að næla sér í ærlegt haustkvef þannig að það alveg surgar í hálsinum á greyinu. Hann kann auðvitað ekki að ræskja sig eða losa sig við þetta þannig að hann stendur stundum alveg á öndinni þegar þetta er orðið mikið og hann er að reyna að hósta þessu upp. Það er sérstaklega óþægilegt þegar þetta gerist á nóttunni og við foreldrarnir stökkvum á fætur við köfnunar-hljóðin í litla anganum. Vonandi gengur þetta fljótt yfir.

Við fengum góða gesti í heimsókn í dag þegar Vala, Jökull, Unnur og Tómas kíktu í hádeginu. Við lögðum strákana alla saman á teppi á gólfinu og þeir höfðu bara mjög gaman að því. En þegar Daníel tók eftir því að ég var ekki lengur á staðnum þá fór hann að háskæla og sama hvað Vala reyndi til að hugga hann þá dugði ekkert fyrr en ég kom og tók hann í fangið. Hann er greinilega orðinn dáldill mömmustrákur.

Annars er nýjasta sportið hjá Daníel að grípa í tærnar við hvert tækifæri og reyna að troða snuðinu uppí sig með misjöfnum árangri.

Vigtun

Jæjja fórum í vigtun á mánudaginn og Daníel er loksins farinn að þyngjast eitthvað af viti. Hann vó 6.610 kg sem er 250 gr aukning á 2 vikum. Við erum bara stolt af litla kallinum og hann nær núna að halda sér á meðalkúrfunni. Ég lét líka lengdarmæla hann og hann er langur eins og pabbi sinn. Hann var 67 cm og er í næstu kúrfu fyrir ofan meðalkúrfuna 🙂 .

Annars var Einar einum of fljótur á sér með að óska sér góðs nætursvefns. Daníel tók bara allt í einu uppá því að vera brjálaður á nóttunni og nóttin í nótt var sú versta sem við höfum upplifað! Við sváfum ekki meira en hálftíma til þrjú korter í senn. Ég er að spá í því hvort það gæti verið eitthvað að kallinum, hann er reyndar kvefaður en ég er búin að þreifa góminn allan vel og vandlega og ekkert bólar á tönnum.

Svo í morgun mátti ekki leggja hann niður enda var hann dauðþreyttur eftir bröltið í nótt en sefur núna sæll og glaður úti í vagni. Það er bara verst að við foreldrarnir getum ekki leyft okkur þennan lúxus að lúlla svona úti í vagni líka eftir svona nótt 😉 .