Það er alveg ótrúlegt hvað tilveran breytist hjá manni við að eignast barn. Til að byrja með hefur allt tímaskyn verið tekið úr sambandi á þessu heimili, hápunktar dagsins eru rop og prump og bleyjuinnihald er eitt aðalumræðuefnið! Til að toppa þetta allt saman þá angar íbúðin okkar af dísætri brjóstamólkurlykt 😉 . Það er ekki þar með sagt að okkur leiðist tilveran og svefnleysi er fljótt að venjast 😉 .
Strákurinn er að hressast með hverjum deginum en það var óttast um tíma að hann væri að fá gulu og ekki bætti úr skák að hann er búinn að vera latur að drekka. En það var gerð blóðprufa í dag og hann er kominn langt undir öll hættumörk og því ástæðulaust að vera að fylgjast lengur með þessu. Nú er hann líka farinn að vera meira vakandi og farinn að láta heyra í sér af og til sem er ekkert nema gleðiefni fyrir okkur þar sem við höfum varla heyrt hann gráta almennilega fyrr en núna.
Annars er lífið farið að færast í aðeins eðlilegra horf núna og við erum farin að vera afslappaðri og öruggari í foreldrahlutverkinu. Jæjja það er best að fara að elda einhvern matarbita, við foreldrarnir verðum líka að fá eitthvað að borða.